Fréttablaðið - 19.11.2013, Blaðsíða 31
„Ég sendi handrit myndarinn-
ar í handritakeppni í Amer-
íku fyrir tveimur árum og
það fékk mjög góðar undir-
tektir. Ég hugsaði þetta ekki
sem keppni heldur vildi fá
álit annarra handritshöf-
unda. 2.500 handrit voru
send í keppnina en aðeins
tuttugu komust áfram í und-
anúrslit, þar á meðal hand-
ritið mitt. Það er ansi góður
árangur miðað við að handrit-
ið var enn í smíðum á þessum
tíma,“ segir Björn Brynjúlf-
ur Björnsson. Hann leikstýr-
ir einnig myndinni sem ber
nafnið 800 en óvíst er hvenær
tökur hefjast. Búið er að taka
upp stiklu sem verður notuð
til að fjármagna myndina en
framleiðslufyrirtækið Saga-
film mun framleiða hana.
„Við fengum stuðning frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands
til að taka upp stiklu fyrir
myndina og kláruðust tökur
í síðustu viku. Hugmyndin
er að fjárfestar viti hvað þeir
eru að fara út í þegar þeir
lesa handritið og sjá stikluna.
Sama má segja um leikara,“
segir Björn. Myndin gerist á
Íslandi árið 800 og eru írskir
munkar í aðalhlutverki. Vík-
ingar í leit að fjársjóði koma
líka við sögu en allt bendir
til að leikarar verði af ýmsu
þjóðerni og að töluð verði
enska, norska og íslenska í
myndinni.
liljakatrin@frettabladid.is
Finna fj árfesta fyrir bíómynd
Björn Brynjúlfur skrifar handrit og leikstýrir kvikmyndinni 800 á Íslandi.
VANUR MAÐUR Björn leikstýrði meðal annars Kaldri
slóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Góðar uppskriftir ganga kynslóð fram af kynslóð.
Minningin um uppáhaldskökuna sem amma bakaði
fylgir okkur alla tíð. Bragðið, lyktin úr ofninum ...
Kökurnar verða ljómandi með Ljóma.
Ljóma smjörlíki er eingöngu
framleitt úr jurtaolíum og án
transfitu.
Taktu þátt í Ljómaleiknum á Facebook – Facebook.com/ljomasmjorliki
Glæsileg Kenwood hrærivél í verðlaun.
PPII
PPPPPPAAAA
RRRR
\\\\
TTTTTTTBBB
WWW
AAA
SSSSÍÍÍÍ
AAAA
➜ Kærasta Arons Einars
Gunnarssonar auglýsir breskar
perur í ljósabekki.
➜ Hannes Þ. Halldórsson
aðalmarkvörður leikstýrði þátt-
unum Atvinnumennirnir okkar
og heimsótti meðal annars Eið
Smára Guðjohnsen. Við tökur
á þættinum um Eið kom í ljós
að undirbúningur Hannesar,
sem þá lék með Fram, var
mun alvarlegri en undirbún-
ingur Eiðs Smára fyrir leik gegn
Real Madrid. Hannes slökkti
þá á símanum sínum og tók
göngutúr í Laugardalnum, á
meðan Eiður var sallarólegur
og eyddi deginum með þátt-
arstjórnanda og tökumönnum
þáttarins.
➜ Jóhann Berg Guðmunds-
son var efnilegur í tölvuleikn-
um Counter Strike á sínum
yngri árum. Áhugi hans á
leiknum gekk svo langt að
hann tók þátt í Skjálfta, sem er
eins konar Íslandsmót í leikn-
um. Jóhann Berg var einnig
gítarleikari í rokkhljómsveit á
grunnskólaárum sínum.
➜ Birkir Már Sævarsson,
hægri bakvörður, er bróður-
sonur Gunnleifs Gunnleifsson-
ar varamarkmanns. Birkir Már
er sonur Sævars Gunnleifsson-
ar, sem er eldri bróðir Gunn-
leifs. Birkir er mikill Valsari og
er með merki félagsins flúrað
á líkama sinn.