Fréttablaðið - 01.11.2013, Síða 72
1. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 48
DOMINOS KARLA
VALUR - KEFLAVÍK 76-94 (39-50)
Stigahæstir: Ragnar Gylfason 20, Chris Woods 14,
Rúnar Ingi Erlingsson 12, Birgir Björn Pétursson
11 - Michael Craion 21/21 frák./3 varin, Arnar
Freyr Jónsson 19/6 stoðs./5 stolnir, Darrel Lewis
16, Þröstur Leó Jóhannsson 9, Gunnar Ólafsson 9.
GRINDAVÍK - ÍR 98-73 (50-44)
Stigahæstir: Jóhann Árni Ólafsson 29/8 frák./6
stoðs., Sigurður Gunnar Þorsteinsson 21/9
frák./6 stoðs., Þorleifur Ólafsson 15, Jón Axel
Guðmundsson 9/7 frák./5 stoðs. - Sveinbjörn
Claessen 19, Hjalti Friðriksson 15/10 frák., Terry
Leake Jr. 14/12 frák., Björgvin Ríkharðsson 9.
OLÍS DEILD KVENNA
FRAM - VALUR 19-24 (11-12)
Mörk Fram (skot): Ragnheiður Júlíusdóttir 9
(25), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 4/2 (10/3), María
Karlsdóttir 3 (3), Kristín Helgadóttir 1 (1), Hekla
Rún Ámundadóttir 1 (2), Hafdís Shizuka Iura 1 (3),
Varin skot: Hildur Gunnarsdóttir 7 (21, 33%),
Sunneva Einarsdóttir 4/1 (14/1, 29%),
Mörk Vals (skot): Kristín Guðmundsdóttir 7
(11/1), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 5 (6/1),
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5 (9), Karólína
Bærhenz Lárudóttir 2 (4), Ragnhildur Rósa
Guðmundsdóttir 2 (6), Rebekka Rut Skúladóttir 2
(6), Íris Ásta Pétursdóttir 1 (5).
Varin skot: Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir 11 (19,
58%), Guðný Jenný Ásmundsdóttir 4 (15/2, 27%).
HM KVENNA Í FÓTB.
SERBÍA - ÍSLAND 1-2
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (19.), 0-2 Katrín
Ómarsdóttir (43.), 1-2 Marija Ilić (68.),
Lið Íslands: Þóra Björg Helgadóttir - Dóra María
Lárusdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Anna Björk
Kristjánsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir - Sara
Björk Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir - Katrín
Ómarsdóttir (80. Fanndís Friðriksdóttir), Margrét
Lára Viðarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir (64.,
Dagný Brynjarsdóttir) - Harpa Þorsteinsdóttir (80.
Guðmunda Brynja Óladóttir).
DANMÖRK - SVISS 0-1
0-1 Ramona Bachmann (26.)
Stigin: Sviss 9, Ísrael 3, Ísland 3, Danmörk 1,
Serbía 1, Malta.
Sannfærandi hjá Valskonum í Safamýri HANDBOLTI Valskonur komust á
toppinn í Olís-deild kvenna eftir
öruggan fimm marka sigur á
Íslandsmeisturum Fram, 24-19, í
Safamýrinni í gærkvöldi. Valur
hefur eins marks forskot á
Stjörnuna sem á leik inni.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er
kominn á fullt hjá Val eftir fæð-
ingarorlof og munar mikið um
það. Kristín Guðmundsdóttir var
markahæst með sjö mörk. Hin 16
ára Ragnheiður Júlíusdóttir skor-
aði níu mörk fyrir Fram. - óój
NÍU MÖRK Ragnheiður Júliusdóttir hélt Fram á floti í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
visir.is
Frekari umfjöllun
um leikinn í gærkvöldi
KÖRFUBOLTI Njarðvík og KR
mætast í Ljónagryfjunni kl. 18.00 í
kvöld í 32 liða úrslitum Powerade-
bikars karla í körfubolta.
Það er því stutt á milli
stórleikja í Ljónagryfjunni því
vikan þar byrjaði á frábærum
leik Njarðvíkur og Keflavíkur í
Domino‘s-deildinni á mánudag þar
sem gestirnir úr Keflavík skoruðu
sigurkörfuna í blálokin.
Njarðvíkingar eiga því á hættu
að tapa fyrir tveimur erkifjendum
á heimavelli á fimm dögum og það
er öruggt að Logi Gunnarsson og
Njarðvíkurhúnarnir ætla ekki að
láta það gerast.
Mótherjarnir eru hins vegar
ekki af lakari gerðinni því KR-liðið
hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína í
Domino‘s-deildinni, þar af 15 stiga
sigur í Hólminum í síðustu umferð
þar sem Pavel Ermolinskij var
með tröllaþrennu.
Augun verða á Pavel í kvöld því
það má líta á leikinn sem einvígi
i hans og Njarðvíkingsins Elvars
Más Friðrikssonar sem uppgjör á
milli tveggja af bestu en jafnframt
ólíkustu leikstjórnendum. - óój
Stutt á milli
stórleikjanna
PAVEL ERMOLINSKIJ Var með glæsi-
lega í síðasta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Freyr Alexandersson og
stelpurnar hans í kvennalandslið-
inu eru komin á blað í 3. riðli und-
ankeppni HM 2015 eftir 2-1 sigur
í kaflaskiptum leik í Serbíu í gær.
Íslenska liðið skoraði bæði mörk-
in sín í fyrri hálfleik en gaf síðan
færi á sér í seinni hálfleik þegar
serbneska liðið var meira með
boltann.
„Við áttum frábæran fyrri
hálfleik og það er langt síðan
liðið hefur spilað eins vel og í
fyrri hálfleik. Við vorum mjög
hreyfanlegar, sköpuðum fullt
af flottum marktækifærum.
og héldum boltanum mjög vel,“
sagði Margrét Lára Viðarsdóttir,
fyrirliði íslenska landsliðsins,
eftir leikinn. Margrét Lára skoraði
fyrra mark Íslands á 19. mínútu
en það síðara skoraði Katrín
Ómarsdóttir tveimur mínútum
fyrir hálfleik.
„Við beittum hápressu í fyrri
hálfleiknum og það fór svolítið
mikil orka í það. Við duttum niður í
seinni hálfleiknum en við spiluðum
mjög góða vörn allan leikinn og
Þóra var frábær í markinu í seinni
hálfleiknum og bjargaði okkur þá
nokkrum sinnum. Sigurinn var
mjög sanngjarn og kærkominn,“
sagði Margrét Lára.
Þetta var lokaleikur liðsins á
árinu en átta af tíu leikjum liðsins
í riðlinum fara fram á árinu
2014. „Við fáum góða æfingaleiki
á Algarve í mars. Við erum lið
á uppleið og munum bara vaxa.
Þessi sigur gefur okkur aukið
sjálfstraust og gefur okkur von
um að halda draumnum á lífi að
komast á HM. Þetta var gríðarlega
mikilvægur sigur,“ segir Margrét.
Sviss vann 1- 0 sigur á
Danmörku í gær og er með fullt
hús (9 stig) og sex stiga forskot
á næstu lið í riðlinum. „Auðvitað
stefnum við alltaf á fyrsta sætið
í riðlinum en eins og staðan er í
dag þá er raunhæfara fyrir okkur
að setja stefnuna á að ná öðru
sætinu. Danmörk verður okkar
helsti andstæðingur í framhaldinu
eins og þetta lítur út í dag,“ segir
Margrét Lára.
Margrét Lára hefur verið í
leiðtogahlutverki hjá landsliðinu í
mörg ár en bar nú fyrirliðabandið
í fyrsta sinn. „Ég fann það alveg
að þetta gaf mér svolítið extra. Ég
er búin að vera í þessu liði í ellefu
ár og hafa sama hlutverkið nær
allan tímann. Það er gaman fyrir
mig að fá nýja áskorun og nýtt og
stærra verkefni. Þetta er mikill
heiður og vonandi á þetta bara
eftir að þroska mig enn frekar
sem leikmann,“ sagði Margrét
Lára. En var hún búin að bíða eftir
fyrirliðabandinu?
„Katrín er búin að vera fyrirliði
þessa liðs og hefur sinnt því alveg
einstaklega vel. Það er gríðarlegur
heiður að fá að leiða besta lið
Íslands í knattspyrnu út á völlinn.
Það er einstakt og vonandi get
ég sinnt því hlutverki vel,“ sagði
Margrét Lára sem var að leika
sinn 94. landsleik í Belgrad í gær.
Íslenska liðið hefur aldrei náð
betri árangri en á árinu 2013 þegar
liðið varð meðal átta bestu liðanna
á Evrópumótinu í Svíþjóð.
„Þetta er búið að vera frábært
ár. Við komust í átta liða úrslit á
EM og svo erum við á lífi í und-
ankeppni HM. Við erum lið á upp-
leið og hlökkum til næsta árs. Það
er frábært að ná að vinna þennan
mikilvæga lokaleik á árinu og það
gefur okkur aukinn kraft fyrir
framhaldið,“ sagði Margrét Lára
að lokum.
ooj@frettabladid.is
Við hlökkum til næsta árs
Íslenska kvennalandsliðið vann 2-1 útisigur á Serbíu í gær í lokaleiknum á eft irminnilegu ári. Þetta var fyrsti
sigur liðsins undir stjórn Freys Alexanderssonar og fyrsti leikur Margrétar Láru Viðarsdóttur sem fyrirliða.
71. LANDSLIÐSMARKIÐ Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar hér marki sínu ásamt liðsfélögum sínum en hún skoraði í fyrsta leik
sínum sem fyrirliði liðsins. MYND/KSÍ/HILMAR ÞÓR GUÐMUNDSSON
SPORT
HANDBOLTI „Liðið hefur æft vel
undanfarna daga,“ segir Aron
Kristjánsson, landsliðsþjálfari
Íslands, en liðið mætir því aust-
urríska í tveimur vináttuleikjum
ytra í kvöld og á morgun. Fyrri
leikurinn fer fram í Linz í kvöld
og hefst klukkan 19.20.
„Við erum klárir í leikina. Vissu-
lega myndi maður vilja hafa full-
skipaðan leikmannahóp en forföll-
in eru mikil að þessu sinni. Nú fá
aðrir leikmenn tækifærið og von-
andi nýta þeir það.“
Alexander Petersson, Aron
Pálmarsson, Arnór Þór Gunnars-
son og Ingimundur Ingimundar-
son eru allir fjarri góðu gamni
vegna meiðsla. Þá getur Rúnar
Kárason ekki tekið þátt í verk-
efninu af persónulegum ástæðum.
Þórir Ólafsson sneri sig á ökkla á
æfingu í vikunni.
„Þórir gat tekið þátt í æfingu í
morgun og mun líklega koma við
sögu í leikjunum gegn Austur-
ríki.“
Hægri skyttustaðan er stórt
spurningarmerki fyrir leikina
gegn Austurríkismönnum en tvær
örvhentar skyttur eru ekki með
vegna meiðsla. Það mun því mikið
mæða á Ásgeiri Erni Hallgríms-
syni í leikjunum en hann hefur
lítið fengið að spreyta sig með
félagsliði sínu PSG á tímabilinu.
Aron hefur því áhyggjur af litlum
spilatíma hans.
„Við verðum að horfa til fram-
tíðar og viljum sjá ákveðna leik-
menn í þessum leikjum. Árni
Steinn [Steinþórsson], leikmaður
Hauka, hefur staðið sig frábær-
lega á æfingum síðastliðna daga
og er greinilega mjög einbeittur
fyrir þessu verkefni.“ Árni leikur
í hægri skyttustöðu með Haukum.
Gunnar Steinn Jónsson, leik-
maður Nantes í Frakklandi, og
Fannar Þór Friðgeirsson, leik-
maður Grosswallstadt í Þýska-
landi, voru ekki valdir í landsliðs-
hópinn fyrir leikina. Róbert Aron
Hostert var aftur á móti valinn í
hópinn en Róbert leikur með ÍBV
í Olís-deildinni.
„Í dag erum við með frábæra
leikstjórnendur sem allir geta
leyst þessa stöðu vel. Snorri
Steinn Guðjónsson er leikstjór-
nandi íslenska landsliðsins og
hefur sinnt þeirri stöðu einstak-
lega vel undanfarin ár. Aron
Pálmarsson, Arnór Atlason og
Ólafur Bjarki [Ragnarsson] eru
einnig allir mjög frambærilegir
leikstjórnendur og því erum við
ekki á flæðiskeri staddir þegar
kemur að þeirri stöðu. Ég ákvað
aftur á móti að velja Róbert Aron
í hópinn til að gefa honum tæki-
færi til að sýna sig. Hann hefur
spilað vel með ÍBV á tímabilinu.
Við sjáum hann sem framtíðar-
leikmann en menn verða ein-
hvers staðar að byrja og núna er
tækifæri fyrir hann. Þessir leik-
menn eru einfaldlega hættulegri
en aðrir og því valdir í hópinn.“
Patrekur Jóhannesson, þjálfari
Hauka, er einnig landsliðsþjálf-
ari Austurríkis.
„Ég þekki Patta vel og því verður
gaman að mæta honum á morgun.
Þetta austurríska lið er vel mann-
að og er til að mynda ekki með
sömu forföll og við fyrir þessa
leiki. Við munum líklega mæta
þeirra sterkasta liði, sem verð-
ur góð prófraun fyrir okkar leik-
menn.“
stefanp@frettabladid.is
Verðum að horfa til framtíðar
Íslenska landsliðið í handknattleik mætir því austurríska í tveimur æfi ngaleikjum í kvöld og á morgun.
MIKIL FORFÖLL Aron Kristjánsson er nokkuð bjartsýnn fyrir leikina gegn Austurríki
þrátt fyrir töluverð forföll leikmanna vegna meiðsla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson handknattleiks-
dómarar hafa fengið það verkefni að dæma í Asian Club
League Championship en parið var valið af alþjóða
dómarasambandinu IHF.
Mótið fer fram í Katar í nóvember og dvelja dómar-
arnir þar frá 6. nóvember til 22. nóvember meðan á
mótinu stendur.
Alls verða tíu dómarapör starfandi á mótinu
en aðeins þrjú pör koma frá Evrópu og því er
þetta mikill heiður fyrir Íslendingana.
Anton Gylfi dæmdi árum saman ásamt Hlyni
Leifssyni og voru þeir eitt besta dómarapar
á Íslandi í áraraðir en Hlynur lagði flautuna
á hilluna í vor og tók því Anton saman við
Jónas.
Dæma í asísku Meistaradeildinni