Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 74

Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 74
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 50 SKÍÐI „Það er búið að snjóa tölu- vert og þetta er það besta sem maður kemst í á Norðurlönd- unum eins og staðan er núna,“ segir skíðagöngukappinn Sævar Birgisson. Sævar hefur verið við æfingar í Hlíðarfjalli á Akureyri í vikunni ásamt Brynjari Leó Kristinssyni. Báðir stefna á þátttöku í Vetrar- ólympíuleikunum í Sochi í Rúss- landi í febrúar. Þá verða tuttugu ár síðan Ísland átti síðast fulltrúa í skíðagöngukeppni leikanna. Síðan Daníel Jakobsson og Rögn- valdur Ingþórsson kepptu í Lille- hammer 1994 hefur Ísland aðeins átt fulltrúa í alpagreinum. Sævar hefur þegar náð lág- markinu fyrir leikana í sprett- göngu (skaut) og 15 kílómetra göngu með hefðbundinni aðferð. Brynjar Leó vinnur að því hörð- um höndum. Sævar þekkir vel til í Lille- hammer en þar gekk hann í skíða- menntaskóla á árunum 2005-2008. Sauðkrækingurinn uppaldi, sem varð 25 ára á árinu, ætlaði sér stóra hluti. Rúmliggjandi um tíma „Fljótlega eftir að ég kláraði skól- ann varð ég hálfónýtur í nokkur tímabil,“ segir Sævar sem greind- ist með hryggikt. Hann segist hafa íhugað að hætta keppni. „Ég var eiginlega búinn að gef- ast upp á þessu. Á tímabili var ég rúmliggjandi,“ segir Sævar sem fékk lyf við gigtinni. Ekki tók betra við þegar hann fékk gat á magann í miðri keppni. Hann segir gigtina að einhverju leyti ættgenga en ekki hafi hjálpað til að hann gekk fram af sjálfum sér árin þrjú í Noregi. „Ég fékk ýmis einkenni og var greindur með hitt og þetta,“ segir Sævar og lýsir stöðu sinni í dag þannig að hann sé 95% góður. Hann hefur verið á lyfjum við gigtinni í þrjú ár en kaflaskil urðu þegar hann landaði Íslands- meistaratitlinum árið 2011 eftir þrjú erfið ár á undan. Þá kvikn- aði áhugi á að taka skíðagönguna föstum tökum á nýjan leik. Þrjú ár voru í Vetrarólympíuleikana. Flutti til Noregs „Það var kannski meira draumur en markmið í fyrstu. En þegar æfingar gengu vel og líkaminn svaraði vel tók ég hlé frá námi mínu og flutti til Noregs,“ segir Sævar sem var byrjaður í námi við Háskólann á Bifröst. „Ég ákvað að gera þetta almennilega fyrst ég væri að þessu,“ segir Sævar og nú er hann á lokametrunum. Nú eru 98 dagar þar til eldurinn verður tendraður í Sochi og æfingar hafa verið stífar. Sævar er tiltölulega nýkominn úr tveggja vikna æfingabúðum í Austurríki. Þar höfðu þeir Brynjar Leó bækistöðvar í um 1.800 metra hæð og æfðu í 2.600 metra hæð. „Í Sochi verður keppt í 1.500 metrum svo að við þurfum að aðlagast því,“ segir Sævar sem heldur í næstu viku til Svíþjóðar og svo Noregs. Þeir Brynjar Leó hafa æft með sænsku félagi undanfarið ár enda í sérflokki íslenskra skíðagöngu- manna sem stendur. Þeir eru hins vegar í þeirri stöðu að þurfa að berjast um eitt laust sæti sem Íslandi stendur til boða í skíða- göngukeppninni í Sochi. Enginn leiðindarígur „Það er ekkert atriði hjá okkur. Við æfum mikið saman og njót- um góðs af því. Það þýðir ekkert að vera með leiðindaríg,“ segir Sævar. Hann bendir á að þeir hafi ekki haft neina æfingafélaga á Íslandi í mörg ár og því treyst hvor á annan. Sævar keppir á móti í Finn- landi um miðjan nóvember. Góður árangur gæti lyft honum upp á heimslistanum. Kæmist Sævar ofar en í 300. sæti á heimslistanum yrði það til þess að Ólympíulágmark myndi duga þeim báðum. Ekki þyrfti að velja á milli þeirra tveggja varð- andi eitt laust sæti. „Við vonumst til þess að það verði svoleiðis.“ kolbeinntumi@frettabladid.is Hryggiktin endaði ekki ÓL-drauminn Skíðagöngukappinn Sævar Birgisson er á lokametrunum að takmarki sínu; að komast á Vetrarólymíuleikana í Sochi í Rússland sem haldnir verða í febrúar. Ekki er svo langt síðan leikarnir voru bara draumur en nú er lágmarkinu náð. TUTTUGU ÁRA BIÐ Á ENDA Ísland mun eiga skíðagöngumann á Vetrarólympíuleikunum í Sochi. Hér er Sævar Birgisson með gönguskíðin sín þegar hann var við æfingar í Austurríki á dögunum. MYND/ÚR EINKASAFNI Sævar á ekki langt að sækja skíðahæfileika sína. Afi hans heitinn, Gunnar Guðmundsson, var mikill skíðagöngukappi og sömuleiðis faðir hans, Birgir Gunnarsson. „Afi var stuðningsmaður númer eitt,“ segir Sævar um afa sinn, sem varð bráðkvaddur fyrir þremur árum. Gunnar keppti fyrir Siglufjörð á sínum tíma en faðirinn með Tindastóli. Það gerði Sævar framan af en keppir í dag fyrir Fjallabyggð. „Ef ekki hefði verið fyrir pabba þá væri maður löngu hættur í þessu,“ segir Sævar um aðkomu og stuðning föður síns. Sævar hefur ekki tekið ákvörðun um framhaldið að loknum leikunum í Sochi. „Ef maður slær í gegn í vetur heldur maður auðvitað áfram. Þá verður auðveldara að ná í styrki,“ segir Sævar sem nýtur styrks frá Ólympíusam- hjálpinni. Sá styrkur skiptir sköpum að hans sögn. Afi var stuðningsmaður númer eitt Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is i i i www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.