Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGBandalag háskólamanna FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 20134 Hvernig lítur umhverfi efnahags- mála út fyrir þér svona í aðdrag- anda kjarasamninga? Þar er fyrst og fremst talsverð óvissa. Það má í raun segja að það skorti ákveðna framtíðarsýn í efna- hagsmálum á Íslandi, allavega er ekki mikil samstaða um hana ef hún á annað borð er til. Nú er búið að leggja aðildarviðræður Ís- lands við ESB til hliðar og það sem meiru máli skiptir er að það virð- ist ekki hafa komið nein skýr fram- tíðarsýn í efnahagsmálum í henn- ar stað. Þannig að ég skil svo sem vel hina fjölmörgu forystumenn í atvinnulífinu sem kalla eftir því að aðildarviðræðum við ESB sé hald- ið áfram, enda verði niðurstað- an hvort sem er lögð í dóm kjós- enda. Það hefur skapast hér nokk- urs konar tómarúm og það er hætt við að menn ætli sér að reyna að leysa efnahagsvandamálin með sömu gömlu aðferðunum og hing- að til, sem ég á erfitt með að sjá að virki núna frekar en áður. Við þurf- um allavega einhverja framtíðar- sýn, það er ljóst. Það verður að tryggja hér víð- sýni og við þurfum að fylgja málum eftir. Það var til dæmis ekki gott að sérfræðinganefnd Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, Seðlabanka Evr- ópu, framkvæmdastjórnar ESB og íslenskra stjórnvalda um lausn- ir varðandi gjaldeyrishöftin var sjálfhætt í tengslum við aðildarvið- ræðurnar. Það er erfitt að sjá að það þjóni hagsmunum okkar að slíta starfi nefndar sem hafði aðgang að helstu sérfræðingum í heimi og var að leita lausna á okkar stærsta efnahagsvandamáli. Það hefði verið áhugavert að sjá hvað hefði komið út úr því, við þurfum á allri aðstoð að halda. Í aðdraganda þessara kjara- samninga verður mér oft hugs- að til Írlands. Þetta minnir mig á þegar menn veltu því fyrir sér hvort landið kæmi betur út úr þeim miklu efnahagsþrengingum sem bæði Írland og Ísland hafa glímt við. Í sjálfu sér er staðan enn afleit í báðum löndunum, en eitt er auð- vitað áberandi og það er að Írland býr við stöðugan gjaldmiðil, frelsi í viðskiptum og opna markaði sem allt er grundvöllur þess að hefja þróttmikla viðspyrnu. Á meðan sitjum við Íslendingar í súpunni með gjaldeyrishöft, snjóhengjur, lokað hagkerfi og að því er virð- ist pólitískari einangrunarstefnu, en allt þetta dregur úr möguleik- um þess að við getum byggt upp til framtíðar. Þetta snýst um að búa til efnahagsumhverfi með fram- tíðarmöguleikum til vaxtar, það er vandséð að það blasi við okkur Ís- lendingum núna. Hver væru að þínu mati eðlileg næstu skref? Ég hef áður bent á að aðilar með ólíkar skoðanir geti þó náð saman um margt til að byrja með. Við búum ekki aðeins við óvissu til lengri tíma litið, heldur einnig til skemmri tíma. Tökum stjórn peningamála sem dæmi. Nú- verandi peningastefna tók gildi í mars 2001 þegar meginmarkmið stjórnar peningamála varð stöð- ugleiki í verðlagsmálum. Höfum þá í huga að Seðlabankinn hefur, að því er best verður séð, fremur beitt vaxtatækinu með hliðsjón af gengis þróun undanfarin miss- eri heldur en verðstöðugleika. Það ætti því að vera forgangsverkefni að eyða, af fremsta megni, óvissu er varðar peningastefnuna. Það gæti verið fyrsta skref og þar ættu menn alveg að geta náð saman. Hvernig sérð þú það útfært? Nú, menn hljóta í það minnsta að vera orðnir þreyttir á sveiflu- kenndu gengi krónunnar. Á því græðir enginn til lengri tíma, jafn- vel þótt útflytjendur nýti sér þessar sveiflur til stundargamans af og til. Verkalýðshreyfingin hefur ítrekað lýst yfir áhuga sínum á því að hér sé tekin upp fastgengisstefna. Það skil ég vel, enda ljóst að óstöðugt gengi er helsta ástæða verðbólguvandans sem við glímum við. Við höfum að- gang að gnægð rannsókna á smá- ríkjum og litlum gjaldmiðlum sem við hljótum að vilja nýta okkur. Við verðum að átta okkur á því að ytri gengisfellingar, það er gengisfell- ing gjaldmiðilsins, er mun skað- legri leið en innri gengisfelling- ar, þar sem nafnlaunabreytingum er beitt til að styrkja samkeppnis- stöðu hagkerfisins. Allir Íslend- ingar með verðtryggð lán hljóta að taka undir þetta heilshugar. Annað dæmi er skortur á skýrri framtíðarsýn til að laða að og auka fjárfestingu. Dæmin sanna að fjárfesting hefur aukist verulega í tilvonandi aðildarríkjum ESB, en þess háttar skýra framtíðar- sýn varðandi fjárfestingu skort- ir hérlendis. Við höfum ekki efni á því að einangrast enn frekar, til dæmis með því að líkja erlendri fjárfestingu við skuldsetningu og viðhafa langvarandi óvissu um eignir erlendra aðila hérlendis. Svo gilda auðvitað alveg sömu rök um vinnumarkaðinn. Íslenskur vinnumarkaður er í harðri sam- keppni við hinn evrópska og við verðum að standa okkur í þeirri samkeppni. Þessa samkeppni eigum við að líta á sem tækifæri og vera víðsýn þegar við leggjum á ráðin um að gera Ísland sam- keppnishæft við nágrannaríkin. Þar eru atriði eins og opnun mark- aða, samkeppnishæf mynt, niður- felling tolla og alþjóðlegt umhverfi lykilatriði til að eiga einhverja möguleika til framtíðar. Hvernig kemur þetta inn í kjara- samningagerðina? Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa ítrekað að háar nafnlauna- hækkanir leiði til verðbólgu og hafa máli sínu til stuðnings bent á að lítil kaupmáttaraukning hafi verið af launahækkunum síðustu kjarasamninga. Það er óumdeilt að of háar launahækkanir sem atvinnulífið ræður ekki við geta leitt til hækkunar verðlags. En við hljótum að spyrja, hvað annað Spár um að lágar launahækkanir næstu kjarasamninga muni leiða til aukins kaupmáttar til lengri tíma byggja nefnilega á því að taka sénsinn á því að þróun gengis og verðlags og þar með vaxta, verði á grundvelli raunhagkerfisins, en ekki þess mikla ójafnvægis sem er á fjármálamörkuðum vegna áhrifa fjármagnshafta og þungrar greiðslubyrði erlendra lána. Óvissa í aðdraganda kjarasamninga Georg Brynjarsson er hagfræðingur BHM og verkefnastjóri kjara- og réttindanefndar. Hann fylgist auk þess með framvindu efnahagsmála og sinnir fræðslu, ráðgjöf og almennri upplýsingamiðlun um hagræn efni innan bandalagsins. Blaðamaður settist niður með Georg og ræddi við hann um stöðu efnahagsmála um þessar mundir. „Að mínu mati skortir ákveðna framtíðarsýn í efnahagsmálum á Íslandi. Það er allavega ekki mikil samstaða um hana ef hún er á annað borð til. Nú er búið að leggja aðildarviðræður Íslands við ESB til hliðar og það sem meiru máli skiptir er að það virðist ekki hafa komið nein skýr framtíðarsýn í efnahagsmálum í hennar stað. .MYND/GVA leiðir til hækkunar verðlags? Hvað ætla stjórnvöld að leggja til mál- anna ef almenningur á að fallast á kaupmáttarrýrnun í þágu ein- hverrar þjóðarsáttar um stöðug- leika? Ég yrði fyrstur manna til að hvetja forystumenn launþega- hreyfinganna til að stilla sínum kröfum um aukinn kaupmátt í hóf ef hið opinbera sýndi okkur nákvæma og trúverðuga áætl- un um hvernig gengisstöðug- leiki verður tryggður nú þegar við stöndum frammi fyrir afnámi gjaldeyrishafta, gríðarlegum af- borgunum erlendra skulda opin- berra aðila og hundruð millj- arða króna skuldaleiðrétting- um til heimila. Spár um að lágar launahækkanir næstu kjara- samninga muni leiða til aukins kaupmáttar til lengri tíma byggja nefnilega á því að taka sénsinn á því að þróun gengis og verð- lags og þar með vaxta, verði á grundvelli raunhagkerfisins, en ekki þess mikla ójafnvægis sem er á fjármálamörkuðum vegna áhrifa fjármagnshafta og þungr- ar greiðslubyrði erlendra lána. Hvernig krónunni reiðir af í þeim ólgusjó sem fram undan er hefur því úrslitaáhrif á kaupmátt eftir næstu kjarasamninga. Að þessu sögðu finnst mér blasa við að umræður um íslensku krónuna séu í raun hinar eiginlegu kjara- viðræður almennings í landinu. 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.