Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 30
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Vinkonurnar Marta María Friðriks-dóttir og Anna Herdís Pálsdóttir hafa gengið á eitt fjall í viku
síðan í sumar. Ferðirnar eru orðnar
alls sautján talsins upp á þrettán mis-
munandi fjöll en það fjórtánda bætist
í hópinn í vikunni. Marta María segir
hugmyndina hafa kviknað yfir sushi og
hvítvíni í miðbæ Reykjavíkur í sumar.
„Við ákváðum að skella okkur upp á
Helgafell daginn eftir. Svo þróaðist
þetta þannig að við fórum á annað fjall
viku síðar og á endanum settum við
okkur það markmið að ganga á eitt fjall
í viku. Upphaflega var það ekki ætlunin
þannig að segja má að þetta hafi byrjað
fyrir algjöra tilviljun.“
Flest fjöllin sem þær hafa gengið á
eru í nágrenni Reykjavíkur en einnig
hafa þær farið á Vatnsdalsfjall í Fljóts-
hlíð og Miðhraunshlíð á Snæfellsnesi.
„Ein skemmtilegasta ferð okkar í sum-
ar var einmitt á Vatnsdalsfjall. Þar réð-
ust kríur á okkur og þar gengum við
á sokkaleistunum í mjúkum mosa því
skórnir þrengdu að. Við höfum alltaf
gengið tvær þótt ýmsir vinir okkar hafi
lýst yfir áhuga á að koma með okkur.
Þar sem Anna Herdís vinnur vakta-
vinnu höfum við ekki fastan göngudag
og förum í gönguferðir á virkum dög-
um sem og um helgar. Við ákveðum
tímasetningu göngunnar með fyrirvara
og förum, sama hvernig viðrar. Enda
höfum við gengið í sólskini, þoku,
rigningu og roki. Sumarið var í minn-
ingunni frekar svalt og blautt en þegar
við skoðum myndir úr ferðum okkar
sjáum við að sumarið var bara alveg
ágætt.“
Vinkonurnar syngja saman í Söng-
sveitinni Fílharmóníu og segir Marta
María þær syngja mikið á göngunni,
bæði raddað og óraddað. „Nú er kórinn
til dæmis að æfa fyrir klezmer-tónleika
sem haldnir verða 8. og 9. nóvember
þar sem Ragnheiður Gröndal mun
syngja með okkur ásamt hljómsveit.
Það má því búast við að nokkur lög
verði tekin í vikunni, líklega á leiðinni
upp á Blákoll.“
SYNGJANDI VIN-
KONUR Á FJÖLLUM
SÖNGELSKIR GÖNGUGARPAR Vinkonurnar Marta María og Anna Herdís
hafa gengið á eitt fjall í viku síðan í sumar og ætla að halda áfram í vetur.
GÖNGUGARPUR
Marta María á Mó-
skarðshnjúkum í sumar.
MYND/ÚR EINKASAFNI
FJALLIÐ SIGRAÐ Gengið upp á Helgafell í haust í fallegu veðri. MYND/ÚR EINKASAFNI
Fimmtánda Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin hófst á miðvikudaginn.
Langt er síðan uppselt var á hátíðina en þeir sem ekki eiga armband
geta sótt fjölmarga atburði sem eru utan dagskrár (off venue) um
helgina. Þar spila flestir þeirra listamanna sem troða upp á hátíðinni
á kaffihúsum, í verslunum og á tónleikastöðum í miðborg Reykjavíkur.
Þessir tónleikar byrja upp úr hádegi alla daga og standa yfir fram
á kvöld á meðan hátíðin stendur yfir en ókeypis er inn á þá. Á vef
hátíðarinnar, icelandairwaves.is, má finna lista yfir alla „off-venue“
tónleikana auk þess sem hægt er að hlaða niður appi Airwaves-há-
tíðarinnar. Með því er hægt að skipuleggja eigin dagskrá um helgina
og kynna sér þá listamenn sem koma fram. Meðal tónleikastaða má
nefna Hörpu, Hlemm, Lucky Records, Laundromat Café, 12 Tóna,
Norræna húsið og Eymundsson Austurstræti. Meðal þeirra fjölmörgu
listamanna sem koma fram á utan dagskrár um helgina eru Retro Stef-
son, John Grant, Lay Low, Dikta, Ásgeir Trausti, KK og Hjaltalín.
ALLIR Á AIRWAVES
Litlanefnd ferðaklúbbsins 4x4 sinnir
eigendum minna breyttra jeppa og
fer mánaðarlega í ferðir. Næsta ferð
Litlunefndar verður farin þann 9.
nóvember. Að þessu sinni er stefnan
sett á Kerlingarfjöll. Kominn er ein-
hver snjór á þessum slóðum og
frostspá fram undan. Opnað verður
fyrir almenna skráningu í dag, 1.
nóvember.
Ferðir eru auglýstar á vefsvæðinu
f4x4.is og þátttakendur verða að
skrá sig í hverja ferð. Kynn-
ingarkvöld Litlunefndar eru á
miðvikudegi fyrir hverja
ferð og myndakvöld í
opnu húsi á fimmtu-
degi eftir ferð. Ferðir
með Litlunefnd eru
án endurgjalds og allir
þátttakendur eru á eigin
ábyrgð.
MINNA BREYTTIR Á FERÐALAGI
ALLTAF FJÖR Frítt er
inn á atburði utan dag-
skrár á Airwaves.
MYND/MAGNÚS ELVAR JÓNSSON
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
Ný búð opnar
20% afsláttur
af öllum vörum
til 9. nóvember
Opnunar-
tilboð
Finndu þinn eigin stíl