Fréttablaðið - 22.11.2013, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 22. nóvember 2013 | SKOÐUN | 19
Í fimmta skipti á tveimur árum
var kveikt í risastórum regnboga
sem stendur á torgi Frelsarans
(plac Zbawiciela) í Varsjá. Í eitt
af þeim skiptum var hugsanlega
um slys að ræða (eldurinn kvikn-
aði út frá flugeldi) en annars voru
skemmdarvargar að verki. Nú
seinast, á þjóðatíðardeginum 11.
nóvember, báru þjóðernissinnar
eld að listaverkinu svo litskrúð-
ugu gerviblómin sem það skreyttu
brunnu til kaldra kola. Eftir stend-
ur nakinn stálboginn.
Bara pæling: Þegar einhver
hugsar: „Í dag ætla ég að kveikja
í regnboga,“ dettur honum ekki í
hug að hann gæti hugsanlega, bara
hugsanlega, verið í vonda liðinu?
Þess má geta að þegar boginn
brann, nú fyrir rúmri viku, var
viðgerðum á honum nýlokið eftir
seinustu íkveikju. Yfirvöld höfuð-
borgarinnar borguðu fyrir þá við-
gerð. Líkt og fyrir þær fyrri. Og
líkt og þær munu gera fyrir þá
næstu. Og næstu.
Segðu mér hverjir vinir þínir eru?
Lítum nú á tvenn ummæli í
tengslum við þennan atburð. Hvor
tveggja koma frá pólskum hægri-
mönnum:
Ummæli 1: „Við þurfum að læra
að virða frelsi annarra. Það getur
ekki verið þannig að menn eyði-
leggi almannaeigur bara ef þeim
finnst þær ekki vera á réttum stað
og ekki líta rétt út. Þess vegna
finnst mér að við eigum að endur-
byggja þetta í hvert skipti. Því ef
við beygjum okkur fyrir skemmd-
arvörgum þá hafa þeir unnið. Ég
mun ekki leyfa þeim að vinna og
þess vegna munum við endur-
byggja þetta eins oft og þurfa
þykir.“
Ummæli 2: „Hommaregnboginn
á torgi Frelsarans brennur. Hvað
ætli mötuneytiskerlingin eigi eftir
að eyða miklum peningum í endur-
gerð hans áður en hún ákveður að
fjarlægja hann? – Hún er þegar
búin að eyða 100 þúsund zlotýum
[4 milljónum króna] í að gera hann
upp! Hvað væri hægt að brauðfæða
mörg svöng börn fyrir það? En hún
vill frekar eyða peningum í flug-
elda og í áróður fyrir hommaskap.“
Fyrri ummælin koma frá Hönnu
Gronkiewicz-Waltz, borgarstýru
Varsjár. Andstæðingar hennar
uppnefna hana „mötuneytiskerl-
inguna“. Hún tilheyrir Borgara-
vettvangi, fyrrverandi systur-
flokki Sjálfstæðisflokksins.
Seinni ummælin koma frá lög-
manninum Bartosz Kownacki,
þingmanni Laga og réttlætis,
núverandi systurflokki Sjálf-
stæðisflokksins. Facebook eyddi
þeim út. Lögmannafélag Varsjár-
borgar hefur tekið þau til skoð-
unar. Einn háttsettur flokksbróðir
þingmannsins kallaði þau reyndar
heimskuleg og óþörf í útvarpsvið-
tali í seinustu viku en að öðru leyti
virðist flokkurinn ætla að láta þau
óátalin. Enda virðast flestir innan
Laga og réttlætis vera á svipaðri
grunnskoðun þótt þeir styðji ekki
beinlínis ofbeldi og vilji ekki sam-
sama sig hægri-þjóðernissinnum.
(Pólsk stjórnmál eru eins og þau
íslensku, nema spegluð: Því lengra
sem farið er til hægri þeim mun
smærri eru flokkarnir og því síður
geta þeir unnið saman.)
Evrópskir hægrimenn klofna
Fyrir nokkrum árum klufu
breskir íhaldsmenn sig úr stóru
evrópsku hægriflokkasamtökun-
um EPP, sem þeim þóttu of Evr-
ópusinnuð, og stofnuðu sín eigin
samtök, samtök evrópskra íhalds-
manna og umbótasinna (ECR).
Þeirra helstu bandamenn í nýju
samtökunum urðu Tékkarnir í
ODS og Pólverjarnir í Lögum og
réttlæti.
Þá ákvað Sjálfstæðisflokkur-
inn að segja sig úr EPP og ganga
til liðs við ECR, væntanlega
vegna þess að síðari samtök-
in eru Evró-skeptískari. Ég get
í sjálfu sér skilið að til sé fólk
sem vilji dempa federalískar til-
hneigingar innan ESB og telji að
sambandið eigi að einbeita sér
að málum tengdum hinum sam-
eiginlega frjálsa markaði. Það er
hins vegar spurning hvort allir
bandamenn í þeirri baráttu séu
jafn góðir, óháð skoðunum þeirra
á öðrum málum.
Er mönnum sama?
Eflaust eiga einhverjir aðrir
flokkar á Íslandi sér einhverja
vafasama systurflokka hér og
þar og kannski ætti ekki að lesa
of mikið úr því. En kannski vegna
þess að ég hef bakgrunn í þessu
tiltekna Evrópuríki þá fynd-
ist mér þægilegra ef íslenskir
hægrimenn stæðu þar með þeim
hægrimönnum sem leyfa gleði-
göngur en ekki þeim sem banna
þær. Að þeir stæðu með þeim
hægrimönnum sem vilja endur-
reisa táknmyndir um umburð-
arlyndi jafnóðum og þær eru
eyðilagðar en ekki með þeim
hægrimönnum sem vilja fá þær
burt og fagna því, leynt eða ljóst,
þegar þær brenna.
Hommaregnboginn brennur
Þjónusta við utangarðs-
fólk í Reykjavík hefur
aukist svo um munar á
undanförnum árum, enda
er þörfin brýn. Þeim
áföngum sem náðst hafa
í aukinni þjónustu við
þennan hóp ber að fagna
en það er hins vegar ljóst
að enn er úrbóta þörf.
Heimilislausum fjölgar
enn og þau úrræði sem í
boði eru mæta í sumum
tilvikum ekki þörfum
þeirra sem þeim er ætlað að þjón-
usta.
Að vera utangarðs felur það í
sér að lifa lífi sem ekki er innan
hefðbundins ramma samfélags-
ins. Flestir í þessum hópi eiga
við margþættan og langvarandi
vanda að stríða sem gerir þeim
erfitt fyrir að fóta sig í samfé-
laginu í hefðbundnum skilningi.
Þegar þjónusta á tiltekinn hóp
verða þarfir hans að vera í for-
gangi og þjónustan að endur-
spegla þörfina.
Skaðaminnkun er hugtak sem
notað hefur verið í síauknum
mæli í umræðunni um utangarðs-
fólk. Hugtakið felur í sér að virð-
ing fyrir einstaklingnum sé höfð
að leiðarljósi, að sá skaði sem
lífshættir hafa á einstaklinginn
sé lágmarkaður og að honum sé
mætt þar sem hann er staddur,
án skilyrða um edrúmennsku.
Það er staðreynd að stór hópur
utangarðsfólks á við langvar-
andi vímuefnavanda að stríða
og hefur ekki tekist að fóta sig í
hefðbundnum meðferðarúrræð-
um. Skaðaminnkun hefur gefið
góða raun í vinnu með fíklum í
mörgum nágrannalöndum okkar
sem endurspeglast meðal annars
í því að nálgunin er orðin hluti af
stefnumótun í vímuefnamálum
allra þeirra þjóða sem tilheyra
Evrópusambandinu. Reykjavík-
urborg hefur þegar tekið skref í
átt að skaðaminnkun í mörgum
þeim úrræðum sem í boði eru
fyrir utangarðsfólk en erfiðlega
gengur að stíga skrefið til fulls
og skaðaminnkun er ekki form-
lega hluti af stefnumótun í heil-
brigðismálum á Íslandi eins og
víða tíðkast.
Ef yfirvöld ætla sér að þjón-
usta þennan hóp er mikilvægt að
honum sé mætt þar sem hann er
staddur. Ætlum við að vera sam-
félag sem veitir þjónustu litaða af
firringu, fordómum og forræðis-
hyggju eða ætlum við að veita
þjónustu byggða á valdeflingu,
stuðningi og þörfum þjónustu-
þega? Við erum nú þegar aftar-
lega á merinni þegar kemur að
þjónustu við utangarðsfólk þegar
litið er til nágrannalandanna og
það er tímabært að tekist sé á við
vandann eins og hann er, ekki
eins og við kjósum að sjá hann.
Lausnin í málefn-
um utangarðsfólks?
SAM-
FÉLAGSMÁL
Hrafnhildur Lilja
Harðardóttir
sálfræðingur
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
➜ Ætlum við að vera
samfélag sem veitir
þjónustu litaða af fi rr-
ingu, fordómum og
forræðishyggju eða
ætlum við að veita
þjónustu byggða á
valdefl ingu, stuðningi
og þörfum þjónustu-
þega?
Við bjóðum
góða þjónustu
Rauðir dagar 18.-22. nóvember
Hvernig fjármagnar
þú önnina?
Föstudagur 22. nóvember
Netbankinn
Kynning og kennsla fyrir eldri borgara.
Íslandsbanki Eiðistorgi kl. 10.00.
Tölvan og snjallsíminn
Kennsla á Netbankann og Íslandsbanka Appið.
Öll útibú kl. 12.15-12.45.
Þjónusta við námsfólk
Kynning á Námsvild og Íslandsbanka Appinu.
Íslandsbanki Kringlunni kl. 15.00-17.00.
Rauðir dagar
- í útibúinu þínu
Í dag lýkur Rauðum dögum Íslandsbanka þar sem við höfum lagt sérstaka
áherslu á fræðslu um flest það sem viðkemur fjármálum heimilisins.
Komdu í heimsókn í útibúið þitt, fáðu kaffi og gagnlegan fróðleik um fjármál.
Nánar á islandsbanki.is
Komdu í Íslandsbanka Kringlunni í dag milli
kl. 15.00 og 17.00 og sjáðu hvernig Námsvild
og Íslandsbanka Appið geta létt þér lífið í vetur.