Fréttablaðið - 01.11.2013, Page 12
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
Í Pfaff laugardaginn
2. nóvember frá kl. 11–16
Huskylock S-15 – verð kr. 79.900
Tilboð kr. 64.900
Singer – verð kr. 69.900
Tilboð kr. 54.900
Frábær tilboð á saumavélum
og overlockvélum
• Sýnikennsla – Hvernig á að sauma
barnaföt – jólaföt fyrir stelpur og stráka.
• Nýjasta nýtt – Snið og ný efni frá
Föndru sýnd.
Husqvarna Emerald 116 – verð kr. 54.900
Tilboð kr. 44.900
Husqvarna Emerald 118 – verð kr. 64.900
Tilboð kr. 54.900
Husqvarna Opal 650 – verð kr. 109900
Tilboð kr. 89.900
Saumum
saman
barnaföt
25% afsláttur
af fylgihlutum
fyrir saumavélar
Pfaff Grensásvegi 13 Sími 414 0400 www.pfaff.is
ÖRYGGISMÁL Íslensk stjórnvöld
hafa innt Bandaríkin eftir form-
legum svörum varðandi njósna-
starfsemi hér á landi. Þetta sagði
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra á Alþingi í
gær þegar rætt var um það sem
fram kom í spænska dagblaðinu El
Mundo. Þar kemur meðal annars
fram að Ísland sé á meðal þeirra
ríkja sem verið hafa í samstarfi við
bandarísku Þjóðaröryggisstofn-
unina (NSA) um upplýsingaöflun.
Sendiherra Bandaríkjanna
var kallaður á teppið hjá skrif-
stofustjóra í utanríkisráðuneyt-
inu vegna málsins og hefur skila-
boðum íslenskra stjórnvalda verið
komið áfram til Washington.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær
sagði Össur Skarphéðinsson, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, að
íslensk stjórnvöld hefðu ekki átt í
nánu samstarfi við NSA.
Frétt El Mundo er unnin af
blaðamanninum Glenn Greenwald,
upp úr gögnum uppljóstrarans
Edwards Snowden. Þar er Ísland
sett í hóp með ríkjum sem hafa átt
í hnitmiðuðu samstarfi við stofn-
anirnar. Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra sagði í sam-
tali við fréttastofu RÚV að hann
hygðist óska eftir svari um það
af hverju Ísland væri yfirleitt á
umræddum lista.
Fleiri ríki eru á þessum lista, þar
á meðal Danmörk – en forsætisráð-
herra Danmerkur, Helle Thorn-
ing-Schmidt, sá í gær enga ástæðu
til að afneita slíku samstarfi: „Að
sjálfsögðu erum við í samstarfi við
aðrar leyniþjónustur,“ var haft eftir
henni á vefsíðu Jótlandspóstsins.
Netþjónustufyrirtækin Google
og Yahoo brugðust hins vegar
ókvæða við þegar fréttist af því
– einnig upp úr gögnum frá þeim
Snowden og Greenwald – að NSA
hafi brotist inn í tölvukerfi þeirra
og náð sér þar í upplýsingar um
netnotkun milljóna manna.
„Við erum hneyksluð á því hve
langt ríkisstjórnin virðist hafa
gengið til að komast yfir gögn
úr persónulegum ljósleiðaranet-
um okkar,“ segir í yfirlýsingu frá
David Drummond, yfirmanni lög-
fræðisviðs Google.
Bandarísk stjórnvöld hafa
brugðist við með því að boða
endur skoðun á starfseminni.
gudsteinn@frettabladid.is,
thorgils@frettabladid.is
Óska skýringa á veru
Íslands á lista NSA
Íslensk stjórnvöld hafa komið á framfæri ósk til Bandaríkjanna um formleg svör
vegna fregna af því að Ísland sé á lista yfir samstarfslönd öryggisstofnana vestra.
Fyrrverandi utanríkisráðherra segir að ekki hafi verið unnið náið með NSA.
Í HÖFUÐSTÖÐVUM NSA Gögnum safnað í stórum stíl. NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUR Vegagerðin hefur á síðustu fimm árum
varið tæpum milljarði í girðingar og viðhald þeirra
við vegi landsins.
Þetta kemur fram í svari Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkisráðherra við fyrirspurn Svandísar
Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna.
Í svari ráðherra kemur fram að á árunum 2008-
2012 hefur Vegagerðin kostað 320 kílómetra af girð-
ingum með eldri vegum og á sama tíma hafa komið
fram óskir um 300 kílómetra af girðingum til við-
bótar. Til þess að uppfylla fyrirliggjandi óskir um
nýjar girðingar má áætla að þurfi um 350 milljónir
króna.
Samkvæmt reglugerð um girðingar meðfram
vegum ber Vegagerðinni að „girða báðum megin
vegar sem lagður er gegnum tún, ræktarland,
engjar eða girt beitiland“, enda er vegurinn lagð-
ur í gegnum land í einkaeigu. Viðhaldskostnaður
girðinga meðfram stofn- og tengivegum greiðist að
jöfnu af Vegagerðinni og landeiganda.
Í ályktun á Búnaðarþingi 2013 er bent á að víða
sé misbrestur á að viðhaldi girðinga meðfram
vegum sé sinnt. Nauðsynlegt sé að bæta úr því og
leiðin til þess sé að landeigendur, sveitarfélög og
Vegagerðin efli samstarf um veggirðingar.
- shá
Vegagerðin skal girða meðfram vegi sem fer í gegnum land í einkaeigu:
Milljarður í girðingar á 5 árum
INNAN GIRÐINGAR Eins og gefur að skilja eiga girðingar að
tryggja öryggi vegfarenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ Í skjali, sem spænska dagblaðið El Mundo birti, er listi yfir þau ríki
sem Þjóðaröryggisstofnun (NSA) og Öryggisþjónusta Bandaríkjanna (CSS)
segjast hafa verið í samstarfi við:
Víðtækt samstarf: Bretland, Ástralía, Kanada, Nýja-Sjáland
Hnitmiðað samstarf: Austurríki, Belgía, Danmörk, Grikkland, Ísland,
Ítalía, Japan, Lúxemborg, Holland, Noregur, Portúgal, Pólland, Spánn,
Suður-Kórea, Svíþjóð, Sviss, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland, Þýskaland
■ Bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden dvelur nú í Rússlandi á
flótta undan bandarískum yfirvöldum. Hann er að sögn lögmanns hans,
kominn með vinnu og hefur í dag störf hjá rússnesku fyrirtæki við að
sinna og þróa vefsíðu.
Samstarfslönd NSA og CSS
KJARAMÁL „Það er ljóst að kjara-
viðræður munu ráðast að veru-
legu leyti af aðkomu stjórnvalda að
þeim,“ segir Þorsteinn Víglunds-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Aðilar vinnumarkaðarins vilja
vita eigi síðar en í næstu viku
hvernig stjórn efnahagsmála verði
háttað næstu misseri. Þeir bíða
eftir svörum um hvernig ríkis-
stjórnin ætlar að ná tökum á óstöð-
ugu gengi krónunnar, þrálátri
verðbólgu, hvernig afnámi gjald-
eyrishafta verði háttað, aðgerðum
í þágu skuldsettra heimila og svo
framvegis.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sagði í fréttum Bylgjunnar að
stjórnvöld þyrftu að koma með sitt
innlegg í samningagerðina.
Að þeirra mati er samflot hreyf-
inganna í kjaraviðræðum í hættu
ef stjórnvöld sýna ekki á spilin á
næstu dögum. „Ef félögin fara að
semja hvert í sínu lagi er ljóst að
það verður erfiðara um vik að ná
sameiginlegri niðurstöðu um kjara-
samninga sem hafa það að mark-
miði að vinna bug á verðbólgunni,“
segir Þorsteinn. - jme
Aðilar vinnumarkaðarins bíða óþreyjufullir eftir svörum frá stjórnvöldum
Samflot félaganna í hættu
ÞORSTEINN
VÍGLUNDSSON
GYLFI
ARNBJÖRNSSON