Fréttablaðið - 19.11.2013, Side 18

Fréttablaðið - 19.11.2013, Side 18
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 „Kengúrumeðferð er bráðnauð- synleg fyrir fyrirbura og dugar oft betur en dýr bráðaþjónusta,“ segir prófessor Joy Lawn við London School of Hygiene and Tropical Medicine. Viðtal við Lawn er birt á fréttavef BBC. 15 milljónir barna fæðast ár hvert fyrir 37. viku meðgöngu og af þeim deyr ein milljón. Af þeim sem lifa eru um 3 prósent tölu- vert eða mikið skert og 4,4 pró- sent lítið skert. „Í dag er gengið út frá því að fyrirburi þurfi á bráðaþjónustu að halda. Stað- reyndin er hins vegar sú að 85 prósent fyrirbura eru fædd sex vikum eða minna fyrir tímann. Þeir þurfa hjálp við að nærast, viðhalda hitastigi og eru líklegri til að fá sýkingar,“ segir Lawn og bendir á að kengúrumeðferð henti vel slíkum börnum. „Það er aðeins ef börn fæðast fyrir 32. aðra viku meðgöngu að þau þurfa hjálp við að anda enda lungun vanþroskuð,“ segir hún. Kengúrumeðferð er notuð víða í vanþróuðum löndum þar sem gjörgæsla er ekki í boði. Nú er talið að meðferðin sé mikilvæg öllum fyrirburum, hvar sem þeir fæðast. Með því að setja barnið nakið upp við húð foreldris getur það komið reglu á andardrátt, hitastig og hjartslátt. Þá getur það aukið líkur á vel heppnaðri brjóstagjöf sem aftur minnkar líkur á sýkingum. KENGÚRAN BJARGAR Kengúrumeðferð bjargar fyrirburum um heim allan. Meðferðin felst í því að móðir ber nýfætt barnið innanklæða til að halda á því hita og örva það. FYRIRBURI Að liggja upp við húð móður hefur afar góð áhrif á fyrirbura. Oft er hvatt til þess að konur taki sig á til að komast í kjólinn fyrir jólin. Þótt aðeins séu fimm vikur til jóla er enn möguleiki til þess. „Mjög mikilvægt er að hafa sjálfstraust ef kon- ur vilja komast í kjólinn fyrir jólin,“ segir Tanya. „Huga þarf að heilsunni en jafnframt fegurðinni. Það er mögulegt að fá minni maga til dæmis með því að fara á lágkolvetnakúrinn í fjórar vikur, sleppa hveiti og sykri. Það hefur ótrúleg áhrif á þyngdina. Mér finnst kvenlegt að hafa smá læri og bossa, að hafa línur. Flestar viljum við þó hafa stinnari læri og rass og það krefst þjálfunar,“ segir Tanya. „Pilates er mjög gott æfingakerfi til að fá stinnari líkama, sérstaklega um sig miðja. Einhvers konar styrktarþjálfun er góð með, til dæmis að lyfta lóðum eða stöng. Það er líka hægt að styrkja sig með því að nota líkamann, til dæmis með því að dansa Zumba. Dansinn kemur okkur í gott skap í skammdeginu og gefur orku. Þjálfun þrisvar í viku er ákjósanleg og hentar flestum. Það eru allir svo upp- teknir að erfitt getur reynst að finna tíma daglega. Mikilvægt er þó að hafa þjálf- unina fjölbreytta, annars verður maður leiður. Jóga er mjög gott fyrir þá sem eru jólastressaðir,“ segir Tanya enn fremur og bætir við að gott sé að miða við að mittismálið sé undir 85 cm. „Ungar konur með lítil börn geta líka hreyft sig þótt lítill tími gefist. „Þá er sniðugt að gera æfingar með barninu. Setja það á „hestbak“ á sjálfum sér, gera hnébeygjur, framstig og dans. Barninu finnst þetta skemmtilegt og leikfimin verður því eins og fjölskylduleikur. Það er mjög sniðugt að hreyfa sig með börnunum, til dæmis fara út á sleða í snjónum, eða í göngutúr. Það er bæði heilsusamlegt og brennir kaloríum. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Líkamsræktin þarf bara að vera hluti af daglegri rútínu. Sumum konum finnst gott að koma í ræktina klukkan sex á morgnana áður en börnin vakna en það krefst mikils aga og að fara snemma að sofa á kvöldin. Einungis þarf 30 mín- útur á dag til að koma sér í gott form,“ segir Tanya sem opnaði Heilsuskóla Tanyu í ágúst síðastliðnum. Skólinn er í Furugrund í Kópavogi en hún leigir þar aðstöðu með Josy Zareen sem kennir maga- og Bollywood-dans. „Þetta er lítill og heimilislegur staður, engin æfinga- tæki, aðeins lóð og eigin líkami.“ elin@365.is Í KJÓLINN FYRIR JÓLIN ÁTAK Tanya Dimitrova líkamsræktarkennari hefur komið konum í gott form hér á landi í 24 ár. Hún segir að vel sé hægt að koma sér í ágætt form fyrir jólin. Ekki þurfi endilega að fara í líkamsræktarstöð til þess. TANYA Að vera vel á sig kominn líkamlega eykur sjálfstraust og bætir heilsuna. ÆFINGAR HEIMA Tanya segir að vel sé hægt að gera æfingar heima. Kemur út 26. nóvember Atli Bergmann atlib@365.is S. 512 5457 897 9144 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbirgir@365.is S. 512 5432 694 9150 Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is S. 512 5447 663 4055 Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is S. 512 5434 695 4999 Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is S. 512 5429 615 4349 Bókið auglýsingar tímanlega: Meðal efnis í blaðinu: Jólaljósin, kökur, sætindi, skraut, föndur, matur, borðhald, jólasiðir, jólagjafir og venjur. JÓLAGJAFAHANDBÓK FRÉTTABLAÐSINS STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Opið í dag frá kl. 11 - 21 Við erum á Facebook Verslunin er 25 ára í dag og býður af því tilefni 25% afsl. í dag, þriðjudag

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.