Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 4
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 2.298 skip og bátar voru á Íslandi á skipaskrá 1. janúar 2013. Af þeim voru 1.694 fiskiskip, flest undir 15 brúttótonnum eða 1.293. Þau rúmlega 600 skip sem ekki flokkast sem fiskiskip eru af ýmsu tagi, svo sem skemmtiskip, seglskip, björgunarskip, dráttarskip, prammar og dýpkunarskip. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ VINNUMARKAÐUR Samiðn leggur til að frídagafrumvarp Bjartrar framtíðar verði samþykkt og verði að lögum eins og það er lagt fram. BSRB og Starfsgreinasambandið telja að 1. maí sé svo helgur dagur fyrir verkafólk að ekki komi til greina að hrófla við honum. Þetta kemur fram í umsögnum um frí- dagafrumvarp Bjartrar framtíðar sem liggur fyrir Alþingi. Rafiðnaðarsambandið er hins vegar á því að það megi taka 1. maí til endurskoðunar. „Það er engin að ræða um að fella 1. maí niður, það er sáralítið hlutfall launa- manna sem tekur þátt í hátíða- höldunum og hægur vandi að koma þeim fyrir eftir sem áður í lok vinnudags,“ segja rafiðnaðarmenn og eru frekar jákvæðir gagnvart frumvarpinu í heild. BSRB gerir ekki athugasendur nema við til- færslu 1. maí. Í umsögn Starfgreinasam- bandsins má greina vafa. Annars vegar eru kynnt sjónarmið þeirra sem vilja fara þá leið sem kynnt er í frumvarðinu og hins vegar þeirra sem engu vilja breyta. Landssamband eldri borg- ara telur að sú hefð sem skapast hefur um sumardaginn fyrsta og uppstigningardag, eigi sér sterk- ar rætur í íslenskri þjóðmenningu og ekki eigi að breyta því með einfaldri lagasetningu. Samtök atvinnulífsins vilja færa frí vegna uppstigningar- dags og sumardagsins fyrsta upp að næstu helgi en lýsa andstöðu við fjölgun frídaga sem lögð er til í frumvarpinu. Félag atvinnurekenda telur frumvarpið að hluta til ágætt en gerir athugasemdir við auk- inn kostnað atvinnurekenda yrði það að lögum. Viðskiptaráð lýsir sömu skoðun og á svipuðum nótum eru athugasemdir Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. „Frídagar eru hluti af vinnutíma- ákvæðum kjarasamninga og hafa breytingar á þeim áhrif á launa- kostnað sveitarfélaga,“ segir í umsögninni. johanna@frettabladid.is Atvinnurekendur vilja færa frídaga en stéttarfélög hugsi Verkalýðshreyfingin hefur blendnar tilfinningar gagnvart frídagafrumvarpi Bjartrar framtíðar. Atvinnurekend- ur eru á móti fjölgun frídaga vegna aukins kostnaðar. Eldri borgarar vilja alls ekki færa uppstigningardag. Í kjarasamningum 1998 var samið um að færa uppstigningardag og sumar- daginn fyrsta til næsta föstudags. Tillagan hlaut ekki hljómgrunn þegar samningurinn var kynntur fyrir félögum Starfsgreinasambandsins. Samningarnir voru felldir og þetta var eitt þeirra mála sem hafði þar mikil áhrif. ➜ Reynt að færa fimmtudagsfrí 1998 Samkvæmt frídagafrumvarpi Bjartrar framtíðar verður launafólki gefið frí á föstudegi eftir uppstigningardag og sumardaginn fyrsta. Beri jóladag, annan í jólum, nýársdag og 17. júní upp á frídag á að gefa aukafrídag næsta virka dag á eftir. 1. mai verður haldinn hátíðlegur fyrsta mánudag í maí. ➜ Frídagafrumvarp Bjartrar framtíðar BLENDNAR TILFINNINGAR Verkalýðs- hreyfingin er ekki einhuga um að gera fyrsta mánudag í maí að almennum frídegi í stað 1. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL. FRÍDAGAR Í NOKKRUM RÍKJUM EVRÓPU Ungverjaland 7 Rúmenía 6 Eistland 8 Pólland 9 Lettland 10 Litháen 10 Slóvenía 10 Búlgaría 11 Grikkland 10 Lúxemborg 8 Spánn 14 Slóvakía 12Austurríki 10 Portúgal 11 Tékkland 9 Noregur 10 Bretland 9 Finnland 9 Svíþjóð 9 Ítalía 11 Þýskaland 10 Danmörk 9 Frakkland 8 Írland 8 Holland 6 Belgía 10 Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Sunnudagur 10-15 m/s V-til, annars hægviðri. HITABREYTINGAR Þessa daga kólnar og hlýnar á víxl og rétt er að vara við hálkumyndun. Í dag kólnar, einkum á norðanverðu landinu. Á morgun verður hæglætisveður, bjart og svalt en á sunnudaginn hlánar á ný með úrkomu vestan til. -2° 5 m/s 1° 3 m/s 4° 7 m/s 7° 11 m/s Á morgun Hæg SV-læg eða breytileg átt. Gildistími korta er um hádegi 3° 3° 2° -2° 2° Alicante Aþena Basel 18° 18° 4° Berlín Billund Frankfurt 6° 5° 6° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 3° 5° 5° Las Palmas London Mallorca 22° 7° 14° New York Orlando Ósló 13° 28° -1° París San Francisco Stokkhólmur 6° 17° 4° 2° 2 m/s 3° 3 m/s -1° 2 m/s -2° 8 m/s 1° 4 m/s 0° 5 m/s -3° 5 m/s 0° -2° -1 -3° 0° GENF, AP Fulltrúar sjö ríkja hófu viðræður í gær í Genf um kjarn- orkuáætlun Írans, en Íransstjórn vonast til þess að refsiaðgerðum verði aflétt í framhaldinu. Íranar hafa þó ekki viljað fall- ast á öll skilyrði Vesturlanda, sem krefjast þess að tryggt verði að Íranar komi sér ekki upp kjarnorkuvopnum. Barack Obama Bandaríkjafor- seti hefur hvatt Bandaríkjaþing til þess að bíða með að samþykkja nýjar refsiaðgerðir á meðan við- ræðum er ekki lokið. - gb Viðræður hafnar á ný: Reynt að semja við Íransstjórn FUNDAHÖLD BYRJUÐ Catherine Ashton frá ESB ásamt Mohamed Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA STJÓRNMÁL Tveir fundir fjár- laganefndar féllu niður í vik- unni, þrátt fyrir að vinna við breytingartillögur við fjárlaga- frumvarp sé ekki hafin. Bjarkey Gunnarsdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, alþingismenn Vinstri grænna, hafa ítrekað kallað eftir svörum á Alþingi um stöðu fjár- lagavinnunnar í vikunni og hvort til standi að leggja fram frum- varp til fjáraukalaga. Það að vinna í fjárlaganefnd sé ekki hafin bendir, samkvæmt til- kynningu frá Svandísi Svavars- dóttur, þingflokksformanni VG, til þess að fresta þurfi annarri umræðu um fjárlagafrumvarpið. Fjárlögin munu fara til afgreiðslu Alþingis áður en fjár- aukalögin verða kláruð. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á miðvikudaginn að það væri óheppilegt í sjálfu sér, en þó væru dæmi um slíkt í fortíðinni. Bjarkey Gunnarsdóttir þing- maður VG sagðist vera ósammála því að fjáraukafrumvarpið megi bíða. Að slíkt hefði ekki gerst í ein þrjátíu ár, utan 2008. - skó Þingmenn VG hafa ítrekað kallað eftir svörum um stöðu fjárlagavinnu: Segja fjárlagavinnu í uppnámi BJARKEY GUNNARSDÓTTIR BJARNI BENEDIKTSSON NEYTENDUR Fyrirtækið Bland.is sendi notendum síðunnar við- vörun í pósti í gær. Þar var varað við ákveðnum notendum sem eru með reikning á síðunni. Fram kom að fyrirtækinu hafi borist ítrekaðar tilkynningar um ákveðna notendur vegna tilrauna þeirra til að svíkja fé af notend- um. Voru viðskiptavinir varaðir við því að leggja fé inn á óþekkta aðila án þess að vera komnir með vöruna í hendurnar. Þrír voru nafngreindir í póstinum. - sáp Bland.is varar við svikurum: Þrír menn nafngreindir PÓLLAND, AP Hundruð umhverfis- verndarsinna gengu út af loftslags- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi. Í yfirlýsingu sögðu þeir að nán- ast enginn árangur væri sjáanleg- ur eftir fundarhöldin, sem hófust í síðustu viku en lýkur í dag. Fyrirfram var ekki búist við neinum tímamótaniðurstöðum á þessari ráðstefnu, en ráðstefnan hefur einkennst af deilum um fjár- mögnun á aðstoð við fátækari lönd, til að gera þeim kleift að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. - gb Vonbrigði í Póllandi: Gengu út af ráðstefnunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.