Fréttablaðið - 22.11.2013, Side 40
Félag íslenskra
náttúrufræðinga
Félag íslenskra náttúrufræðinga, skammstafað
FÍN, var stofnað af nokkrum náttúrufræðingum
árið 1955. FÍN er eitt af stærstu aðildarfélögum
Bandalags háskólamanna (BHM) sem eru heildar-
samtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði.
Alls starfa rúm 30% félagsmanna FÍN á almennum markaði
og tæp 70% á opinberum markaði, þ.e. hjá ríkinu, sveitar-
félögum, sjálfseignastofnunum og öðrum sem hafa gert
kjarasamninga við FÍN sem byggja á ríkissamningum.
Hlutverk félagsins er að stuðla að samvinnu og
samheldni náttúrufræðinga á Íslandi og að bæta
markvisst kjör félagsmanna sinna. Félagið annast
gerð kjarasamninga fyrir félagsmenn sína sem félags-
menn greiða atkvæði um.
Aðild að FÍN er háð ákveðnum skilyrðum samkvæmt
lögum félagsins. Þeir geta orðið félagsmenn í FÍN sem
hafa lokið bachelor-prófi eða sambærilegri menntun í
náttúrufræðum, arkitektúr eða öðrum tengdum
greinum frá háskóla eða hliðstæðum menntastofnu-
num. Nemar í náttúrufræðum, arkitektúr eða öðrum
tengdum greinum geta sótt um aukaaðild að félaginu
þegar þeir hafa lokið a.m.k. eins árs háskólanámi og
ráðnir eru til tímabundinna faglegra starfa. Aukaaðild
veitir full félagsréttindi önnur en kjörgengi. Umsókn um
aðild að félaginu skal vera skrifleg og hægt er að senda
inn umsókn í gegnum heimasíðu félagsins www.fin.is,
ásamt afriti af prófskírteinum.
Stjórnarmenn og trúnaðarmenn FÍN eru mjög virkir í
félaginu, en stjórn félagsins hittist mánaðarlega og
trúnaðarmenn og stjórn tvisvar á ári. Félagið er skipað
20 stjórnarmönnum og af þeim skipa 5 stjórnarmenn
framkvæmdastjórn félagsins. Formaður FÍN heimsækir
árlega alla vinnustaði þar sem 5 eða fleiri félagsmenn
starfa, en félagsmenn eru út um allt land. Á vinnustaða-
fundnum fer formaður yfir kjaraumhverfi náttúru-
fræðinga, launaþróun og ýmis réttindamál.
Félagið hefur mótað sér stefnu til ársins 2017 og er
hún aðgengileg á heimasíðu félagsins. Í þessari stefnu
hefur stjórn dregið upp mynd af félaginu eins og stjórn-
endur FÍN vilja sjá stöðu félagsins árið 2017, unnið er
markvisst að og samkvæmt þessari framtíðarsýn.
FÍN er umhugað að veita persónulega, faglega og
góða þjónustu. Félagið veitir margskonar aðstoð og
ýmsa þjónustu. Þar má nefna að félagið aðstoðar félags-
menn við að ná fram rétti sínum ef ekki er staðið við
gerða samninga. Félagið kemur ekki beint að persónu-
bundnum ráðningarsamningum, en leiðbeinir félags-
mönnum um það sem betur má fara í ráðningarsamningi.
Félagið aðstoðar félagsmenn sína við að undirbúa sig
undir launaviðtal.
Á skrifstofunni eru þrír starfsmenn í fullu starfi, sem
aðstoða félagsmenn FÍN og veita þeim persónulega
ráðgjöf sé eftir því leitað. Formaður FÍN er Páll Halldórsson,
framkvæmdastjóri FÍN er Maríanna H. Helgadóttir og
móttöku- og skjalafulltrúi FÍN er Margrét Rafnsdóttir. Hafið
samband við félagið í síma 5955175 eða sendið tölvupóst
á netfangið fin@bhm.is ef þú vilt panta viðtal við formann
eða framkvæmdastjóra félagsins.
Félag íslenskra náttúrufræðinga er stéttarfélag
og er fyrsti kostur náttúrufræðinga hvort sem
þeir starfa á opinberum eða almennum markaði.
Við hvetjum félagsmenn okkar og aðra sem hafa áhuga á félaginu að
heimsækja heimasíðu félagsins www.fin.is en þar eru ýmsar upplýsingar
um stéttarfélagið.