Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.11.2013, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 22.11.2013, Qupperneq 33
Ídag semur Sjúkraliðafélagið sjálft um laun og önnur kjarasamnings-bundin réttindi fyrir sína félags- menn,“ útskýrir Kristín Á. Guð- mundsdóttir, formaður Sjúkraliða- félags Íslands, en félagið heldur úti öflugri þjónustu við félagsmenn um allt land. Á skrifstofu félagsins vinna sex starfsmenn í fimm stöðugildum og eru skrifstofur félagsins staðsettar að Grensásvegi 16 í Reykjavík. Fjölmennt félag „Alls eru félagsmenn SLFÍ 2.050. Þar til viðbótar eru lífeyrisþegar og fag- félagar, það er sjúkraliðar sem starfa við annað, svo umfangið er talsvert. Félagið samanstendur af níu lands- hlutadeildum og þremur fagdeild- um og mynda formenn landshluta- deildanna hina eiginlegu félags- stjórn, ásamt þeim sem kosnir hafa verið sérstaklega í framkvæmda- stjórn. Formaður er kosinn í allsherj- aratkvæðagreiðslu og er fulltrúaþing haldið árlega,“ útskýrir Kristín. Trúnaðarmannaráð SLFÍ sam- anstendur af öllum trúnaðarmönn- um félagsins og kemur saman að lágmarki einu sinni á ári og oftar ef þurfa þykir. Þá er Sjúkraliðafélag Íslands aðili að BSRB og er eitt af stærstu aðildarfélögum þess. Löggild starfsstétt „Sjúkraliðastéttin er löggild starfs- stétt og starfar samkvæmt núgild- andi lögum um heilbrigðisstarfs- menn sem gildi tóku 1. jan 2013. Áður starfaði stéttin undir sérlög- um um sjúkraliða frá 1986,“ segir Kristín. „Við erum í nánu samstarfi við systursamtök okkar í Evrópu og höfum um nokkurt skeið haldið sér- stakan Evrópudag sjúkraliða, sem er 26. nóvember. Þema þessa árs verð- ur sérstök áhersla á vinnuvernd og mótmæli við gríðarlegu starfsálagi á stéttina.“ Kristín bendir á að sjúkraliða- stéttin hafi þurft að beita verkfalls- rétti til að ná fram kröfum sínum og þá sérstaklega í upphafi samnings- réttarins, þegar sýna þurfti fram á að félagið hefði styrk og rétt til að semja sjálft um kjör sín og kaup. Í dag semji félagið sjálft um öll sín kjaramál. Heimasíða félagsins er www.slfi.is. STÉTTARFÉLÖG FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2013 Kynningarblað Við höfum lagt mikla áherslu á að grunnmenntun sjúkra-liða sé góð, þá er boðið upp á framhaldsmenntun á fjórða hæfni- þrepi við Fjölbrautaskólann við Ár- múla þar sem sjúkraliðar geta séræft sig. Boðið hefur verið upp á fram- haldsnám í öldrunar- og geðhjúkr- un og hafa um það bil 160 sjúkraliðar farið í gegnum þetta nám, sem tekur eitt ár. Unnið er að nýrri námskrá fyrir framhaldsnám við sótthreinsun, speglun og störf á skurðstofum sem væntanlega verður tilbúið 2015. Einn- ig er boðið upp á símenntunarnám- skeið hjá símenntunarmiðstöðinni Framvegis,“ segir Birna Ólafsdóttir, sjúkraliði og formaður fræðslunefnd- ar Sjúkraliðafélags Íslands. Hún segir sjúkraliðanámið vin- sælt nám og aðsóknin í námið hefur verið góð. „Einhver hópur heldur þó allt- af áfram til annarrar menntun- ar og starfa því sjúkraliðamennt- unin byggir á miklum samskiptum sem fólk getur nýtt sér í margvíslegri starfsemi.“ Fjölbreytt nám Sjúkraliðanámið sjálft er 120 ein- inga nám á framhaldsskólastigi og á þriðja hæfniþrepi. Námið er kennt um allt land og í tveimur framhalds- skólum í Reykjavík, Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti og í Fjölbrautaskól- anum við í Ármúla. Námið tekur þrjú til þrjú og hálft ár og byggist upp á bóklegu námi, starfsþjálfun og vinnustaðanámi. Í vinnustaðanámi taka leiðbein- endur sem eru sjúkraliðar inni á deildum stofnana að sér sjúkraliða- nema og kenna þeim. Í starfsþjálfun á sjúkraliðaneminn að vera orðinn sjálfstæðari í starfi. „Sjúkraliðanemar fara yfirleitt á þrjú mismunandi svið, öldrunarsvið, handlækninga-, lyf lækningasvið og/eða sérdeild. Þeir öðlast því fjöl- breytta reynslu og eiga að geta geng- ið inn á hvaða svið sem er að námi loknu,“ útskýrir Birna og segir sjúkra- liða eftirsótta starfskrafta. „Sjúkra- liðar starfa mjög víða. Til dæmis á sjúkrahúsum og öldrunarheimilum, á læknastofum og í heimahjúkrun. Þörfin fyrir sjúkraliða í heimahjúkr- un fer vaxandi þar sem stefna heil- brigðisyfirvalda er að til dæmis aldr- aðir geti verið sem lengst heima.“ Öflugt framhaldsnám og símenntun „Þá bjóðum við upp á framhalds- nám á fjórða hæfnisstigi, sem er eins árs sérnám í geðhjúkrun og öldrunarhjúkrun í Fjölbraut í Ár- múla. Nú þegar hafa um það bil 160 sjúkraliðar farið í gegnum framhaldsnám. Við erum einnig að vinna að nýju framhaldsnámi sem fer í gang 2015, meðal annars á skurðstofum og fleiru,“ segir Birna og vill meina að sérhæfing sé það sem koma skal. „Sjúkraliðar eru að taka á sig meiri ábyrgð og sérmennta sig til þess. Sjúkraliðar eru einnig mjög duglegir að sækja sér símenntun en við höfum árum saman boðið upp á fjölmörg námskeið sem sjúkralið- ar geta bætt ofan á sinn grunn. Ég leyfi mér að fullyrða að þar sé engin heilbrigðisstétt með tærnar þar sem sjúkraliðar eru með hælana.“ Sjúkraliðanámið vinsælt Birna Ólafsdóttir, sjúkraliði og formaður fræðslunefndar SLFÍ, segir sjúkraliða eftirsótta til starfa á fjölbreyttum sviðum heilbrigðisgeirans. Félagið leggi mikinn metnað í menntun sjúkraliða og hefur aðsóknin í námið verið góð. Boðið er upp á grunnnám, framhaldsnám og símenntun. Birna Ólafsdóttir sjúkraliði og formaður fræðslunefndar Sjúkraliðafélags Íslands. MYND/GVA Yfir tvö þúsund félagsmenn Sjúkraliðafélag Íslands er landsfélag stofnað 21. nóvember árið 1966 og á því 50 ára afmæli 2016. Upphaflega var það fagfélag sem ekki hafði samningsrétt en árið 1992 hófst nýr kafli í sögu félagsins þegar sjúkraliðar náðu til sín samningsréttinum. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. MYND/ÚR EINKASAFNI Gunnar Örn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Ís- lands, segir að leiðrétta þurfi laun sjúkraliða. Stéttin haldi ekki í við aðrar stéttir innan BSRB en vinnu- álag stóraukist. Almennt séu sjúkra- liðar þó ánægðir í vinnunni. „Hagfræðingur félagsins tók saman launaþróun stéttarinnar frá árinu 1997 og bar saman við aðrar stéttir innan BSRB og fram kom að verulega þarf að leiðrétta laun stétt- arinnar, eins og fleiri stétta innan heilbrigðisgeirans,“ segir Gunnar. „Kjarakönnun Capacent sýndi fram á mikla óánægju sjúkraliða með launin og þar kom einnig fram að enn einu sinni hefur álagið auk- ist, á milli áranna 2012 og 2013. Þrátt fyrir álagið og í allt of mörgum tilvik- um lág laun, þá eru sjúkraliðar víða um land virkilega ánægðir í störfum sínum,“ bendir Gunnar á. Hann segir að sjúkraliðum þyki vænt um starf- ið og þá sem þeir þjóni og vinni með. „Þá skiptir ekki síður máli að innan heilbrigðiskerfisins eru víða hæfir stjórnendur svo fólki líður vel í vinnunni þrátt fyrir allt. SLFÍ hóf í haust að verðlauna þann stjórnanda sem hefur þótt skara fram úr og getur stjórnað sínu fólki á jákvæðan hátt og með gagnkvæmri virðingu.“ Ánægja með störf SLFÍ Í könnun Capacent kemur fram að sjúkraliðar á öllu landinu nýta sér þjónustu skrifstofu SLFÍ mikið og er almenn ánægja með þjón- ustuna. „Það gleður okkur auðvitað sem sinnum þeirri þjónustu,“ segir Gunnar. „Það er metnaður allra sem vinna á skrifstofu Sjúkraliðafélags Íslands að þjónusta okkar fólk sem allra best.“ Áhersla á orlofsmál „Eftir hrun hefur ásókn í orlofsbú- staði félagsins aukist töluvert og þar af leiðandi er meiri áhersla lögð á orlofsmál innanlands,“ segir Gunnar. „Félagsmenn SLFÍ eiga og reka sex orlofshús víðsvegar um landið og orlofsíbúð bæði í Reykja- vík og á Akureyri. Einnig leigir fé- lagið íbúð í Kaupmannahöfn og er allt þetta húsnæði vel nýtt árið um kring. Yfir sumartímann leigir fé- lagið þar að auki fjögur hús til við- bótar, í Bolungarvík, á Seyðisfirði, í Stykkishólmi og á Hellisandi og tvo tjaldvagna. Þá hefur orlofsnefnd skipulagt og niðurgreitt tvær nokk- urra daga gönguferðir innanlands með leiðsögumanni sem einnig er sjúkraliði. Við höfum þar að auki verið með til sölu gjafabréf frá WOW og Icelandair. Orlofssjóður niður- greiðir einnig hótelmiða, veiðikort- ið, útilegukortið, golfkortið, ferðir hjá FÍ og dvöl í íbúðum á Spáni svo eitthvað sé nefnt.“ Sjúkraliðar ánægðir, þrátt fyrir allt Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands, segir almenna starfsánægju ríkja í röðum sjúkraliða. Þeim þyki vænt um starfið og þá sem þeir þjónusta. Launaþróun stéttarinnar sé þó ekki í takt við menntunina og aukið álag. Starfsfólk SLFÍ leggi mikinn metnað í að þjónusta félagsmenn. Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Sjúkraliða- félags Íslands, afhendir Lilju Hauksdóttur, deildarstóra á Mörkinni hjúkr- unarheimili, viðurkenningu fyrir góða stjórnun. MYND/ÚR EINKASAFNI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.