Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 20
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 20
Margra ára niðurskurður hefur
þrengt svo að starfsemi Land-
spítala að nú ríkir neyðarástand
á sumum starfseiningum. Sér-
hæft starfsfólk hefur gefist upp
og leitað annað eftir vinnu. Ungir
læknar ráða sig ekki til starfa
vegna óhóflegs vinnuálags og
skorts á kennslu. Tæki eru úr sér
gengin og húsnæðið úrelt. Lækna-
nemar og nemar í öðrum grein-
um heilbrigðisvísinda geta að
óbreyttu ekki hugsað sér að Land-
spítali verði þeirra framtíðar-
vinnustaður. Framtíð Landspítala
og íslenskrar heilbrigðisþjónustu
er í uppnámi. Því miður var þessi
mikli vandi að mestu fyrirsjáan-
legur og dapurlegt að ekki skyldi
vera brugðist við fjölda vísbend-
inga um síversnandi stöðu spítal-
ans fyrir löngu.
Enginn vafi leikur á að fjár-
mögnun Landspítala hefur verið
ábótavant í mörg ár. En vandinn er
mun umfangsmeiri. Að okkar mati
er einnig um kerfislægan vanda
í íslensku samfélagi að ræða sem
varðar innviði og umgjörð heil-
brigðisþjónustu hér á landi. Þar
ber hæst skort á skýrri stefnu og
fjármögnun, ófullnægjandi þjón-
ustustýringu og stundum ómark-
vissa nýtingu fjármuna. Botninum
er vonandi náð á Landspítala og
tími endurreisnar runninn upp.
Allir sem hlut eiga að máli verða
að taka höndum saman ef ekki á
illa að fara. En hvað er til ráða?
Stjórnvöld skilgreini aðgerðir
Við teljum að skilgreina þurfi
aðgerðaáætlun sem felur í sér
eftirfarandi:
1 Stjórnvöld verða tafarlaust að lýsa því yfir að hafin sé endur-
reisn Landspítala. Ella öðlast
starfsfólk Landspítala ekki trú á
lausn þessa krefjandi verkefnis
sem framundan er og nýir læknar
munu ekki ráða sig til starfa þar
sem þörfin er mest, t.d. á lyflækn-
ingasviði og myndgreiningar-
deild.
2 Tryggja verður Landspítal-anum nægilegt fjármagn til
uppbyggingar og rekstrar. Bæta
þarf aðbúnað sjúklinga og aðstöðu
starfsfólks til að sinna sjúkling-
unum. Sérlega er aðkallandi að
endurnýja úreltan tækjakost
spítalans. Lágmarks fjármagn
til tækjakaupa á sambærilegum
sjúkrahúsum erlendis er almennt
3-5% af rekstrarfé. Það samsvar-
ar um 1-1,5 milljörðum króna á
ári á Landspítala. Þó er ljóst að
nú þegar þarf mun hærri upphæð
til að koma tækjakosti spítalans í
viðunandi horf eftir margra ára
niðurskurð til tækjakaupa. Að
öðrum kosti verður að skilgreina
hvaða hluta starfsemi LSH á að
leggja niður eða jafnvel flytja úr
landi. Sú hugmynd að fljúga með
veikt fólk til útlanda til meðferðar
hugnast okkur ekki, sérstaklega
þegar hægt er að veita þessa með-
ferð hér á landi.
Rekstrarleg hagkvæmni verður
þó áfram að vera í fyrirrúmi. Þá
er löngu tímabært að fjármögnun
Landspítala taki mið af unnum
verkum og að tekjur til einstakra
þátta starfseminnar endurspegli
þau verk sem þar eru unnin.
3 Hlúa þarf betur að mann-auði spítalans. Landspítalinn
verður að bregðast við endurtekn-
um könnunum mannauðssviðs og
verða góður vinnustaður. Fyrsta
flokks heilbrigðisþjónusta verður
ekki veitt nema með vel mennt-
uðu starfsfólki sem er stolt af
sínu starfi og líður vel í vinnunni.
Í hvert sinn sem starfsmaður
segir upp og flytur úr landi tapast
mikill mannauður og fjárfesting.
Þannig verður íslenskt samfélag
fyrir miklu, og stundum óbætan-
legu tjóni. Þekking og ómetanleg
reynsla fer forgörðum. Bæta þarf
starfskjör og skapa þarf svigrúm
til að umbuna starfsfólki fyrir
mikið vinnuálag. Einnig þurfa
starfsmenn að geta þróað starfs-
feril sinn og axlað aukna ábyrgð
svo að hæfileikar hvers og eins
fái notið sín. Starfsánægja og góð
vinnuaðstaða eru ekki síður mik-
ilvægir þættir í þessu sambandi
en bætt launakjör.
4 Lagfæra þarf húsnæði Land-spítala og endurskipuleggja
starfsemina í Fossvogi og við
Hringbraut. Forsenda samein-
ingar sjúkrahúsanna í Reykjavík
um síðustu aldamót var að starf-
semi þeirra flyttist innan fárra
ára í nýja byggingu þar sem öll
starfsemi væri undir sama þaki.
Ekkert hefur orðið af byggingu
nýs spítala og óljóst hvenær af
því verður. Dreifð starfsemi í 17
byggingum, sem sumar eru rúm-
lega 80 ára gamlar, stendur spítal-
anum fyrir þrifum. Því er brýnt
að grípa til ráðstafana hvað hús-
næði spítalans varðar og endur-
skipuleggja starfsemina þar til
nýr spítali verður að veruleika.
5 Endurskoða verður frá grunni innra skipulag Landspítala
og skapa umgjörð sem gerir
starfsfólki kleift að bjóða upp á
framúrskarandi klíníska þjón-
ustu. Breytt aldurssamsetning
þjóðarinnar, fjölgun aldraðra og
síaukin byrði vegna langvinnra
sjúkdóma hefur leitt til mikilla
breytinga á daglegum verkefnum
sjúkrahússins.
6 Hefja verður háskólahlutverk Landspítalans til vegs og virð-
ingar. Háskólasjúkrahús hefur
þríþættu hlutverki að gegna; að
veita sjúkum þjónustu, mennta
nemendur í heilbrigðisvísindum
og sinna vísindarannsóknum.
Engan af þessum þáttum má
vanrækja, ella blasir hnignun
við. Sérstaklega þarf að rækta
hlutverk framhaldsmenntunar
Landspítalans í stærstu greinum
læknisfræðinnar. Þetta er brýnt
því auk þess að leggja stund á
sérnám eru námslæknar mikil-
vægir starfskraftar á spítalan-
um. Öflug framhaldsmenntun
hér á landi er auk þess forsenda
nægilegrar nýliðunar.
Fyrsta skrefið er að viðurkenna
vandann
Við teljum að unnt sé að reisa
Landspítala við með samhentu
átaki heilbrigðisyfirvalda, stjórn-
enda og starfsmanna stofnun-
arinnar. Ráðherra heilbrigðis-
mála og fulltrúar fagstétta
verða að standa í stafni og fara
fyrir þessu mikilvæga verkefni.
Fyrsta skrefið er að stjórnvöld
viðurkenni vandann og lýsi því
yfir að viðreisn Landspítala sé
hafin.
Viðreisn Landspítala:
Tíminn á þrotum
HEILBRIGÐISMÁL
Karl Andersen
prófessor á hjartadeild LSH
Engilbert Sigurðsson
prófessor og yfi rlæknir á geðsviði LSH
Friðbjörn Sigurðsson
yfi rlæknir á almennri lyfl ækningadeild LSH
Runólfur Pálsson
yfi rlæknir á nýrnalækningadeild LSH
Margrét Jóna Einarsdóttir
deildarlæknir á lyfl ækningasviði LSH
Tómas Guðbjartsson
prófessor og yfi rlæknir á skurðdeild LSH
➜ Enginn vafi leikur á að
fjármögnun Landspítala
hefur verið ábótavant í mörg
ár. En vandinn er mun um-
fangsmeiri. Að okkar mati
er einnig um kerfi slægan
vanda í íslensku samfélagi
að ræða sem varðar innviði
og umgjörð heilbrigðisþjón-
ustu hér á landi.
facebook.com/BYKO.is
1.990kr.
Vnr. 65105754
Hitablásari, 2000W, 22V.
1.990kr. 3.790kr. 1.290kr.2.890kr.
4.390kr.
Vnr 5. 5900147
Snjóskófla með
tréhandfangi, 26 cm.
Vnr. 55900150
Skófla með tré-
handfangi, 30 cm.
Vnr. 55900155
Snjóskófla með tré-
handfangi, 37 cm.
4.690kr.
Vnr. 42373294
ERGO SAMSON
snjóskúffa, svört.
Vnr. 55900158
Skófla með
trefjahandfangi.
Vnr. 55629783
SONNECK snjó-
skúffa, svört.
VERTU KLÁR FYRIR VETURINN
639kr.
499kr.
Vnr. 54710126
Gróft salt, 5 kg.
Vnr. 42375935
BLÅTIN rúðuvökvi,
3 l poki.
5 KG
-15°
Vnr. 42377785
PROBUILDE skófla með
stuttu tréhandfangi.
GÓÐ Í BÍLINN
2.990kr.
Öl
l v
er
ð
er
u
bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
e
ða
m
yn
da
br
en
gl
. A
lla
r v
ör
ur
fá
st
í
BY
KO
B
re
id
d
en
m
in
na
fr
am
bo
ð
ge
tu
r v
er
ið
í
öð
ru
m
v
er
sl
un
um
.
Ve
rð
ve
rn
d
BY
KO
tr
yg
gi
r þ
ér
læ
gr
a
ve
rð
. S
já
n
án
ar
i u
pp
lý
si
ng
ar
o
g
sk
ilm
ál
a
á
w
w
w
.b
yk
o.
is
.
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a