Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 20
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 20 Margra ára niðurskurður hefur þrengt svo að starfsemi Land- spítala að nú ríkir neyðarástand á sumum starfseiningum. Sér- hæft starfsfólk hefur gefist upp og leitað annað eftir vinnu. Ungir læknar ráða sig ekki til starfa vegna óhóflegs vinnuálags og skorts á kennslu. Tæki eru úr sér gengin og húsnæðið úrelt. Lækna- nemar og nemar í öðrum grein- um heilbrigðisvísinda geta að óbreyttu ekki hugsað sér að Land- spítali verði þeirra framtíðar- vinnustaður. Framtíð Landspítala og íslenskrar heilbrigðisþjónustu er í uppnámi. Því miður var þessi mikli vandi að mestu fyrirsjáan- legur og dapurlegt að ekki skyldi vera brugðist við fjölda vísbend- inga um síversnandi stöðu spítal- ans fyrir löngu. Enginn vafi leikur á að fjár- mögnun Landspítala hefur verið ábótavant í mörg ár. En vandinn er mun umfangsmeiri. Að okkar mati er einnig um kerfislægan vanda í íslensku samfélagi að ræða sem varðar innviði og umgjörð heil- brigðisþjónustu hér á landi. Þar ber hæst skort á skýrri stefnu og fjármögnun, ófullnægjandi þjón- ustustýringu og stundum ómark- vissa nýtingu fjármuna. Botninum er vonandi náð á Landspítala og tími endurreisnar runninn upp. Allir sem hlut eiga að máli verða að taka höndum saman ef ekki á illa að fara. En hvað er til ráða? Stjórnvöld skilgreini aðgerðir Við teljum að skilgreina þurfi aðgerðaáætlun sem felur í sér eftirfarandi: 1 Stjórnvöld verða tafarlaust að lýsa því yfir að hafin sé endur- reisn Landspítala. Ella öðlast starfsfólk Landspítala ekki trú á lausn þessa krefjandi verkefnis sem framundan er og nýir læknar munu ekki ráða sig til starfa þar sem þörfin er mest, t.d. á lyflækn- ingasviði og myndgreiningar- deild. 2 Tryggja verður Landspítal-anum nægilegt fjármagn til uppbyggingar og rekstrar. Bæta þarf aðbúnað sjúklinga og aðstöðu starfsfólks til að sinna sjúkling- unum. Sérlega er aðkallandi að endurnýja úreltan tækjakost spítalans. Lágmarks fjármagn til tækjakaupa á sambærilegum sjúkrahúsum erlendis er almennt 3-5% af rekstrarfé. Það samsvar- ar um 1-1,5 milljörðum króna á ári á Landspítala. Þó er ljóst að nú þegar þarf mun hærri upphæð til að koma tækjakosti spítalans í viðunandi horf eftir margra ára niðurskurð til tækjakaupa. Að öðrum kosti verður að skilgreina hvaða hluta starfsemi LSH á að leggja niður eða jafnvel flytja úr landi. Sú hugmynd að fljúga með veikt fólk til útlanda til meðferðar hugnast okkur ekki, sérstaklega þegar hægt er að veita þessa með- ferð hér á landi. Rekstrarleg hagkvæmni verður þó áfram að vera í fyrirrúmi. Þá er löngu tímabært að fjármögnun Landspítala taki mið af unnum verkum og að tekjur til einstakra þátta starfseminnar endurspegli þau verk sem þar eru unnin. 3 Hlúa þarf betur að mann-auði spítalans. Landspítalinn verður að bregðast við endurtekn- um könnunum mannauðssviðs og verða góður vinnustaður. Fyrsta flokks heilbrigðisþjónusta verður ekki veitt nema með vel mennt- uðu starfsfólki sem er stolt af sínu starfi og líður vel í vinnunni. Í hvert sinn sem starfsmaður segir upp og flytur úr landi tapast mikill mannauður og fjárfesting. Þannig verður íslenskt samfélag fyrir miklu, og stundum óbætan- legu tjóni. Þekking og ómetanleg reynsla fer forgörðum. Bæta þarf starfskjör og skapa þarf svigrúm til að umbuna starfsfólki fyrir mikið vinnuálag. Einnig þurfa starfsmenn að geta þróað starfs- feril sinn og axlað aukna ábyrgð svo að hæfileikar hvers og eins fái notið sín. Starfsánægja og góð vinnuaðstaða eru ekki síður mik- ilvægir þættir í þessu sambandi en bætt launakjör. 4 Lagfæra þarf húsnæði Land-spítala og endurskipuleggja starfsemina í Fossvogi og við Hringbraut. Forsenda samein- ingar sjúkrahúsanna í Reykjavík um síðustu aldamót var að starf- semi þeirra flyttist innan fárra ára í nýja byggingu þar sem öll starfsemi væri undir sama þaki. Ekkert hefur orðið af byggingu nýs spítala og óljóst hvenær af því verður. Dreifð starfsemi í 17 byggingum, sem sumar eru rúm- lega 80 ára gamlar, stendur spítal- anum fyrir þrifum. Því er brýnt að grípa til ráðstafana hvað hús- næði spítalans varðar og endur- skipuleggja starfsemina þar til nýr spítali verður að veruleika. 5 Endurskoða verður frá grunni innra skipulag Landspítala og skapa umgjörð sem gerir starfsfólki kleift að bjóða upp á framúrskarandi klíníska þjón- ustu. Breytt aldurssamsetning þjóðarinnar, fjölgun aldraðra og síaukin byrði vegna langvinnra sjúkdóma hefur leitt til mikilla breytinga á daglegum verkefnum sjúkrahússins. 6 Hefja verður háskólahlutverk Landspítalans til vegs og virð- ingar. Háskólasjúkrahús hefur þríþættu hlutverki að gegna; að veita sjúkum þjónustu, mennta nemendur í heilbrigðisvísindum og sinna vísindarannsóknum. Engan af þessum þáttum má vanrækja, ella blasir hnignun við. Sérstaklega þarf að rækta hlutverk framhaldsmenntunar Landspítalans í stærstu greinum læknisfræðinnar. Þetta er brýnt því auk þess að leggja stund á sérnám eru námslæknar mikil- vægir starfskraftar á spítalan- um. Öflug framhaldsmenntun hér á landi er auk þess forsenda nægilegrar nýliðunar. Fyrsta skrefið er að viðurkenna vandann Við teljum að unnt sé að reisa Landspítala við með samhentu átaki heilbrigðisyfirvalda, stjórn- enda og starfsmanna stofnun- arinnar. Ráðherra heilbrigðis- mála og fulltrúar fagstétta verða að standa í stafni og fara fyrir þessu mikilvæga verkefni. Fyrsta skrefið er að stjórnvöld viðurkenni vandann og lýsi því yfir að viðreisn Landspítala sé hafin. Viðreisn Landspítala: Tíminn á þrotum HEILBRIGÐISMÁL Karl Andersen prófessor á hjartadeild LSH Engilbert Sigurðsson prófessor og yfi rlæknir á geðsviði LSH Friðbjörn Sigurðsson yfi rlæknir á almennri lyfl ækningadeild LSH Runólfur Pálsson yfi rlæknir á nýrnalækningadeild LSH Margrét Jóna Einarsdóttir deildarlæknir á lyfl ækningasviði LSH Tómas Guðbjartsson prófessor og yfi rlæknir á skurðdeild LSH ➜ Enginn vafi leikur á að fjármögnun Landspítala hefur verið ábótavant í mörg ár. En vandinn er mun um- fangsmeiri. Að okkar mati er einnig um kerfi slægan vanda í íslensku samfélagi að ræða sem varðar innviði og umgjörð heilbrigðisþjón- ustu hér á landi. facebook.com/BYKO.is 1.990kr. Vnr. 65105754 Hitablásari, 2000W, 22V. 1.990kr. 3.790kr. 1.290kr.2.890kr. 4.390kr. Vnr 5. 5900147 Snjóskófla með tréhandfangi, 26 cm. Vnr. 55900150 Skófla með tré- handfangi, 30 cm. Vnr. 55900155 Snjóskófla með tré- handfangi, 37 cm. 4.690kr. Vnr. 42373294 ERGO SAMSON snjóskúffa, svört. Vnr. 55900158 Skófla með trefjahandfangi. Vnr. 55629783 SONNECK snjó- skúffa, svört. VERTU KLÁR FYRIR VETURINN 639kr. 499kr. Vnr. 54710126 Gróft salt, 5 kg. Vnr. 42375935 BLÅTIN rúðuvökvi, 3 l poki. 5 KG -15° Vnr. 42377785 PROBUILDE skófla með stuttu tréhandfangi. GÓÐ Í BÍLINN 2.990kr. Öl l v er ð er u bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g/ e ða m yn da br en gl . A lla r v ör ur fá st í BY KO B re id d en m in na fr am bo ð ge tu r v er ið í öð ru m v er sl un um . Ve rð ve rn d BY KO tr yg gi r þ ér læ gr a ve rð . S já n án ar i u pp lý si ng ar o g sk ilm ál a á w w w .b yk o. is . w w w .e xp o. is / E XP O au gl ýs in ga st of a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.