Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 16
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | FJÖLSKYLDAN | 16 Jólakaffi Hringsins á Broadway Sunnudaginn 1. desember kl. 13.30 Húsið opnað kl. 13.00 Girnilegt kaffihlaðborð Glæsilegt happdrætti Góð skemmtiatriði 2013 „Erfið samskipti og einelti stúlkna er vaxandi vandamál,“ segir Ingibjörg Auðunsdóttir, sérfræðingur á miðstöð skólaþró- unar við Háskólann á Akureyri. Ingibjörg heldur erindi í dag á málþingi sem Olweusar-áætl- unin gegn einelti stendur fyrir. Hún var ein af fyrstu verkefna- stjórunum sem fóru í gegnum Olweusar-áætlun og síðustu sex ár hefur hún einbeitt sér að ein- elti stúlkna. „Í dag er mun meira kallað eftir aðstoð vegna samskiptaerf- iðleika stúlkna. Kannski er ein skýringin sú að fólk hefur meiri skilning og ákveðið vinnulag varðandi stráka en er óöruggara og oft ráðþrota gagnvart hegðun stúlkna sem er meira falin.“ Einelti stúlkna lýsir sér oft í baktali, að hundsa og útiloka, en það er gert án þess að fullorðnir sjái. „Samskiptin hafa líka færst yfir í tæknina sem gerir málið enn flóknara. Tæknin er góð en spurning hvernig við notum hana og hvaða áhrif hún hefur á þroska barna. Félagsfærnin fer minnkandi ef börnin hafa alltaf samskipti í gegnum tölvur.“ - ebg Fólk hefur meiri skilning og ákveðið vinnulag varðandi stráka. Ingibjörg Auðunsdóttir sérfræðingur „Það er greinilega þörf fyrir svona þjónustu,“ segir Hafsteinn Hannesson, sem stofnaði fyrir- tækið Heimilisþrif ásamt vini sínum, Auðbergi Daníel Hálf- dánarsyni, síðasta sumar. „Við höfum ekkert þurft að auglýsa og það er samt alveg brjálað að gera. Kúnnarnir okkar mæla með okkur við vini sína sem eru að leita að einhverjum til að þrífa heimilið og svo flýgur orðsporið,“ segir Hafsteinn. Íslendingar virðast í auknum mæli kaupa þrif fyrir heimilið. Hannes segir það fyrst og fremst vera fjölskyldufólk sem kaupi þjónustu þeirra. „Karlarnir á heimilinu virð- ast ekki sjá mikið um þessi mál. Flestir póstar og símtöl eru frá konum á aldrinum 25-45 ára. Þeir sem við höfum talað við segjast vilja eyða tímanum í annað en þrif og eru ánægðir með að þetta sé ekki svört starf- semi heldur fyrirtæki á bak við sem ber ábyrgð ef eitthvað kemur upp á.“ Hafsteinn og Auðbergur fengu hugmyndina að fyrirtækinu þegar systir Hafsteins lenti í vandræðum með þrif. Hún hafði borgað einstaklingi fyrir að þrífa eftir flutninga en var svo svikin um þjónustuna. „Við sáum að markaðurinn var galopinn. Við byrjuðum á að búa til heimasíðu, gerðum verðskrá og köstuðum okkur út í djúpu laugina. Síðan byrjuðu pantan- irnar bara að hrúgast inn. Við erum báðir að vinna í þessu með námi en það er svo mikið að gera að annaðhvort þurfum við að ráða starfsfólk eða minnka við okkur námið.“ Vinirnir tveir sjá fyrst og fremst um þrifin sjálfir. „Sumir verða svolítið hissa þegar tveir gaurar mæta á svæðið. Einu sinni mættum við til konu sem hafði greinilega enga trú á okkur en þegar hún sá afraksturinn varð hún mjög ánægð.“ Heimilisþrif býður bæði upp á regluleg þrif sem og einstaka skipti. Hægt er að velja á milli mismunandi pakka eftir því hve ítarleg þrifin eiga að vera. „Flestir fá okkur til sín einu sinni til tvisvar í mánuði. Við finnum líka að fólk er farið að undirbúa jólin og panta jólaþrif- in. Við fengum fyrstu jólabók- unina í ágúst,“ segir Hafsteinn. erlabjorg@frettabladid.is Brjálað að gera í heimilisþrifum Tveir vinir stofnuðu fyrirtækið Heimilisþrif síðastliðið sumar. Það er helst fjöl- skyldufólk sem vill eyða tímanum í annað en þrif sem pantar þjónustuna. Erfið samskipti hjá stúlkum er vaxandi vandi: Fullorðnir ráðþrota vegna eineltis stúlkna MÁLÞING Ingibjörg Auðunsdóttir heldur erindi á málþingi um einelti í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL EIGENDUR HEIMILIS- ÞRIFA Vinirnir Auðbergur Daníel Hálf- dánarson og Hafsteinn Ormar Hannesson taka að sér að þrífa heimili lands- manna. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM Sumir verða svolítið hissa þegar tveir gaurar mæta á svæðið. Hafsteinn Hannesson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.