Fréttablaðið - 19.11.2013, Side 8
19. nóvember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Rauðir dagar 18.-22. nóvember
Hvað tekur langan tíma
að læra á Netbankann
og Íslandsbanka Appið?
Komdu í útibúið þitt og lærðu á Netbankann
og Íslandsbanka Appið.
Alla daga vikunnar kl. 12.15-12.45
Við bjóðum
góða þjónustu
2 mínútur 6 mínútur 15 mínútur30 mínútur
www.hi.is
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
– FYRIRTÆKI VERÐUR TIL –
Vísindi og nýsköpun í augsýn
Risk, Oculis og Oxymap
Í fimmta erindi fyrirlestraraðarinnar Fyrirtæki verður til
rannsóknum í augnlækningum. Fyrirtækin eru Risk, Oculis .
Einar Stefánsson, prófessor í augnlækningum, kemur við sögu við
stofnun fyrirtækjanna þriggja en hann er mikilvirkur vísindamaður á sviði
augnlækninga. Einar hefur beitt sér sérstaklega í nýsköpun og stofnun
sprotafyrirtækja sem byggjast á vísindalegum grunni. Hann mun
fara yfir tilurð fyrirtækjanna og ræða um tengsl vísinda og nýsköpunar.
Risk ehf. þróar áhættureiknivél sem metur áhættu sykursjúkra á
augnsjúkdómum og sjónskerðingu.
Oculis ehf. vinnur með nanóagnir í augndropum til að bæta lyfjameðferð
við ýmsum algengum augnsjúkdómum.
Oxymap ehf. þróar tækjabúnað sem getur metið blóðþurrðarsjúkdóma í
augnbotnum með stafrænni myndvinnslu.
Miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 12.00 í Hátíðasal Háskóla Íslands.
verður fjallað um þrjú
fyrirtæki sem öll hafa sprottið úr frjóum jarðvegi Háskóla Íslands og tengjast
og Oxymap
Nánari upplýsingar má finna
á hi.is/fyrirtaeki_verdur_til
PIPA
R
\
TBW
A
SÍA
133397
FÉLAGSMÁL Góður árangur í forvarn-
arstarfi í grunnskólum hefur skil-
að góðum árangri, en vandinn er
sá að aðeins hefur tekist að seinka
neyslunni, segir Viðar Halldórsson,
félagsfræðingur hjá Rannsóknum &
greiningu.
„Áfengisneyslan hefur snar-
minnkað í grunnskólunum síðustu
ár, en vandinn er sá að það er búið
að seinka neyslunni þar til krakk-
arnir fara í framhaldsskóla,“ segir
Viðar. Hann
m u n h a l d a
erindi um for-
varnir á for-
eldradegi Heim-
ilis og skóla sem
haldinn verð-
ur á föstudag
í Menntaskóla
Borgarfjarðar.
Hann segir að
þeir sem unnið
hafi gott forvarnarstarf í grunn-
skólum landsins á undanförnum
árum og áratugum þurfi nú í aukn-
um mæli að beina kröftunum að
ungu fólki á framhaldsskólaaldri.
„Viðhorf foreldranna breyt-
ast mikið þegar krakkarnir fara
í framhaldsskóla. Þeir líta frek-
ar svo á að það sé í lagi að drekka
áfengi þegar krakkarnir eru komn-
ir í menntaskóla,“ segir Viðar.
Hann segir börnin skynja þessa
viðhorfsbreytingu foreldra sinna
og hún hafi áhrif á þau. „Þegar
þau koma í framhaldsskóla koma
þau inn í nýjan veruleika þar sem
þetta virðist vera í lagi.“
Hann segir þörf á viðhorfs-
breytingu til ungs fólks í fram-
haldsskólum. „Þó krakkarnir fari
í framhaldsskóla eigum við ekki
að gefa okkur að allt breytist, og
að þetta sé tímapunkturinn sem
þetta sé orðið í lagi,“ segir Viðar.
Hann segir að góður árang-
ur hafi náðst í að seinka því að
grunnskólakrakkar byrji að
drekka áfengi, og nú sé verkefnið
að seinka því að framhaldsskóla-
nemar byrji að drekka. Rann-
sóknir sýni að því eldra sem fólk
sé þegar það byrji að drekka
áfengi, því minni líkur séu á því
að það lendi í vandræðum með
neysluna.
brjann@frettabladid.is
Áfengisneyslu seinkað
fram í framhaldsskóla
Eftir góðan árangur af forvörnum í grunnskólum þarf að beina sjónum að áfengis-
neyslu í framhaldsskólum, segir félagsfræðingur. Viðhorf foreldranna breytast
þegar börn fara í framhaldsskóla. Tímapunktur sem allt breytist hjá krökkunum.
VIÐAR
HALLDÓRSSON
Rannsóknir á áhrifum íþróttaiðkunar á áfengisneyslu ungs fólks benda til þess
að það sé ekki íþróttaiðkunin sem slík sem hefur forvarnargildi, heldur velti
það á skipulagi íþróttastarfseminnar, segir Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
hjá Rannsóknum & greiningu. Forvarnaráhrifin koma eingöngu af skipulögðu
félagsstarfi þar sem hefðir, saga, reglur, þjálfarar og foreldrastarf vinna saman,
segir Viðar. Hann segir að þeir sem eru í óskipulögðum íþróttum séu jafnvel
líklegri en jafnaldrarnir til að neyta áfengis. Dæmi um óskipulagðar íþróttir
eru ferðir á líkamsræktarstöðvar, skíðasvæði eða bara á körfuboltavöll með
vinunum þar sem ekki er formleg umsjón með íþróttaiðkuninni.
Save the Children á Íslandi
FLÓRÍDA, AP Rannsóknarfarinu
Maven var skotið út í geiminn
áleiðis til plánetunnar Mars í gær.
Farinu er ætlað að svipta hulunni
af leyndardóminum á bak við lofts-
lagsbreytingar plánetunnar.
Áætlað er að Maven lendi á Mars
næsta haust eftir að hafa ferðast
yfir sjö hundruð milljón kílómetra.
Vísindamenn vilja komast að því
hvers vegna loftslagið á Mars fór
úr því að vera hlýtt og rakt fyrstu
eitt þúsund milljón árin, yfir í það
að vera kalt og þurrt eins og það
er í dag.
„Við viljum vita hvað gerðist,“
sagði Michael Meyer, vísinda-
maður hjá bandarísku geimferða-
stofnuninni, NASA. Rannsóknar-
farið verður á sporbaug um Mars
og mun eyða einu ári í að rannsaka
lofthjúpinn eftir að það nær áfanga-
stað 22. september á næsta ári.
Þetta er í 21. sinn sem NASA
sendir rannsóknarfar á Mars
síðan ferðirnar hófust á sjöunda
áratugnum. Þetta er aftur á móti
fyrsta farið sem er eingöngu sent
til að rannsaka loftslagið á plánet-
unni. - fb
NASA rannsakar loftslagsbreytingar á Mars:
Rannsóknarfarinu
Maven skotið á loft
MAVEN Rannsóknarfarinu Maven var skotið á loft í gær. NORDICPHOTOS/AFP
➜ Ekki íþróttirnar sem hafa forvarnaráhrif