Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 42

Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 42
KYNNING − AUGLÝSINGBandalag háskólamanna FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 201310 „Það sem SBU vill leggja mesta áherslu á í komandi kjaraviðræðum er að laun okkar fólks hækki en með áherslu á að styrkja kaupmátt jafnframt því að ná fram launajafnrétti kynjanna. Margir innan okkar félags hafa dregist aftur úr hvað varðar laun þar sem flestir í okkar stétt vinna hjá hinu opinbera en laun á almennum markaði eru allt að 20% hærri. Við teljum nauðsynlegt að þeir sem leggja á sig langt nám í háskóla eigi að njóta samkeppnishæfra launa. Það er mikil breyting í starfsþróun stéttarinnar, áður fyrr voru f lestir með okkar menntun að vinna á bókasöfnum en í dag vinnur meirihlutinn við skjala- stjórn, stjórnun á upplýsingum og miðl- un þeirra. Við viljum gera okkar stétt meira gildandi í þessum störfum og viljum stefna að því að fólk með okkar menntun sé það fyrsta sem atvinnu- rekendum dettur í hug þegar kemur að þessum störfum. Einnig viljum við sjá að réttur til námsleyfa sem nú er í samningum við ríkið verði einnig í samningum við sveitarfélög ásamt við almenna mark- aðinn. Það er mikill munur á að eiga rétt á að sækja um námsleyfi eða að hafa rétt á námsleyfi. Stór hluti háskólamenntaðra greið- ir af námslánum en hefur ekki fengið þau lán virt í aðgerðum vegna skuld- setningar né við útreikninga á heild- arskuldum. Okkur finnst að þau eigi að vera frádráttarbær til skatts til jafns við önnur lán. Einnig að af þeim reikn- ist vaxtabætur, að þau verði tekin með í eignastöðu við þær aðgerðir hjá hinu opinbera vegna skuldsetningar hjá al- menningi. Námslán eru ekki frábrugðin öðrum lánum, af þeim þarf að greiða.“ Vilja samkeppnis- hæf laun Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga leggur mesta áherslu á hærri laun hjá hinu opinbera og launajafnrétti kynjanna í komandi kjaraviðræðum. Eins að námslán verði frádráttarbær til skatts til jafns við önnur lán. Sigrún Guðnadóttir, formaður SBU, segir flesta bókasafns- og upplýsingafræðinga vinna hjá hinu opinbera en laun á almennum markaði eru allt að 20% hærri. MYND/STEFÁN Það er mjög margt í gangi hjá okkur núna,“ segir Alda Hrönn. „Við erum að undirbúa okkur fyrir komandi kjarasamninga. Einnig er átak í gangi að fjölga félagsmönnum, sérstaklega af hinum almenna vinnumarkaði, sem hefur geng- ið vel. Meirihlutinn hefur verið opinberir starfsmenn. Þar utan viljum við auka stéttarfélags- vitund félagsmanna sem okkur hefur ekki þótt nógu mikil,“ bætir hún við. „Við teljum að samtakamáttur okkar sé bestur ef allir lögmenn séu í félaginu. Sumir þeirra sem starfa á lög- mannsstofum eru í VR. Hags- munum þeirra er betur borgið hjá okkur.“ Til að gerast aðili að Stéttar- félagi lögfræðinga þarf að hafa lokið BA-prófi í lögfræði. „Við höfum gert samninga við nem- endafélög í háskólum um að kynna starfsemi félagsins fyrir laganemum. Við bjóðum nema- aðild en með skertum réttind- um. Það væri gott að ná grasrót- inni inn í félagið þannig að vit- undin verði meiri hjá komandi kynslóðum. Einnig er fyrirhug- að að vinna meira í samstarfi við Lögfræðingafélagið og Lög- mannafélagið sem eru fagfélög. Það hefur orðið mikil breyting á lögfræðistéttinni undanfar- in ár með fjölgun lagadeilda og þar með meiri fjölda lögfræð- inga. Það er mun meira framboð af laganámi hér heldur en þekk- ist í nágrannalöndum okkar. Vegna þess hefur orðið offram- boð af lögfræðingum og við vilj- um skoða hvort það sé ákjósan- legt. Félagið er með mikla þjón- ustu. Fjórir starfsmenn leggja sig fram um að veita hana. Lög- fræðingar geta til dæmis fengið aðstoð með ráðningarsamninga og upplýsingar um launakjör og aðstoð ef vandamál koma upp á milli starfsmanns og vinnuveit- anda. Félagsmenn hafa aðgang að góðum sjóðum, til dæmis styrktarsjóði, sjúkrasjóði, starfs- menntunarsjóði og orlofssjóði. Einnig er ókeypis fræðsla í boði hjá BHM sem er eingöngu fyrir háskólamenntaða og sniðin að þeirra þörfum. Við viljum gera félagsmenn virkari en þannig náum við bestum árangri.“ Alda Hrönn hefur verið for- maður frá árinu 2008 og segir að margt hafi breyst frá því að hún byrjaði. „Félagið hefur verið í stöðugri þróun. Það var ákveð- in stöðnun sem ríkti í hruninu þrátt fyrir að mikil eftirspurn væri eftir lögfræðingum. Sú eft- irspurn er ekki lengur fyrir hendi og það er áhyggjuefni. Aldrei hafa fleiri lögfræðingar verið at- vinnulausir en núna,“ segir hún. „Við höfum gert kannanir meðal félagsmanna og spurt hvað þeir vilji sjá í komandi kjarasamningum. Flestir vilja aukinn kaupmátt, hærri grunn- laun og jöfn laun kynjanna,“ segir Alda Hrönn og hvetur lög- fræðinga til að kynna sér hvað fé- lagið hefur upp á að bjóða. Auka þarf stéttar- vitund lögfræðinga Alda Hrönn Jóhannsdóttir er formaður Stéttarfélags lögfræðinga. Félagið er innan BHM með vel á sjötta hundrað félagsmenn og rekur skrifstofu með fjórum öðrum aðildarfélögum. Alda Hrönn Jóhannesdóttir, formaður Stéttarfélags lögfræðinga, segir að margt sé í gangi hjá félaginu um þessar mundir. MYND/GVA Flestir vilja aukinn kaupmátt, hærri grunnlaun og jöfn laun kynjanna. Stór hluti háskóla- menntaðra greiðir af námslánum en hefur ekki fengið þau lán virt í aðgerðum vegna skuldsetningar né við útreikninga á heildarskuldum. Okkur finnst að þau eigi að vera frádráttarbær til skatts til jafns við önnur lán. 8

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.