Fréttablaðið - 22.11.2013, Qupperneq 36
KYNNING − AUGLÝSINGBandalag háskólamanna FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 20134
Hvernig lítur umhverfi efnahags-
mála út fyrir þér svona í aðdrag-
anda kjarasamninga?
Þar er fyrst og fremst talsverð
óvissa. Það má í raun segja að það
skorti ákveðna framtíðarsýn í efna-
hagsmálum á Íslandi, allavega
er ekki mikil samstaða um hana
ef hún á annað borð er til. Nú er
búið að leggja aðildarviðræður Ís-
lands við ESB til hliðar og það sem
meiru máli skiptir er að það virð-
ist ekki hafa komið nein skýr fram-
tíðarsýn í efnahagsmálum í henn-
ar stað. Þannig að ég skil svo sem
vel hina fjölmörgu forystumenn í
atvinnulífinu sem kalla eftir því að
aðildarviðræðum við ESB sé hald-
ið áfram, enda verði niðurstað-
an hvort sem er lögð í dóm kjós-
enda. Það hefur skapast hér nokk-
urs konar tómarúm og það er hætt
við að menn ætli sér að reyna að
leysa efnahagsvandamálin með
sömu gömlu aðferðunum og hing-
að til, sem ég á erfitt með að sjá að
virki núna frekar en áður. Við þurf-
um allavega einhverja framtíðar-
sýn, það er ljóst.
Það verður að tryggja hér víð-
sýni og við þurfum að fylgja málum
eftir. Það var til dæmis ekki gott að
sérfræðinganefnd Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, Seðlabanka Evr-
ópu, framkvæmdastjórnar ESB og
íslenskra stjórnvalda um lausn-
ir varðandi gjaldeyrishöftin var
sjálfhætt í tengslum við aðildarvið-
ræðurnar. Það er erfitt að sjá að það
þjóni hagsmunum okkar að slíta
starfi nefndar sem hafði aðgang
að helstu sérfræðingum í heimi og
var að leita lausna á okkar stærsta
efnahagsvandamáli. Það hefði
verið áhugavert að sjá hvað hefði
komið út úr því, við þurfum á allri
aðstoð að halda.
Í aðdraganda þessara kjara-
samninga verður mér oft hugs-
að til Írlands. Þetta minnir mig
á þegar menn veltu því fyrir sér
hvort landið kæmi betur út úr þeim
miklu efnahagsþrengingum sem
bæði Írland og Ísland hafa glímt
við. Í sjálfu sér er staðan enn afleit
í báðum löndunum, en eitt er auð-
vitað áberandi og það er að Írland
býr við stöðugan gjaldmiðil, frelsi í
viðskiptum og opna markaði sem
allt er grundvöllur þess að hefja
þróttmikla viðspyrnu. Á meðan
sitjum við Íslendingar í súpunni
með gjaldeyrishöft, snjóhengjur,
lokað hagkerfi og að því er virð-
ist pólitískari einangrunarstefnu,
en allt þetta dregur úr möguleik-
um þess að við getum byggt upp til
framtíðar. Þetta snýst um að búa
til efnahagsumhverfi með fram-
tíðarmöguleikum til vaxtar, það er
vandséð að það blasi við okkur Ís-
lendingum núna.
Hver væru að þínu mati eðlileg
næstu skref?
Ég hef áður bent á að aðilar með
ólíkar skoðanir geti þó náð saman
um margt til að byrja með. Við
búum ekki aðeins við óvissu til
lengri tíma litið, heldur einnig
til skemmri tíma. Tökum stjórn
peningamála sem dæmi. Nú-
verandi peningastefna tók gildi í
mars 2001 þegar meginmarkmið
stjórnar peningamála varð stöð-
ugleiki í verðlagsmálum. Höfum
þá í huga að Seðlabankinn hefur,
að því er best verður séð, fremur
beitt vaxtatækinu með hliðsjón
af gengis þróun undanfarin miss-
eri heldur en verðstöðugleika. Það
ætti því að vera forgangsverkefni að
eyða, af fremsta megni, óvissu er
varðar peningastefnuna. Það gæti
verið fyrsta skref og þar ættu menn
alveg að geta náð saman.
Hvernig sérð þú það útfært?
Nú, menn hljóta í það minnsta
að vera orðnir þreyttir á sveiflu-
kenndu gengi krónunnar. Á því
græðir enginn til lengri tíma, jafn-
vel þótt útflytjendur nýti sér þessar
sveiflur til stundargamans af og til.
Verkalýðshreyfingin hefur ítrekað
lýst yfir áhuga sínum á því að hér sé
tekin upp fastgengisstefna. Það skil
ég vel, enda ljóst að óstöðugt gengi
er helsta ástæða verðbólguvandans
sem við glímum við. Við höfum að-
gang að gnægð rannsókna á smá-
ríkjum og litlum gjaldmiðlum sem
við hljótum að vilja nýta okkur. Við
verðum að átta okkur á því að ytri
gengisfellingar, það er gengisfell-
ing gjaldmiðilsins, er mun skað-
legri leið en innri gengisfelling-
ar, þar sem nafnlaunabreytingum
er beitt til að styrkja samkeppnis-
stöðu hagkerfisins. Allir Íslend-
ingar með verðtryggð lán hljóta að
taka undir þetta heilshugar.
Annað dæmi er skortur á skýrri
framtíðarsýn til að laða að og auka
fjárfestingu. Dæmin sanna að
fjárfesting hefur aukist verulega
í tilvonandi aðildarríkjum ESB,
en þess háttar skýra framtíðar-
sýn varðandi fjárfestingu skort-
ir hérlendis. Við höfum ekki efni
á því að einangrast enn frekar, til
dæmis með því að líkja erlendri
fjárfestingu við skuldsetningu og
viðhafa langvarandi óvissu um
eignir erlendra aðila hérlendis.
Svo gilda auðvitað alveg sömu rök
um vinnumarkaðinn. Íslenskur
vinnumarkaður er í harðri sam-
keppni við hinn evrópska og við
verðum að standa okkur í þeirri
samkeppni. Þessa samkeppni
eigum við að líta á sem tækifæri
og vera víðsýn þegar við leggjum
á ráðin um að gera Ísland sam-
keppnishæft við nágrannaríkin.
Þar eru atriði eins og opnun mark-
aða, samkeppnishæf mynt, niður-
felling tolla og alþjóðlegt umhverfi
lykilatriði til að eiga einhverja
möguleika til framtíðar.
Hvernig kemur þetta inn í kjara-
samningagerðina?
Forystumenn ríkisstjórnarinnar
hafa ítrekað að háar nafnlauna-
hækkanir leiði til verðbólgu og
hafa máli sínu til stuðnings bent
á að lítil kaupmáttaraukning hafi
verið af launahækkunum síðustu
kjarasamninga. Það er óumdeilt
að of háar launahækkanir sem
atvinnulífið ræður ekki við geta
leitt til hækkunar verðlags. En
við hljótum að spyrja, hvað annað
Spár um að lágar
launahækkanir
næstu kjarasamninga
muni leiða til aukins
kaupmáttar til lengri
tíma byggja nefnilega á
því að taka sénsinn á því
að þróun gengis og
verðlags og þar með
vaxta, verði á grundvelli
raunhagkerfisins, en
ekki þess mikla
ójafnvægis sem er á
fjármálamörkuðum
vegna áhrifa
fjármagnshafta og
þungrar greiðslubyrði
erlendra lána.
Óvissa í aðdraganda kjarasamninga
Georg Brynjarsson er hagfræðingur BHM og verkefnastjóri kjara- og réttindanefndar. Hann fylgist auk þess með framvindu
efnahagsmála og sinnir fræðslu, ráðgjöf og almennri upplýsingamiðlun um hagræn efni innan bandalagsins. Blaðamaður settist
niður með Georg og ræddi við hann um stöðu efnahagsmála um þessar mundir.
„Að mínu mati skortir ákveðna framtíðarsýn í efnahagsmálum á Íslandi. Það er allavega ekki mikil samstaða um hana ef hún er á annað borð til. Nú er búið að leggja aðildarviðræður
Íslands við ESB til hliðar og það sem meiru máli skiptir er að það virðist ekki hafa komið nein skýr framtíðarsýn í efnahagsmálum í hennar stað. .MYND/GVA
leiðir til hækkunar verðlags? Hvað
ætla stjórnvöld að leggja til mál-
anna ef almenningur á að fallast
á kaupmáttarrýrnun í þágu ein-
hverrar þjóðarsáttar um stöðug-
leika?
Ég yrði fyrstur manna til að
hvetja forystumenn launþega-
hreyfinganna til að stilla sínum
kröfum um aukinn kaupmátt í
hóf ef hið opinbera sýndi okkur
nákvæma og trúverðuga áætl-
un um hvernig gengisstöðug-
leiki verður tryggður nú þegar
við stöndum frammi fyrir afnámi
gjaldeyrishafta, gríðarlegum af-
borgunum erlendra skulda opin-
berra aðila og hundruð millj-
arða króna skuldaleiðrétting-
um til heimila. Spár um að lágar
launahækkanir næstu kjara-
samninga muni leiða til aukins
kaupmáttar til lengri tíma byggja
nefnilega á því að taka sénsinn
á því að þróun gengis og verð-
lags og þar með vaxta, verði á
grundvelli raunhagkerfisins, en
ekki þess mikla ójafnvægis sem
er á fjármálamörkuðum vegna
áhrifa fjármagnshafta og þungr-
ar greiðslubyrði erlendra lána.
Hvernig krónunni reiðir af í þeim
ólgusjó sem fram undan er hefur
því úrslitaáhrif á kaupmátt eftir
næstu kjarasamninga. Að þessu
sögðu finnst mér blasa við að
umræður um íslensku krónuna
séu í raun hinar eiginlegu kjara-
viðræður almennings í landinu.
2