Fréttablaðið - 22.11.2013, Síða 35
BANDALAG
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2013
HÁSKÓLAMANNA
BHM sem hei lda rsa m-tök háskólamenntaðra á vinnumarkaði hafa að
meginmarkmiði að ef la virð-
ingu fyrir menntun sem for-
sendu nýsköpunar og þróun-
ar. Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
maður BHM, segir bandalagið
miða að því að tryggja háskóla-
menntuðum aðlaðandi vinnu-
markað á Íslandi. „Þegar ég tók
við formennsku í BHM vorið
2008 fannst mér sem það hlyti
að vera auðvelt að koma þessum
skilaboðum á framfæri. Núorðið
ætti þetta auðvitað að vera sjálf-
sagt mál, en við erum ennþá að
berjast fyrir þessu og enn virðist
vera nóg verk að vinna.“ Að sögn
Guðlaugar er íslensk vinnumark-
aðsumræða gamaldags og hefur
lítið breyst í áranna rás. „Mark-
mið þau sem lesa má út úr yfir-
lýsingum aðila vinnumarkaðar
og stjórnvalda benda ekki til þess
að hér sé framsækinn vinnu-
markaður sem vill með mark-
vissum hætti styrkja vaxandi
greinar og tryggja vöxt í þeim
geirum sem byggja á menntun.
Þó liggja fyrir greiningar óháðra
aðila um að hagsæld Íslands til
framtíðar sé háð því að hér verði
lögð aukin áhersla á rannsóknir,
þróun og uppbyggingu háskóla-
samfélagsins.“
Samkvæmt skýrslu ráðgjafa-
fyrirtækisins McKinsey er þessi
hluti vinnumarkaðarins kallað-
ur „alþjóðlegi geirinn“ sem ein-
kennist af því að vinnuaflið og
verkefnin eru óháð landamær-
um, byggja ekki á náttúrulegum
auðlindum og kalla á hátt þekk-
ingarstig. „Ísland er mjög van-
þroskað þegar kemur að um-
ræðu og markmiðasetningu hvað
þennan geira snertir. Úr því þarf
að bæta og þar sér BHM megin-
verkefni sitt á næstu misserum
og árum.“
Nýleg yfirlýsing forsætisráð-
herra og fjármála- og efnahags-
ráðherra til aðila vinnumarkað-
ar í aðdraganda kjarasamninga
tíundar sömu atriði og öll síðustu
ár þegar kemur að menntamál-
um; að efla iðn-, starfs- og tækni-
menntun, efla fullorðinsfræðslu
og fyrirbyggja brottfall úr fram-
haldsskólum. „Þetta eru allt að
sönnu þörf verkefni en BHM
hefði að auki viljað sjá þarna skýr
skilaboð um að efling rannsókna
og nýsköpunar sé vinnumark-
aðslegt markmið sem stefna
beri að. Þar liggur nefnilega lyk-
illinn að framtíðarmöguleikum
á íslenskum vinnumarkaði, um
það er ég alveg sannfærð.“
Þjóðarsátt vekur engan sælu-
hroll innan BHM
Talið berst að komandi kjara-
samningum og þeirri kröfu að
allir gangi í takt sem merkja má
frá stjórnvöldum og vinnuveit-
endum að sögn Guðlaugar. Hún
segir þjóðarsátt síst af öllu vekja
sæluhroll innan BHM. „Tíminn í
kringum gerð hinnar einu sönnu
Þjóðarsáttar var afar erfiður þeim
sem stóðu í víglínunni fyrir hönd
háskólamenntaðra. Undirritað-
ir höfðu verið „tímamótasamn-
ingar“ sem áttu að leiðrétta kjör
félagsmanna en fjármálaráð-
herra felldi samninginn úr gildi.
BHM var því svo sannarlega ekki
aðili að sáttinni sem svo var köll-
uð. Hér í húsi muna menn þetta
frekar sem valdbeitingu. Ég er
óneitanlega hugsi yfir stemning-
unni sem nú svífur yfir vötnum,
því staðan í kjörum okkar fólks er
um margt svipuð og var á þess-
um tíma.“
BHM hefur varað við
atgervisflótta
Guðlaug segir forsvarsmenn
BHM hafa varað við atgervis-
flótta allt frá hruni og framan af
hafi verið blásið á þann málflutn-
ing. „Við höfum líka vakið athygli
á því að ekkert er gert hérlend-
is til að fylgjast með því hvern-
ig hópurinn sem flyst úr landi er
samsettur hvað menntun varð-
ar. Til að mynda fluttust um 200
Íslendingar úr landi umfram að-
flutta á síðasta ársfjórðungi. Við
vitum ekki hvers konar menntun
það er sem við missum úr landi
þar sem það er ekki mælt og hið
opinbera virðist ekki hafa áhuga
á þessari tölfræði. Flestir Íslend-
ingar eiga ættingja eða vini sem
ílengjast erlendis eftir nám eða
hverfa héðan til að freista gæf-
unnar handan hafs. Við finnum
því alveg að ekki er lengur blás-
ið á þennan málf lutning BHM
um atgervisflótta en lítið er hins
vegar gert til að bregðast við.“
Hún segir stöðuna þannig að
launakjör háskólamenntaðra
hafi dregist aftur úr og séu ekki
samkeppnishæf við umheiminn.
Skýra stefnu skorti um uppbygg-
ingu starfa fyrir þennan hóp og
stjórnvöld og aðrir aðilar vinnu-
markaðar virðast fastir í fortíð-
inni hvað þetta varðar. „Brott-
flutningur ungs fólks með hald-
bæra menntun er viðvarandi ógn
og yfir vötnum svífur krafa um
„hóflegar launahækkanir“
og sátt á vinnumarkaði til
að vinna gegn sveiflum
gjaldmiðilsins okkar.
Spurningin sem við
hjá BHM spyrjum
okkur í þessari
stöðu er ein-
fa ld lega: er
ábyrgt að taka
þátt í slíkri til-
raun?“
Guðlaug
s e g i r BH M
hljóta að að
gera ríka
kröfu um
skýr svör
frá stjórn-
völdum varð-
andi alla þætti
efnahags-
stjórnar-
innar.
„Haft var
ef t ir for-
sætisráð-
h e r r a n ý-
lega að ekki
v æ r i h æ g t
að ýta ábyrgð á
gerð kjarasamn-
inga yfir á stjórn-
völd. Á móti segi ég:
stjórnvöld geta ekki
ýtt ábyrgð á efna-
hagsstjórn yfir á
aðila v innu-
markaðar.
Þ a r þ a r f
mun fleira
að koma
t i l . Þ að
fylgir því
gríðarleg
ábyrgð
a f h á l f u
háskóla-
menntaðra
og BHM að
kyrrsetja
k j ö r f ó l k s
okkar ef efna-
hagsumhverfið
að öðru leyti er
óstöðugt. Sam-
keppnishæfnin um vel menntað
vinnuafl er afleit eins og stend-
ur, en hvar verður hún ef kjör-
in verða ekki bætt og efnahags-
legur stöðugleiki ekki tryggður
meðan eftirmálar hrunsins eru
gerðir upp? Stórt er spurt.“
Tíminn í
kringum gerð
hinnar einu sönnu
Þjóðarsáttar var afar
erfiður þeim sem stóðu í
víglínunni fyrir hönd
háskólamenntaðra.
Verðum að stórbæta samkeppnis-
hæfni um vel menntað vinnuafl
Efling rannsókna og nýsköpunar er lykillinn að framtíðarmöguleikum á íslenskum vinnumarkaði. Bæta þarf alla umræðu og
markmiðasetningu sem snýr að hlut háskólamenntaðra á vinnumarkaði og verður það meginverkefni BHM á næstu misserum.
Samkeppnis-
hæfnin um vel
menntað vinnuafl er
afleit eins og stendur, en
hvar verður hún ef kjörin
verða ekki bætt og
efnahagslegur
stöðugleiki ekki
tryggður meðan
eftirmálar
hrunsins eru
gerðir upp?
Guðlaug
Kristjánsdóttir,
formaður BHM
Heildarsamtök
háskólamenntaðra á
vinnumarkaði
26 aðildarfélög
10.000 félagsmenn
www.bhm.is