Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGBandalag háskólamanna FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 201312 „Við lítum svo á að hlutverk félagsins sé að standa vörð um þau verðmæti sem fel- ast í menntun félagsmanna og að koma á gagnkvæmum skilningi milli há- skólamenntaðra félagsvísindamanna og vinnuveitenda um að menntunin sé metin til launa.“ segir Halldór Valur. „Fólk sækir í auknum mæli í öryggi þess að vera í stéttarfélagi og nú eru félagsmenn orðnir yfir tvö hundruð,“ segir Halldór Valur. „Við erum með öfl- ugt en lítið félag sem sinnir sínu fólki á persónulegan hátt. Miðað við marga aðra hópa eru ágætis laun meðal félagsmanna en staða okkar hefur hins vegar versnað í takt við aðra millitekjuhópa og nauðsynlegt er að fá leiðréttingar á þeim aðgerðum sem við urðum fyrir í kjölfar efnahagshruns- ins. Þá höfum við lagt áherslu á að halda félagsgjöldum í lágmarki en réttindin eru engu að síður talsverð, ekki síst í gegn- um sjóðakerfi BHM. Skrifstofan er rekin á hagkvæman hátt í samstarfi við fjög- ur önnur aðildarfélög í Borgartúni 6 og er opin alla virka daga,“ segir Halldór Valur. „Eins og nafn félagsins bendir til er það hagsmunafélag allra félagsvísinda- manna. Rétt til inngöngu hafa allir sem hafa lokið viðurkenndu lokaprófi á há- skólastigi í félagsvísindum eða hliðstæð- um greinum eða starfa sem sérfræðingar á sviði félagsvísinda. Ég get nefnt félags- fræðinga, stjórnmálafræðinga, mann- fræðinga og aðra þá sem eru með fullgilt félagsvísindapróf.“ Umfangsmesta verkefni félagsins á þessum tímapunkti er undirbúning- ur nýrra kjarasamninga. Þar er mótun kröfugerðar auðvitað mjög áberandi. Þessir samningar geta orðið mjög mót- andi fyrir framtíðina og við höfum lagt áherslu á að fá sem mesta aðkomu félags- manna að undirbúningi þeirra. Við gerð- um til dæmis könnun nýlega meðal félagsmanna okkar til að spyrjast fyrir um hvaða atriði þeir vilja leggja áherslu á í komandi kjarasamningunum. Lang- flestir vilja aukinn kaupmátt launa en mikill vilji er sömuleiðis fyrir bættu launajafnrétti kynjanna og beinum launahækkunum. Á nýju ári verður farið í gerð kjarasamninga en undirbúningur vegna þeirra er í fullum gangi og fer fram í nánu samstarfi við önnur aðildarfélög BHM,“ segir Halldór Valur enn fremur. Halldór Valur hefur starfað sem for- maður í tvö ár en þar áður sat hann í stjórn frá 2009. Hann segir að það hafi komið sér á óvart hvað félagsmönnum hafi fjölgað mikið á undanförnum árum. „Við höfum verið í markvissu kynningar- átaki undanfarin ár og starfsmenn á al- mennum vinnumarkaði hafa í auknum mæli sótt um aðild að félaginu og litið á það sem öryggi fyrir sig að vera í því. Áður voru opinberir starfsmenn í mikl- um meirihluta. Það er í takt við stefnu okkar að sem flestir á almennum vinnu- markaði sjái sér betur borgið innan félagsins. Félagar starfa á ólíkum svið- um, sérfræðingar og stjórnendur hjá ýmsum ríkisstofnunum, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum og á einka- markaðnum starfa félagsmenn við rann- sóknir, í tryggingafyrirtækjum, upplýs- ingageiranum og í almannatengslum, svo eitthvað sé nefnt. Við höfum orðið vör við hugarfarsbreytingu hjá fólki í garð félagsins. Það er mikið öryggi fyrir fólk að vera í stéttarfélögum, lögin tryggja félagsmönnum lágmarksrétt- indi án þess að skerða möguleika þeirra á bættum kjörum umfram það.“ Til að sækja um aðild er nóg að senda tölvupóst á fif@bhm.is. Áhersla á verðmæti og gildi háskólamenntunar Halldór Valur Pálsson er formaður Félags íslenskra félagsvísindamanna. Mikil fjölgun hefur orðið á félagsmönnum á undanförnum árum. Halldór Valur Pálsson segir að mikil aukning hafi orðið hjá félaginu frá hruni. MYND/GVA Tilefni stofnunar Félags há-skólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) 23. ágúst 1973 var hin breytta skipan aðildar að kjarasamningum opin- berra starfsmanna með lögum 46/1973. Kjaralega töldu háskóla- menn innan Stjórnarráðsins að þeir ættu meira sameiginlegt innbyrð- is, sökum eðlislíkra starfa, heldur en aðilar með sömu menntun ann- ars staðar í ríkiskerfinu. Í dag hefur félagið á að skipa um 550 félags- mönnum sem starfa á 19 vinnustöð- um, þar af um 75% í Stjórnarráðinu. Félagið er sjötta til sjöunda stærsta félagið innan BHM. Bætt þjónusta Árið 2008 jókst þörfin eftir þjónustu FHSS meðal félagsmanna. Starfs- umhverfi félagsmanna var óstöð- ugt og tók miklum breytingum vegna hagræðingarkrafna, samein- inga ráðuneyta og tilfærslu á verk- efnum milli ráðuneyta og stofn- ana. Ágreiningsmál urðu algeng- ari og deilur milli starfsmanna og atvinnurekenda urðu flóknari og algengara var að vinnuveitend- ur brytu ákvæði gerðra stofnana- samninga. Í kjarabaráttu er sam- staða og samvinna stór hluti af því að árangur náist. Mikilvægt er að skapa styrkan grundvöll öflugs fé- lags til að styðja við félagsmenn. Stjórn FHSS hefur unnið að því að styrkja stoðirnar og efla tengslin við félagsmenn. Þann 1. júlí 2013 gerðist FHSS aðili að samningi fimm aðild- arstéttarfélaga BHM, um samstarf og rekstur sameiginlegrar þjónustu- skrifstofu fyrir félagsmenn. Með aðild að rekstri þjónustuskrifstofu er leitast við að styrkja þjónustu við félagsmenn FHSS og efla faglegt samstarf í málefnavinnu og kjara- baráttu félagsins. Samstarfið gefur strax góða raun og félagsmenn nýta sér þjónustuna í síauknum mæli. Sérstaða Í skýrslu forsætisráðherra, „Sam- hent stjórnsýsla“, sem kom út í des- ember 2010, kemur fram að sér- staklega þurfi að huga að mann- auðsmálum innan Stjórnarráðsins. Mikilvægt sé að hugað verði að grundvallaratriðum svo sem starfsþróun starfsmanna, endur- menntun, starfsumhverfi, starfs- kjörum og fleira. Athygli er vakin á því að starfsmannavelta háskóla- menntaðra starfsmanna innan Stjórnarráðsins sé hærri en ann- arra ríkisstarfsmanna. Þeir staldra stutt við í starfi og hafa 56% há- skólamenntaðra starfað hjá Stjórn- arráðinu í fjögur ár eða skemur og kom einnig fram að há velta á há- skólamenntuðum starfsmönnum virðist vera viðvarandi vandamál í Stjórnarráðinu. Þessi starfsmanna- velta er dýrkeypt þar sem með hverjum sérhæfðum starfsmanni glatast dýrmæt þekking og reynsla. Launalækkanir Um miðjan ágúst 2009, samþykkti þáverandi ríkisstjórn tillögu fjár- málaráðherra þess efnis að laun starfsmanna Stjórnarráðsins sem hefðu heildarlaun yfir fjögur hund- ruð þúsund krónur á mánuði skyldu lækkuð með einhliða ákvörðun hvers ráðuneytis um 3-10%. Vert er að geta þess að starfsmenn Stjórnar- ráðsins eru 2-3% af starfsmönnum hins opinbera. Umræddar skerðing- ar tóku gildi í janúar 2010 og voru í mótsögn við stöðugleikasáttmálann frá 25. júní 2009. Samkvæmt lögum um kjarasaminga opinberra starfs- manna 94/1986 er starfsmönnum Stjórnarráðsins óheimilt að fara í verkfall. Ákvæði laganna undir- strikar að störf í Stjórnarráðinu eru það mikilvæg samfélaginu að koma verði í veg fyrir að nokkur röskun verði á starfsemi þess. Í kjarasamningum undirrituðum 6. júní 2011, 18 mánuðum síðar, var samið um að þær skerðingar gengju til baka eigi síðar en fyrir lok ársins. Fram á veg Um þessar mundir er unnið við undirbúning og kröfugerð vegna nýrra kjarasamninga. Í lok október 2013 var send út spurningakönnun til félagsmanna um áherslur þeirra í komandi kjarasamningum. Nið- urstöður hennar sýna að félags- menn telja aukinn kaupmátt og beinar launahækkanir mikilvæg- ustu áhersluatriðin ásamt því að vinna að launajafnrétti kynjanna. Samkvæmt niðurstöðum kjara- könnunar í ágúst 2013 er óleið- réttur kynbundinn launamunur félagsmanna FHSS 8,8% í febrú- ar 2013. Margt hefur áunnist á síðustu árum og að mörgu er að vinna. Róðurinn hefur verið erf- iður í ýmsum málum en oftar en ekki nást fram kjarabætur fyrir félagsmenn. Starfsmannavelta er dýrkeypt Starfsmannavelta í Stjórnarráðinu er viðvarandi vandamál, 56% háskólamenntaðra starfsmanna innan ráðuneyta hafa starfað skemur en fjögur ár. Mikilvægt er að huga að skipulagi starfsmannamála innan Stjórnarráðsins. Stjórn FHSS: Oddur Einarsson gjaldkeri, Hanna Dóra Hólm Másdóttir formaður, Pétur Berg Matthíasson varaformaður. Á myndina vantar Gunnar Alexander Ólafsson ritara og Arnór Snæbjörnsson vefstjóra. MYND/PJETUR 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.