Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 46
KYNNING − AUGLÝSINGBandalag háskólamanna FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 201314 Starfssvið sjúkraþjálfara er að aðstoða fólk við að viðhalda og bæta líkamsástand þannig að það geti lagt sitt af mörkum til samfélagsins, að teknu tilliti til ástands og ald- urs. Árlega hjálpa sjúkraþjálfarar fjölda manns við að koma í veg fyrir og/eða yfirvinna vanda vegna stoðkerfiskvilla og lífstílssjúkdóma. Einn- ig starfa þeir við endurhæfingu eftir slys og sjúk- dóma, meðhöndla langveika og fatlaða og koma að þjálfun og meðferð íþróttafólks. Þetta gera sjúkraþjálfarar annars vegar með sérstakri með- höndlun og hins vegar með öruggri og viðeigandi æfingaforskrift. Um 550 sjúkraþjálfarar starfa á Íslandi. Helm- ingur þeirra starfar á sjúkrastofnunum og end- urhæfingarstofnunum en hinn helmingurinn á almennum stofum víða um land. Sjúkraþjálfarar fara höndum um yfir 50.000 landsmenn árlega, frá rúmliggjandi sjúklingum til afreksíþrótta- manna, frá vöggu til grafar. Félag sjúkraþjálfara á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1940 og núverandi formaður er Unnur Pétursdóttir. Félagið er bæði fag– og stétt- arfélag. Innan fagdeildar starfar öflug fræðslu- nefnd sem heldur um átta metnaðarfull nám- skeið á ári hverju í umsjón virtra innlendra og erlendra kennara. Einnig eru þar innanborðs faghópar sjúkraþjálfara sem starfa í einstökum geirum sjúkraþjálfunar. Undirfélög eru þrjú: Félag sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu, Félag sjúkraþjálfara um sálvefræna heilsu og Félag MT sjúkraþjálfara (Manual Therapy), sem er sértæk greining og meðferð á hrygg og útlimaliðum. Stéttarfélagshluti félagsins sér um kjarasamn- ingagerð fyrir launþega félagsins við Fjármála- ráðuneytið og fleiri og heldur utan um réttindi og skyldur félagsmanna. Einnig gerir sá hluti félagsins samninga við Sjúkratryggingar Íslands og f leiri, fyrir hönd sjálfstætt starfandi sjúkra- þjálfara. Félag sjúkraþjálfara hefur verið aðili að Heims- sambandi sjúkraþjálfara (World Con federation for Physical Therapy, WCPT) frá árinu 1963. Nán- ari upplýsingar má fá á vefsíðunum: www.phy- s i o . i s o g www.wcpt.org. Aðstoða fólk við að við- halda góðu líkamsástandi Árlega hjálpa sjúkraþjálfarar fjölda manns við að koma í veg fyrir og/eða yfirvinna vanda vegna stoðkerfiskvilla eða lífsstílssjúkdóma. Unnur Péturs- dóttir, for- maður Félags sjúkraþjálfara. Þjónustuskrifstofa SIGL er rekin af fjórum aðildarfélögum BHM. Þetta eru Félag sjúkraþjálfara, Iðjuþjálfafélag Íslands, Félag geislafræðinga og Félag lífeindafræðinga. Þessi félög eiga það sameiginlegt að þeim tilheyra heilbrigðisstéttir með sérhæfða þekkingu sem eru afar mikilvægir hlekkir í heilbrigðisþjónustunni. Tvö þeirra, félög sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa, starfa náið að heilsueflingu og endurhæfingu skjólstæðinga sinna en geisla- og lífeindafræðingar starfa að rannsóknarstörfum. Mikilvægir hlekkir í heilbrigðisþjónustunni Félag geislafræðinga var stofnað árið 1972 og er 41 árs. Það er bæði fag- og stéttarfélag. Félagar með fagaðild eru 145 og stéttarfélagar eru 114. Starfssvið geislafræðinga er framkvæmd læknisfræðilegra myndgreininga rann- sókna og undirbúningur og framkvæmd geislameðferðar. Þróun fagsins hefur verið mikil undan- farna áratugi en röntgengeislinn var upp- götvaður árið 1895 og er því 118 ára. Upp- götvun hans var ein af stóru uppfinningun- um í læknisfræðinni og hefur þróun verið mikil allar götur síðan. Með tilkomu tölvu- tækni opnuðust nýjar víddir og möguleikar sem aldrei fyrr. Þá urðu rannsóknir starf- rænar en áður voru þær festar á filmur og framkallaðar. Í kjölfar þess hafa þróast nýjar rann- sóknaraðferðir sem eru til dæmis tölvu- sneiðmyndir og segulómun. Nýjar rann- sóknaraðferðir hafa aukið mjög greining- armöguleika og er nú hægt að greina mun fleira og mun fyrr með myndgreiningar- rannsóknum en áður. Öll vinnsla er nákvæmari og öruggari og tækifæri til þróunar eru mikil. Á sama tíma er þróun fagsins geisla- fræði og starfssvið geislafræðinga í heim- inum vaxandi. Í upphafi voru geislafræð- ingar nokkurs konar aðstoðarmenn lækna en nú til dags vinna geislafræðingar störf sín sjálfstætt og eru sjálfstæð heilbrigðis- stétt. Auk framkvæmda og vinnslu mynd- greiningarrannsókna sjá geislafræðingar víða í heiminum í stöðugt vaxandi mæli um að lesa úr tilteknum myndgreiningar- rannsóknum. Geislafræði er kennd í Háskóla Íslands og er fjögurra ára nám, þriggja ára grunn- nám til BS-gráðu í geislafræði og eitt ár á meistarastigi til starfsleyfis sem geislafræð- ingur. Fag í örri þróun Nýjar rannsóknaraðferðir innan geislafræðinnar hafa aukið greiningarmöguleika til muna og er fagið í örri þróun. Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga. Iðjuþjálfafélag Íslands var stofnað í mars 1976 og voru félagar þá tíu talsins. Í dag eru þeir um 280. Markmið og meginviðfangs- efni félagsins eru: ■ Að gæta hagsmuna iðjuþjálfa og efla sam- vinnu og samheldni innan stéttarinnar ■ Að efla þróun og standa vörð um gæði iðju- þjálfunar á Íslandi ■ Að stuðla að bættri menntun og aukinni fag- legri vitund iðjuþjálfa ■ Að efla samstarf við iðjuþjálfa erlendis og tengsl við hliðstæða starfshópa innanlands sem utan ■ Að kynna menntun og starf iðjuþjálfa ■ Að vinna að heilbrigði landsmanna Iðjuþjálfun er afar fjölbreytt fag og er vax- andi stétt um allan heim. Starfsvettvangur iðjuþjálfa er að mestu á sviði heilbrigðis-, fé- lags- og menntamála en með fleiri starfandi iðjuþjálfum hér á landi hefur starfsvettvang- ur þeirra breyst og breikkað í samræmi við þá fjölgun sem verður. Iðjuþjálfar láta til sín taka á ýmsum sviðum og hafa með hugviti sínu og hugmyndaauðgi sett á laggirnar úrræði eins og Ljósið – miðstöð fyrir krabbameinsgreinda, Hugarafl og Hlutverkasetur. Þessi úrræði hafa sannað sig og eru nú þegar mikilvæg fyrir sam- félagið. Helsta verkfæri iðjuþjálfa er iðjan sjálf sem fólk stundar en þá er átt við allt það sem ein- staklingar á öllum aldri gera í sínu daglega lífi, t.d. í þeim tilgangi að annast sig og sína, vinna ýmis störf er nýtast samfélaginu, stunda nám og njóta þess sem lífið hefur að bjóða. Þó að þessi viðfangsefni virðist einföld fyrir marga, þá geta þau verið erfið og jafnvel óyfirstígan- leg fyrir aðra sem hafa e.t.v. ekki þroskast eðli- lega, tapað fyrri færni, hafa fengið sjúkdóma, eru komnir á efri ár eða hafa orðið fyrir áföll- um af einhverju tagi. Með sérþekkingu sinni setja iðjuþjálfar fram góðar og ódýrar lausnir sem geta skipt sköp- um við að auka sjálfsbjargargetu fólks. Teng- ing við úrræði í samfélaginu er einnig mikil- vægur hluti af starfi iðjuþjálfa en markmiðið er að einstaklingar geti betur tekist á við dag- legt líf sem er þeim og samfélaginu mikilvægt. Vaxandi stétt Iðjuþjálfar láta til sín taka á ýmsum sviðum og hafa meðal annars sett á laggirnar úrræði eins og Ljósið – miðstöð fyrir krabbameinsgreinda, Hugarafl og Hlutverkasetur. Ósk Sigurðardóttir, formaður Iðjuþjálfafélags Íslands. Félag lífeindafræðinga varð 46 ára á þessu ári en lífeindafræðingar hafa í nær hálfa öld staðið fyrir rannsóknarvinnu til heilla almenn- ingi. Við tölum gjarnan um okkur og okkar störf sem „lykil að lækningu“ því margar sjúkdómsgreiningar eru m.a. byggðar á rannsóknarniðurstöð- um frá okkur,“ segir Arna Auður Ant- onsdóttir, formaður Félags lífeinda- fræðinga. Lífeindafræðingar koma víða við í þjóðfélaginu, í Háskóla Íslands eru kenndar 12-14 greinar undir hatti líf- eindafræðinnar bæði sem sérgreinar og þverfagleg námskeið. Námið tekur fjögur ár í HÍ, þrjú ár til BS-gráðu og 4. árið gefur diplómu og í fram- haldi af því starfsleyfi frá Land- lækni til að starfa sem lífeinda- fræðingur. Við útskrift er líf- eindafræðingur með víðtæka þekkingu og tilbúinn að tak- ast á við þjónustu og vísinda- rannsóknir á flestum sviðum. Aðsókn hefur aukist gífurlega í þetta nám síðustu ár og er það mjög ánægjulegt því fyrirsjáanlegur er skortur á lífeinda- fræðingum. Á heilbrigðis- stofnunum um land allt vinna u.þ.b. 70% af félags- mönnum en 25-30% á hinum almenna vinnumarkaði og hefur sá geiri stækk- að mikið síðustu 10-15 árin. Félag lífeindafræðinga er stéttar- og fagfélag Stéttarfélagsþátturinn hefur tekið stöðugt meira pláss á undanförn- um árum. Helsta ástæðan fyrir því er sú að stéttarfélagið sér um kjara- samningagerð við ríki og Samtök at- vinnulífsins. Eins og ástandið hefur verið í þjóðfélaginu þá fer óheyrileg- ur tími í þessa samninga sem eru jafn- an til stutts tíma vegna þess að f lest- ir þættir sem að samningagerð snúa eru ótryggir og kaupmáttur gufar jafnvel upp skömmu eftir undirskrift. Félagið hefur einnig það hlutverk að tryggja réttindi félags- manna og gæta hags- muna þeirra. Félagið vinnur með Norðurlanda- samtökum (NML), Evrópu- samtökum lífeindafræðinga (EPBS) og Alþjóðasamtök- um lí feindafræðinga (IFBLS). Lykill að lækningu Lífeindafræðingar koma víða við í þjóðfélaginu. Aðsókn í í lífeindafræði við HÍ hefur aukist gífurlega síðustu ár. Arna Auður Antonsdóttir formaður Félags lífeinda- fræðinga. 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.