Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 2
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Hilmar, eignast Vestmanna- eyingar þá sinn eigin súlustað? „Nei, þetta verður stólpastaður.“ Hilmar Kristjánsson hyggur á að byggja veitingahús við höfnina í Vestmannaeyjum, sem mun standa á súlum – eða stólpum. SVEITARSTJÓRNARMÁL „Þetta er ekki lengur eins og í Kardimommubæn- um nú er þetta eins og hjá dýrunum í Hálsaskógi,“ segir Þorgils Torfi Jónsson sem situr í meirihluta sveit- arstjórnar Rangárþings ytra. Miklar væringar hafa verið í sveitarstjórninni síðustu daga og vikur og raunar mun lengur. Þar hefur meðal annars verið tekist á um uppsögn starfsmanns og tölvu- kaup fyrir grunnskólann. „Það verður að viðurkennast að við höfum oft deilt og það er búið að vera alvega skelfilega leiðinlegt andrúmsloft hjá okkur undanfarna mánuði, misseri og ár,“ segir Þor- gils Torfi. Hann segir að nú hafi menn tekið ákvörðun um að láta persónuleg- ar deilur víkja fyrir hagsmunum íbúa sveitarfélagsins. „Við töluðum saman, það var gott samtal menn voru einlægir á þeim fundi,“ segir Þorgils Torfi. Guðmundur Ingi Gunnlaugsson oddviti segir að sam- starfið innan meirihlutans sé gott núna. Verið sé að ljúka við fjárhagsáætlun næsta árs. „Samstarfið er gott þó við séum ekki sammála um allt. En við ræðum málin og komumst á endanum að niðurstöðu,“ segir hann. - jme Deilur í meirihlutanum í sveitarstjórn Rangárþings ytra settar niður á fundi: Dýrin í skóginum orðin vinir ÞORGILS TORFI JÓNSSON GUÐMUNDUR INGI GUNNLAUGSSON HEILBRIGÐISMÁL Yfir milljarði króna þarf að verja til tækjakaupa á Landspít- alanum til að viðhalda núverandi tækja- kosti, en til að uppfæra kostinn eftir margra ára fjársvelti þarf enn frekari fjármuni. Þetta kemur fram í grein sem sex læknar á Landspítala skrifa í Frétta- blaðið í dag. Meðal greinarhöfunda er Tómas Guðbjartsson, yfirlæknir á skurðdeild, sem segir í samtali að gangi áætlanir í fjárlagafrumvarpi eftir verði óumflýjanlegt að draga úr þjónustu spítalans. „Við vonumst innilega til þess að sú verði ekki raunin þar sem okkur hefur fundist umræðan í þjóðfélaginu hafa snúist okkur í hag og að það sé vilji hjá almenningi og stjórnmálamönnum til að veita auknu fé til Landspítalans,“ segir Tómas. „Það er hins vegar alveg ljóst að ef það kemur ekki til, þurfum við annað- hvort að færa rannsóknir eða aðgerðir út af spítalanum, jafnvel til útlanda og það hugnast okkur læknum ekki og ég held að það sama gildi um almenning.“ - þj / sjá síðu 20 Sex læknar segja 1,5 milljarða króna vanta í tækjakaup og skora á ríkisstjórnina að grípa til aðgerða: Lýsi yfir tafarlausri endureisn Landspítala FRÉTTA- BLAÐIÐ Í DAG „Stjórn- völd verða tafarlaust að lýsa því yfir að hafin sé endurreisn Landspítala,“ segir í grein læknanna sex. SAMFÉLAG „Það er rosalega sorg- legt að horfa í augun á bróður sínum og biðja til guðs að hann verði handtekinn,“ segir Inga Birna Dungal, einn af stofnendum nýs félags um málefni útigangs- fólks. Bróðir Ingu Birnu er 26 ára gamall og hefur verið í óreglu og afbrotum frá því hann var barn. „Í gegnum tíðina þegar ég hef reynt að hjálpa honum hef ég komið að lokuðum dyrum. Ég nefni nafn hans við starfsmenn stofnana og það vill enginn hjálpa. Það er eins og fólk bíði eftir að hann bróð- ir minn deyi því þá er hann ekki vandamál lengur og aðstandendur losna úr þessari kvöl.“ Inga Birna fagnar stofn- un félagsins og vonar að það geti hjálpað fagfólki í kerfinu að aðstoða þessa einstaklinga. Félagið verður regnhlífarsam- tök fyrir ógæfufólk af öllu tagi, aðstandendur þeirra, áhugamenn og starfsmenn í málaflokknum. „Það eru fáir sem geta staðið upp fyrir þeim sem geta ekki stað- ið sjálfir í fæturna. Bróðir minn tilheyrir litlum hópi manna sem fara inn og út úr fangelsi,“ segir Birna sem kveður bróðurinn hafa náð að halda sér edrú í fangels- inu. „En um leið og hann kemur út er hann kominn á götuna og fer í afbrot. Þetta eru mennirnir sem við lesum hrottalegar fréttir um í blöðunum, alltaf sömu mennirnir. Vandamálið er að þeir fá enga upp- byggilega hjálp og allir hafa gefist upp á þeim.“ Inga Birna vill stórefla for- varnir fyrir þennan hóp. „Þetta eru menn sem báru þess merki strax sem börn að þeir yrðu utan- garðs eða í vandræðum. Það er búið að horfa á vandamálið vaxa með hverju árinu en aldrei gripið almennilega inn í. Við gætum fækk- að glæpum um helming með því að hlúa betur að börnunum. Það verða sífellt minni líkur á því eftir því sem þeir eldast og glæpirnir verða alltaf alvarlegri.“ Inga Birna segir bróður sinn af og til vilja hjálp og breyta lífi sínu. En þá komi hann alls staðar að lok- uðum dyrum. Það vanti úrræði þegar fólkið opnar sjálft fyrir hjálp. „Það vantar skilorðsfulltrúa, einhverja til að fylgja þeim út í lífið eftir fangelsi. Fangelsisstofn- un veit vel að bróðir minn er heim- ilislaus þegar hann losnar úr fang- elsi en honum er samt hent þangað. Það þarf að kenna þeim á lífið, það eina sem þeir kunna eru afbrot og sjálfsmynd þeirra endurspeglast í fréttum af glæpum þeirra í fjöl- miðlum.“ erlabjorg@frettabladid.is Eins og það sé beðið eftir að hann bróðir minn deyi Stofnun félags um málefni útigangsfólks er í undirbúningi. Inga Birna Dungal er meðal stofnenda. Bróðir hennar á við fíknivanda að stríða og býr á götunni. Inga segir að kenna þurfi útigangsfólki á lífið. AÐSTANDANDI Inga Birna Dungal hefur horft upp á bróður sinn vera utangarðs í samfélaginu frá því hann var lítill drengur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Þetta eru mennirnir sem við lesum hrottalegar fréttir um í blöðunum. Inga Birna Dungal, einn stofnenda nýs félags um málefni útigangsfólks STJÓRNMÁL „Kosningarnar í vor kenndu þjóðinni dýrkeypta lexíu: Það skiptir máli hverjir stjórna,“ sagði Árni Páll Árnason, formað- ur Samfylkingarinnar, á opnum fundi Samfylkingarinnar á Grand Hóteli í gærkvöld. „Á snöggu augabragði var stýr- inu snúið, skattar lækkaðir á vild- arvini og sundrungarpólitíkin inn- leidd,“ sagði Árni meðal annars. „Hættan á japönsku ástandi efnahagslegrar lömunar blasir við, nú þegar spáð er litlum hag- vexti, lítilli fjárfestingu og ofskuldsetningu í atvinnulífi. Þá ætti svarið að vera að opna hag- kerfið og auka samkeppni,“ sagði hann enn fremur. „En kreddukarl- arnir kjósa frekar að loka leiðinni út og hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið.“ - gb Árni Páll á opnum fundi: Segir kreddu- karla við stjórn BANDARÍKIN, AP Risaþota af gerð- inni Boeing 747 lenti fyrir mistök á litlum flugvelli í Kansas á mið- vikudag, skammt frá herflugvelli þar sem hún átti að lenda. Um borð voru tveir flugmenn, engir farþegar en hlutir í vænt- anlega 787 Dreamliner þotu frá Boeing. Þeir áttu að fara til fyrir- tækis í grenndinni, sem framleið- ir stóra parta í nýju þotuna, sem brátt mun líta dagsins ljós. Orsök mistakanna mun liggja í því að flugmaðurinn hafi mislesið lendingarleiðbeiningar, sem hann sjálfur hafði skrifað. - gb Mistök í flugi: Boeing lenti á röngum velli AFTUR Á LOFT Þotan fór á loft í gær, daginn eftir lendingu á röngum velli. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.