Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 34
KYNNING − AUGLÝSINGStéttarfélög FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 20132 Ég lauk grunnnáminu árið 1986 frá Sjúkraliðaskóla Íslands og hef unnið við fagið alla tíð. Þetta er yndislegt og gefandi starf,“ segir Anna María Guð- mundsdóttir, sjúkraliði á hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Anna María nýtti sér möguleika á fram- haldsmenntun sjúkraliða og lauk fram- haldsmenntun í öldrunarhjúkrun árið 2008. Eftir útskrift starfaði hún á St. Jós- efsspítala en hóf svo störf á Sólvangi. Hún segir framhaldsnámið nýtast sér vel. „Það er mikið undir hverjum deildar- stjóra komið hversu vel hann treystir sjúkraliðunum til að sinna hinum ýmsu verkum. Ég er svo heppin að það gerir minn deildarstjóri svo sannarlega og ég axla mun meiri ábyrgð eftir að ég bætti við mig framhaldsnáminu,“ segir Anna María. „Ég hef þó heyrt að víða séu starf- andi sjúkraliðar sem eru búnir að sækja sér framhaldsnám en eru ekki nýttir sem skyldi. Það er synd og hlýtur að eiga eftir að breytast. Þeir eru þá allavega óuppgötvuð auðlind,“ segir Anna María. Á Sólvangi eru þrír sjúkraliðar auk Önnu Maríu með framhaldsmenntun og segir hún menntun þeirra allra nýtta til fulls á hjúkrunarheimilinu. Hún segir álagið geta verið mikið í vinnunni. „Hér er mjög góður andi og manni er treyst en álagið er töluvert. Það er alltaf verið að draga úr mannskap. Starfið sjálft er yndislegt og mjög fjölbreytt. Hér er eng- inn dagur eins og hver vakt ólík annarri en auðvitað vildi maður óska að mönnunin væri meiri.“ Yndislegt starf og gefandi Anna María Guðmundsdóttir, sjúkraliði á Sólvangi, hefur starfað við fagið í tuttugu og sex ár. Hún bætti við sig framhaldsnámi í öldrunarhjúkrun árið 2008 sem hún segir nýtast sér vel í starfinu. Starfið er gefandi og andinn er góður í vinnunni. Álagið getur þó verið mikið. Anna María ásamt Ingibjörgu Valdimarsdóttur, starfsmanni í aðhlynningu, Guðrúnu Hauksdóttur deildarstjóra, Heiðrúnu Guðmundsdóttur sjúkraliða, sem einnig er með framhaldsmenntun í öldrunarhjúkrun, og Ester Magnúsdóttur, starfsmanni í aðhlynningu. Hver dagur er ólíkur öðrum og engin vakt eins, segir Anna María. Hér mælir hún blóðsykur hjá vistmanni á Sólvangi. Anna María Guðmundsdóttir sjúkraliði nýtti sér möguleikann á framhalds- menntun sjúkraliða í Fjöl- braut í Ármúla og lauk fram- haldsmenntun í öldrunarhjúkrun árið 2008. Hún vinnur á Hjúkr- unarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði og segir mennt- unina nýtast sér vel í vinnunni. MYND/DANÍEL „Ég axla mun meiri ábyrgð eftir að ég bætti við mig framhalds- náminu,“ segir Anna María. „ Ég hef þó heyrt að víða séu starfandi sjúkraliðar sem búnir eru að sækja sér framhaldsnám en eru ekki nýttir sem skildi.“ Hér gerist margt sem getur fylgt manni ómeðvitað heim og dagarnir geta verið strembnir. En við vinnum mörg hérna á bráðasviðinu og mórallinn er mjög góður,“ segir Hermann Jónsson, sjúkraliði á slysa- og bráðamóttöku Landspítalans. Hann segir erfitt að lýsa venjulegum degi í vinnunni, hver vakt sé óútreiknanleg og í mörg horn að líta. „Sjúkraliðarnir á bráðamóttökunni taka fyrstu lífsmörk þeirra sem koma inn með sjúkrabíl. Við sjáum einnig um að fylgjast með lífsmörkum sjúklinga eins og læknir segir til um, tökum blóþrýsting, mælum hita, blóðsykur, öndunartíðni og súrefnismettun og tökum hjartalínurit svo eitthvað sé nefnt. Hér ganga hlutirnir hratt fyrir sig og góður sjúkraliði þarf að vera nærgætinn og geta lesið vel í fólk og aðstæður,“ segir Hermann. „Í bráðatilfellum fylgir sjúklingnum oft hópur aðstandenda sem þarf að halda utan um. Þá þarf að lesa í þarfir fólks og setja sig inn í aðstæður. Þeir sem eyða mestum tíma með sjúklingnum eru sjúkraliðarnir. Við fylgjumst með því hvernig honum líður, hvort honum sé heitt eða of kalt, hvort þurfi að hækka undir höfðalaginu, deyfa ljósin og þar fram eftir götunum. Við erum eins og lif- andi monitor. Starf sjúkraliða er algerlega fordómalaust starf. Það eiga allir rétt á sömu þjónustu,“ segir Hermann og viðurkennir að það þurfi jafnaðargeð og sterkar taugar í starf sjúkraliðans. „Maður núllstillir sig algerlega þegar maður stimplar sig inn í vinnuna, og að sama skapi reynir maður að skilja vinnuna eftir við stimpilklukkuna í lok vaktar. Fyrst og fremst er maður í þessu starfi til að vinna með fólki, sem þarf á aðstoð að halda en ekki launanna vegna. Sjúkraliðastarfið er virki- lega gefandi.“ Dagurinn ótútreiknanlegur Hermann Jónsson sjúkraliði starfar á slysa- og bráðamóttökudeild Landspítalans. Hann segir dagana í vinnunni geta verið óútreiknanlega og starfið strembið á köflum. Vinnuandinn á deildinni sé hins vegar góður og starfið ótrúlega gefandi. „Fyrst og fremst er maður í þessu starfi til að vinna með fólki, sem þarf á aðstoð að halda en ekki launanna vegna. Sjúkraliðastarfið er virkilega gefandi.“ Sjúkraliðarnir eyða mestum tíma með sjúklingi og fylgjast með lífsmörkum. Hermann segir nauðsynlegt að vera nærgætinn og geta lesið í þarfir fólks, ekki síður aðstandenda en sjúklinga. Hermann Jónsson útskrifaðist sem sjúkraliði fyrir þremur árum. Hann vann á Heilbrigðisstofnun Vesturlands áður en hann byrjaði á slysa- og bráðamóttöku Landspítalans og líkar starfið vel. Hann segir jafnaðargeð nauðsynlegt í starfi sjúkraliða. MYND/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.