Fréttablaðið - 01.11.2013, Blaðsíða 47
AUGLÝSING: ICEPRACT KYNNIR
Ellen-tíðatappar, sem eru framleiddir í Svíþjóð, henta öllum
konum sem vilja vernda og viðhalda jafnvægi í leggöngum
og stuðla að eðlilegu pH-gildi. Tíðatapparnir hafa reynst
konum sem glíma við vandamál vegna kláða, ólyktar og ert-
ingar sérstaklega vel. Þeir hafa einnig fyrirbyggjandi tilgang.
Hver tíðatappi inniheldur 100 milljónir mjólkursýrugerla
en gerlarnir eru þekktir fyrir eiginleika sem bæta og styrkja
eðlilega bakteríuflóru í leggöngunum. Níu af hverjum tíu
konum finna fyrir óþægindum á kynfærasvæðinu einhvern
tímann á lífsleiðinni og margar fá síendurteknar sveppasýk-
ingar. Með notkun Ellen-tíðatappanna er eðlilegu pH-gildi
haldið við, sem getur fyrirbyggt óþægindi.
Tapparnir eru ekki eingöngu hugsaðir fyrir konur með
óþægindi heldur er mælt með því að allar konur noti þá til
að stuðla að eðlilegri gerlaflóru og fyrirbyggja vandamál.
Frá sama framleiðanda fæst einnig krem sem mælt er
með að nota samhliða töppunum og inniheldur einnig
mjólkursýrugerla. Það er auk þess afar rakagefandi og hefur
reynst vel eftir rakstur og vax á kynfærasvæði.
Kvensjúkdómalæknar um alla Evrópu mæla með notk-
un mjólkursýruvaranna frá Ellen. Þeir hafa einnig bent á
að kremið innihaldi ekki vatn, sem þykir mikill kostur. Fáar
vörur eru á markaði fyrir þetta svæði og hefur þeim verið
tekið fegins hendi um allan heim. Krem og tíðatappar frá
Ellen fást í öllum helstu apótekum.
Hvernig virkar varan? Raki sem myndast í Ellen-tíðatappa
virkjar mjólkursýrugerla inni í honum en þeir vernda yfirborð
slímhúðar gegn óæskilegum bakteríum. Mjólkursýrugerlar
streyma frá tappanum í leggöngin og viðhalda pH-jafnvæg-
inu.
Gerlarnir: Ellen-tappar- og krem innihalda mjólkursýru-
gerlana L. gasseri LN40, L. fermentum LN99 og L. rhamn_
osus LN113.
Notkun og stærðir: Tíðatapparnir fást í þremur stærðum.
Þeir eru þægilegir og veita sömu vörn og venjulegir tíða-
tappar. Mikilvægt er að nægilegur raki komist í hvern tappa
svo hann nái fullri virkni. Því getur verið gott að nota mis-
munandi stærðir af töppum eftir því hvort blæðingar eru
litlar eða miklar. Mælt er með því að nota að minnsta kosti
þrjá Ellen-tíðatappa á dag á meðan á blæðingum stendur í
að minnsta kosti þrjá daga. Full virkni hefur átt sér stað eftir
90 mínútna notkun.
Ellen-krem
Ellen-krem er gott að nota samhliða töppum en einn-
ig á öðrum tíma mánaðarins. Það inniheldur mjólkur-
sýrugerla líkt og tapparnir, er rakagefandi og mýkir húð-
ina. Kremið er upplagt á viðkvæma húð kynfærasvæðis-
ins og gott að bera það á húðina eftir háreyðingu, vax og
rakstur, sem getur verið afar ertandi fyrir húðina. Kremið
er borið á útvortis en vegna þess að það inniheldur sömu
mjólkursýrugerla og finna má á kynfærasvæði kvenna
er í lagi að kremið berist í slímhúð. Við háreyðingu verð-
ur kynfærasvæðið berskjaldað fyrir bakteríum og er Ellen-
krem hentugt sem öflug vörn gegn óæskilegum bakteríum.
Kremið hentar konum á öllum æviskeiðum, líka þeim sem
eru á breytingaskeiði.
TÍÐATAPPAR OG KREM SEM KOMA
JAFNVÆGI Á GERLAFLÓRUNA
Tíðatappar með mjólkursýrugerlum eru nýjung á íslenskum markaði. Þeir heita Ellen og koma jafnvægi á gerlaflóruna í leggöngum.
Ellen-kremið er mýkjandi og ver kynfærasvæði kvenna gegn óæskilegum bakteríum.
Kvensjúkdómalæknar um alla
Evrópu mæla með notkun
mjólkursýruvaranna frá Ellen. Í
Ellen-tíðatöppum eru 100 milljón
mjólkursýrugerlar sem stuðla
að eðlilegu pH-gildi og bæta og
styrkja eðlilega bakteríuflóru í
leggöngum.
Helstu
eiginleikar
Ellen kremsins:
Inniheldur ekki vatn
Smýgur vel inn í húðina
Drjúgt og auðvelt í notkun
Án ilmefna
Án rotvarnarefna
Án estrógens