Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 24
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Þetta er ofboðslega spennandi. Það eru margir búnir að spyrja mig hvernig í fjandanum ég hafi komist þarna inn,“ segir Bjarni Sigurðs- son, keramíker og galleríeigandi, en hönnunar- og lífsstílsverslunin ABC Home í New York hefur falast eftir verkum hans í verslun sína á Man- hattan. ABC Home er ein stærsta og virt- asta verslun sinnar tegundar í Banda- ríkjunum með áherslu á nýstárlega og vandaða hönnun fyrir heimilið. Það er því talsverður áfangi að koma vörum þar í sölu og við spyrjum því eins og hinir, hvernig kom það til? „Þrjár konur frá versluninni rákust bara af einhverri rælni inn í Gallerí Kaolin á Skólavörðustíg, þegar þær voru á ferðinni á landinu í vor og keyptu heilan helling af munum eftir mig. Svo höfðu þær samband aftur og vildu funda á Skype. Þar fékk ég meira en klukkutíma til að kynna mig og sýna þeim það sem ég var að gera og fékk svo pöntun frá þeim upp á 530 muni. Þetta er svo bara byrjunin en þær ætla sér að panta meira af smámunum og fleiru,“ segir Bjarni og er að sjálfsögðu ánægður með samninginn. „Það er líka gaman að búa til gjaldeyri fyrir landið, sýna aðeins hvað listin getur gert,“ segir hann kankvís. ÞEKKTUR Í DANMÖRKU Bjarni lauk námi frá Århus Kunstaka- demi árið 2000 og starfaði síðan að list sinni í Danmörku um árabil. Þar hefur hann skapað sér nafn í leirlistaheim- inum og eru verk hans til sölu víða um Danmörku, allt frá listasöfnum á borð við nútímalistasafnið Louisi- ana og keramiksafnið Grimmerhus til hönnunarverslana á borð við Designer Zoo í Kaupmannahöfn og Árósum og Kalejdo skop í Álaborg. Bjarni flutti heim árið 2007 og stofn- aði Gallerí Kaolin á Skólavörðustíg sem hann rekur ásamt fleiri keramíkhönn- uðum. Hann rekur einnig Gallerí Fabúlu í Geirsgötu 7. Undanfarin ár hefur Bjarni einnig opnað vinnustofu sína að Hrauntungu í Hafnarfirði fyrir jólin. JÓLASTEMMING Á VINNUSTOFUNNI „Ég hef gert það að venju að halda jólamarkað þessa helgi á vinnustofunni minni. Þá baka ég smákökur og hita glögg og býð upp á léttar veitingar. Fólk getur kíkt hingað inn og fengið að skoða það sem ég er að fást við,“ segir Bjarni. Hann opnar dyrnar klukkan 17 í dag en á morgun og á sunnudaginn verður opið frá klukkan 11 til 17. Vinnustofan er að Hrauntungu 20 í Hafnarfirði. ■ heida@365.is SELUR LEIRLIST Á MANHATTAN ÍSLENSK HÖNNUN Bjarni Sigurðsson keramíker hefur gert samning við eina stærstu hönnunarverslun Bandaríkjanna. Útsendararnir rákust inn fyrir rælni. JÓLAMARKAÐUR Bjarni hefur það fyrir venju að opna vinnu- stofu sína og bjóða upp á smákökur og glögg fyrir jólin. Hann opnar í dag klukkan 17 en á morgun og á sunnudag verður opið milli klukkan 11 og 17. KERAMÍKER Hönnunar- og lífsstílsverslunin ABC Home í New York hefur falast eftir verkum Bjarna Sigurðssonar keramíkers í verslun sína á Manhattan. MYND/GVA Soffía Káradóttir mælir með Femarelle fyrir allar konur sem finna fyrir van- líðan á breytingaaldri. „Ég ákvað að prófa Femarelle í fyrravetur þegar ég sá umfjöllun í blöðum þar sem önnur kona lýsti ánægu sinni með vöruna. Ég var að byrja á breytingaaldrinum en vildi ekki nota hormóna. Ég fann fyrir hitakófum, vaknaði upp á nóttunni, fann fyrir fótaóeirð, skapsveiflum og vanlíðan í líkamanum,“ segir Soffía og bætir við að eftir aðeins tíu daga notkun voru öll einkennin horfin. „Nú sef ég samfelldan svefn, finn ekki fyrir hitakófum eða fótaóeirð og mér líður mun betur. Ég finn fyrir meiri vellíðan og er í mun betra jafnvægi í líkamanum. Með glöðu geði mæli ég því hiklaust með Femarelle við vinkonur mínar og allar konur sem finna fyrir breytingaaldrinum. Ég veit um eina vinkonu mína sem hætti á hormónum og notar Femarelle í dag. Ég get ekki ímyndað mér hvernig mér liði í dag ef ég hefði ekki kynnst Femarelle, þvílíkt undraefni.“ Algjört undraefni STÓRGLÆSILEGUR Á STÓRU STELPURNAR Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. lokað á laugardögum í sumar Líttu við og leyfðu okkur aðstoða þig við valið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.