Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 41
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 1. NÓVEMBER 2013 • 9
Björgvins, Ásgeir Hjartarson,
Silla Make-up og Harpa Sif ásamt
mér. Fram undan eru spenn-
andi nýjungar sem verða komnar
þegar vefurinn verður eins árs í
desember.“
Finnur þú fyrir mikilli útlits-
dýrkun hér á landi? „Já, að vissu
leyti. Með tilkomu forrita á borð
við Photoshop og þess háttar, þá
birtir enginn ljóta mynd af sjálf-
um sér neins staðar. Ég upplifi út-
litsdýrkun að hluta til hjá minni
kynslóð þar sem fjöldinn allur
fer og lætur lyfta, sprauta, græja
og gera. Af hverju skyldu konur
vilja láta sprauta í allar hrukk-
ur? Vegna þess að umhverfið kall-
ar á það. En ég er þeirrar skoðun-
ar samt að maður eigi að fylgja
innsæi sínu og ef fólki líður betur
með slétt enni eða stórar varir, þá
er það í fínu lagi.“
Nú ertu að fara gefa út Tísku-
bókina – í stíl við þig á næstu
vikum. Segðu örlítið frá frá henni.
„Ég var búin að ganga lengi
með þessa hugmynd í magan-
um enda hef ég skrifað um tísku-
tengt efni fyrir fjölmiðla í mörg
ár. Tíska er mér mikið hjartans
mál. Svo elska ég fallega hluti og
lykt af nýjum fatnaði. Þetta eru
engin geimvísindi og ég vil alls
ekki breyta konum en mig lang-
ar bara að hjálpa konum til að
verða besta útgáfan af sjálfri sér.
Bókin er byggð upp á skemmti-
legum og góðum ráðum um útlit
og klæðaburð og skemmtilega
myndskreytt. Þetta er eins og ein
stór skvísubók sem hentar breið-
um aldurshópi. Bókin mun einn-
ig hjálpa konum að spara peninga
og vera smart í leiðinni. Það finnst
mér vera mikilvægt.“
Framinn og fjölskyldan
Eva Dögg segist ætla að fylgja
bókinni eftir og stefnir á að halda
fyrir lestra og veita ýmsa ráðgjöf
fyrir konur á öllum aldri. Hún
segist hafa fengið mikinn stuðn-
ing við verkefnið frá góðu fólki.
„Maðurinn minn er búinn að
veita mér mjög mikinn stuðning
og hvatti mig áfram til að skrifa
þessa bók. Nú þarf ég hins vegar
á „tölvu afeitrun“ að halda. Ég
sit nefnilega oft fram eftir með
tölvuna og læt fjölskylduna sitja
á hakanum. Nú er ég sem sagt
komin í tölvustraff á kvöldin.“
Hvernig hefur þér tekist að
blanda saman vinnu og fjöl-
skyldulífi? „Þegar ég hef gaman
af því sem ég er að gera, þá get
ég unnið nótt og dag. Það ger-
ast töfrar þegar það er gaman í
vinnunni. Stundum langar mig
þó að fara úr ofurkonubúningun-
um því samfélagið gerir ákveðn-
ar kröfur í dag. Konur eru með
hundrað hlutverk og við berum
svo mikla ábyrgð. Við eigum að
hafa áhugamál, vera góðar vin-
konur, kærustur, framakon-
ur, elskhugar og þéna á við karl-
mennina. Mér fallast hendur við
að hugsa til þess hvernig ég var
að vinna áður en ég átti þessa
litlu gæja mína. Mæður okkar
voru að berjast fyrir rétti kvenna
og því tel ég að gerðar hafi verið
óraunhæfar kröfur til okkar kyn-
slóðar. Því er ég oft að vernda
börnin mín svo þau upplifi ekki
þessa pressu.“
Eva Dögg á stóra fjölskyldu
í dag en hún er í sambúð með
Bjarna Ákasyni og saman eiga
þau tvo drengi. Þegar þau kynnt-
Eva Dögg með móður sinni, Eddu Björgvins. Eva Dögg og litli molinn. Hér er hún komin í veiðigallann. Eva Dögg ásamt Bjarna Ákasyni og sonum þeirra.
MyndaalbúmiðSkólinn og kenn-
ararnir eiga stór-
an þátt í að móta
framtíð barnanna
okkar og geta
hreinlega lagt
barn í einelti. Ég
barðist fyrir syni
mínum í skóla-
kerfinu lengi
20-40%
afsláttur af öllum vörum
aðeins þessa helgi
Siffon mussurnar komnar
Áður kr 12.900
nú aðeins kr 6.990
Stærð medium til XXL
Háu aðhaldsbuxurnar komnar
Verð áður kr 9.900
nú aðeins kr 6.990
Stærð small til XXL