Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 62

Fréttablaðið - 01.11.2013, Side 62
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38 FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR? EKKI MISSA AF Opnanir 16.00 Sýning á verkum Önnu G. Torfadóttur opnuð í Artóteki. Sýningin er á Reykjavíkurtorgi á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Sýningin stendur til 8. desember. Opið er mánudaga til fimmtudaga klukkan 10 til 19, föstudaga kl. 11 til 18 og um helgar kl. 13 til 17. 17.00 Sýning á verkum Steinunnar Þórarinsdóttur verður opnuð í Tveimur hröfnum listhúsi, Baldurs- götu 12 (gegnt veitingastaðnum Þremur frökkum). Á sýningunni verða fígúratífir skúlptúrar og verk unnin í gler. Tónlist 12.15 Tónleikaröðin Klassík í hádeginu fer fram í Gerðubergi í dag. Listrænn stjórnandi er Nína Mar- grét Grímsdóttir. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Páll Rósinkranz og hljómsveit koma fram á Café Rosenberg. 23.00 Lifandi tónlist verður á Obladíoblada, Frakkastíg 8. Fyrirlestrar 15.00 Fyrirlestrar á haustdögum fara fram á vegum Listnámsbrautar VMA og Sjónlistamiðstöðv- arinnar. Skóhönnuðurinn Halldóra Eydís Jónsdóttir verður með fyrirlestur í stofu M01 í VMA. 20.00 Bergsteinn Jónsson heldur fyrirlestur um tengingu huga og líkama í gegnum orkustöðvarnar í húsi Lífspekifélags Íslands, Ingólfsstræti 22. Markaðir 12.00 Dreifingarfélagið Kongó stendur að tónlist- armarkaði á Kexi Hosteli í tengslum við Airwaves- hátíðina. Markaðurinn er opinn til 21 þá daga sem hátíðin stendur yfir. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is „Þessi staður er fínn fyrir fólk sem vill koma og dansa af sér rass- gatið,“ segir Össur Hafþórsson. Hann opnar í kvöld skemmti- staðinn Park á Hverfisgötu 20 þar sem Hverfisbarinn var eitt sinn til húsa. Þar verður elektrónísk danstónlist í boði og ætti fólk því að geta sleppt fram af sér beislinu í trylltum dansi. Auk Össurar eru kona hans Linda Mjöll Þorsteins- dóttir og Eyvindur Eggertsson eig- endur staðarins. „Faktorý var með hliðarsal helg- aðan raftónlist og sinnti því mjög vel. Eftir að sá staður hætti vant- aði góðan dansstað á þessu efra svæði með alvöru hljóðkerfi,“ segir Össur um Park, sem býður upp á kerfi af tegundinni Function One frá Óla ofur. Össur átti áður skemmtistað- inn Sódómu en seldi hann árið 2010. Núna rekur hann Bar 11 á Hverfis götu og Bar 7 á Frakka- stígnum, auk húðflúrsstofunnar Reykjavík Ink á Frakkastíg ásamt Lindu Mjöll. Fríar veitingar verða í boði á Park í kvöld milli kl. 21 og 23 og er öllum boðið. „Það eru allir velkomnir, ekkert VIP. Vonandi sjáum við sem flesta,“ segir Össur. freyr@frettabladid.is Fólk getur dansað af sér rassgatið á Park Nýr skemmtistaður, Park, opnaður í kvöld. Elektrónísk tónlist verður í fyrirrúmi. Arnar og Frímann úr Hugarástandi koma fram í kvöld, auk BenSol. Á laugardaginn mætir Alex Session frá London. Hann hefur notið vinsælda síðustu tíu ár og kom lengi fram undir nafninu Noisses. Sama kvöld kemur plötusnúðurinn Margeir fram. ➜ Arnar og Frímann spila í kvöld ÖSSUR Á PARK Össur Hafþórsson á nýjasta skemmtistað sínum, Park. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Anna á Artótek Sýning opnar í dag. Á sýningu Önnu G. Torfadóttur í Artóteki verða sýnd grafíkþrykk, dúkristur og ljósmyndagrafík. Anna lærði myndlist í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlista- og handíðaskóla Íslands þaðan sem hún lauk námi frá grafíkdeild árið 1987. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fj ölmörgum samsýnin- gum bæði á Íslandi og erlendis. Hugleikur Dagsson flytur uppistand sitt, Djókaín, í Háskólabíói þann 29. nóvember. Miðasala á viðburðinn hefst í dag. Hugleikur hóf uppistandstúr sinn á Höfn í Hornafirði í byrjun septem- ber. Hann hefur einnig komið fram á Egilsstöðum og Akureyri auk fleiri staða. Meðal umfjöllunarefnis Hugleiks á sýningunni er klámvæðingin, íslenska tungumálið, barneignir og hákarlar. „Þetta er hálfgerð „best of“ sýning. Ég fer með efni alveg frá því ég byrjaði í uppistandi. Sýningin er um sjötíu mínútur að lengd, nema ég sé æstur og tali hratt, þá gæti hún orðið styttri,“ sagði Hugleikur um sýninguna. Djókaín er bannað börnum yngri en 13 ára. Hugleikur Dagsson með uppistand í Háskólabíói: Djókaín til Reykjavíkur TIL REYKJA- VÍKUR Hugleikur Dagsson flytur uppistand sitt í Háskólabíói í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON www.odalsostar.is TINDUR OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM Nýjasti meðlimur Óðalsfjölskyldunnar er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu einkennandi þétta bragði hefur verið náð. Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér. Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur hann fátt yfirgnæfa sig. HYDROXYCUT WILDBERRY 21 BRÉF KR PK ÁÐUR 5.990 KR www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Grandi· Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss | Kræsingar & kostakjör

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.