Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 35
BANDALAG FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2013 HÁSKÓLAMANNA BHM sem hei lda rsa m-tök háskólamenntaðra á vinnumarkaði hafa að meginmarkmiði að ef la virð- ingu fyrir menntun sem for- sendu nýsköpunar og þróun- ar. Guðlaug Kristjánsdóttir, for- maður BHM, segir bandalagið miða að því að tryggja háskóla- menntuðum aðlaðandi vinnu- markað á Íslandi. „Þegar ég tók við formennsku í BHM vorið 2008 fannst mér sem það hlyti að vera auðvelt að koma þessum skilaboðum á framfæri. Núorðið ætti þetta auðvitað að vera sjálf- sagt mál, en við erum ennþá að berjast fyrir þessu og enn virðist vera nóg verk að vinna.“ Að sögn Guðlaugar er íslensk vinnumark- aðsumræða gamaldags og hefur lítið breyst í áranna rás. „Mark- mið þau sem lesa má út úr yfir- lýsingum aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda benda ekki til þess að hér sé framsækinn vinnu- markaður sem vill með mark- vissum hætti styrkja vaxandi greinar og tryggja vöxt í þeim geirum sem byggja á menntun. Þó liggja fyrir greiningar óháðra aðila um að hagsæld Íslands til framtíðar sé háð því að hér verði lögð aukin áhersla á rannsóknir, þróun og uppbyggingu háskóla- samfélagsins.“ Samkvæmt skýrslu ráðgjafa- fyrirtækisins McKinsey er þessi hluti vinnumarkaðarins kallað- ur „alþjóðlegi geirinn“ sem ein- kennist af því að vinnuaflið og verkefnin eru óháð landamær- um, byggja ekki á náttúrulegum auðlindum og kalla á hátt þekk- ingarstig. „Ísland er mjög van- þroskað þegar kemur að um- ræðu og markmiðasetningu hvað þennan geira snertir. Úr því þarf að bæta og þar sér BHM megin- verkefni sitt á næstu misserum og árum.“ Nýleg yfirlýsing forsætisráð- herra og fjármála- og efnahags- ráðherra til aðila vinnumarkað- ar í aðdraganda kjarasamninga tíundar sömu atriði og öll síðustu ár þegar kemur að menntamál- um; að efla iðn-, starfs- og tækni- menntun, efla fullorðinsfræðslu og fyrirbyggja brottfall úr fram- haldsskólum. „Þetta eru allt að sönnu þörf verkefni en BHM hefði að auki viljað sjá þarna skýr skilaboð um að efling rannsókna og nýsköpunar sé vinnumark- aðslegt markmið sem stefna beri að. Þar liggur nefnilega lyk- illinn að framtíðarmöguleikum á íslenskum vinnumarkaði, um það er ég alveg sannfærð.“ Þjóðarsátt vekur engan sælu- hroll innan BHM Talið berst að komandi kjara- samningum og þeirri kröfu að allir gangi í takt sem merkja má frá stjórnvöldum og vinnuveit- endum að sögn Guðlaugar. Hún segir þjóðarsátt síst af öllu vekja sæluhroll innan BHM. „Tíminn í kringum gerð hinnar einu sönnu Þjóðarsáttar var afar erfiður þeim sem stóðu í víglínunni fyrir hönd háskólamenntaðra. Undirritað- ir höfðu verið „tímamótasamn- ingar“ sem áttu að leiðrétta kjör félagsmanna en fjármálaráð- herra felldi samninginn úr gildi. BHM var því svo sannarlega ekki aðili að sáttinni sem svo var köll- uð. Hér í húsi muna menn þetta frekar sem valdbeitingu. Ég er óneitanlega hugsi yfir stemning- unni sem nú svífur yfir vötnum, því staðan í kjörum okkar fólks er um margt svipuð og var á þess- um tíma.“ BHM hefur varað við atgervisflótta Guðlaug segir forsvarsmenn BHM hafa varað við atgervis- flótta allt frá hruni og framan af hafi verið blásið á þann málflutn- ing. „Við höfum líka vakið athygli á því að ekkert er gert hérlend- is til að fylgjast með því hvern- ig hópurinn sem flyst úr landi er samsettur hvað menntun varð- ar. Til að mynda fluttust um 200 Íslendingar úr landi umfram að- flutta á síðasta ársfjórðungi. Við vitum ekki hvers konar menntun það er sem við missum úr landi þar sem það er ekki mælt og hið opinbera virðist ekki hafa áhuga á þessari tölfræði. Flestir Íslend- ingar eiga ættingja eða vini sem ílengjast erlendis eftir nám eða hverfa héðan til að freista gæf- unnar handan hafs. Við finnum því alveg að ekki er lengur blás- ið á þennan málf lutning BHM um atgervisflótta en lítið er hins vegar gert til að bregðast við.“ Hún segir stöðuna þannig að launakjör háskólamenntaðra hafi dregist aftur úr og séu ekki samkeppnishæf við umheiminn. Skýra stefnu skorti um uppbygg- ingu starfa fyrir þennan hóp og stjórnvöld og aðrir aðilar vinnu- markaðar virðast fastir í fortíð- inni hvað þetta varðar. „Brott- flutningur ungs fólks með hald- bæra menntun er viðvarandi ógn og yfir vötnum svífur krafa um „hóflegar launahækkanir“ og sátt á vinnumarkaði til að vinna gegn sveiflum gjaldmiðilsins okkar. Spurningin sem við hjá BHM spyrjum okkur í þessari stöðu er ein- fa ld lega: er ábyrgt að taka þátt í slíkri til- raun?“ Guðlaug s e g i r BH M hljóta að að gera ríka kröfu um skýr svör frá stjórn- völdum varð- andi alla þætti efnahags- stjórnar- innar. „Haft var ef t ir for- sætisráð- h e r r a n ý- lega að ekki v æ r i h æ g t að ýta ábyrgð á gerð kjarasamn- inga yfir á stjórn- völd. Á móti segi ég: stjórnvöld geta ekki ýtt ábyrgð á efna- hagsstjórn yfir á aðila v innu- markaðar. Þ a r þ a r f mun fleira að koma t i l . Þ að fylgir því gríðarleg ábyrgð a f h á l f u háskóla- menntaðra og BHM að kyrrsetja k j ö r f ó l k s okkar ef efna- hagsumhverfið að öðru leyti er óstöðugt. Sam- keppnishæfnin um vel menntað vinnuafl er afleit eins og stend- ur, en hvar verður hún ef kjör- in verða ekki bætt og efnahags- legur stöðugleiki ekki tryggður meðan eftirmálar hrunsins eru gerðir upp? Stórt er spurt.“ Tíminn í kringum gerð hinnar einu sönnu Þjóðarsáttar var afar erfiður þeim sem stóðu í víglínunni fyrir hönd háskólamenntaðra. Verðum að stórbæta samkeppnis- hæfni um vel menntað vinnuafl Efling rannsókna og nýsköpunar er lykillinn að framtíðarmöguleikum á íslenskum vinnumarkaði. Bæta þarf alla umræðu og markmiðasetningu sem snýr að hlut háskólamenntaðra á vinnumarkaði og verður það meginverkefni BHM á næstu misserum. Samkeppnis- hæfnin um vel menntað vinnuafl er afleit eins og stendur, en hvar verður hún ef kjörin verða ekki bætt og efnahagslegur stöðugleiki ekki tryggður meðan eftirmálar hrunsins eru gerðir upp? Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM Heildarsamtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði 26 aðildarfélög 10.000 félagsmenn www.bhm.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.