Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 30
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Fréttablaðið leitaði til álitsgjafa og voru
þeir beðnir um að nefna bestu og verstu
bókatitlana, með hliðsjón af því hvort þeir
hitta í mark eður ei án tillits til gæða sjálfra
verkanna.
Margir titlar voru nefndir til sögunnar
og fengu nokkrar bækur bæði atkvæði fyrir
besta og versta bókartitilinn. Fréttablaðið
hefur áður staðið fyrir sams konar könnun
á bókatitlum. Fyrir jólin 2010 þótti Doris
deyr eftir Kristínu Eiríksdóttur besti titill-
inn og Martröð millanna eftir Óskar Hrafn
Þorvaldsson sá versti. Tveimur árum fyrr,
árið 2008, þótti titill bókarinnar 10 ráð til
að hætta að drepa fólk og fara að vaska upp
eftir Hallgrím Helgason sá versti. Bókin
var svo gefin út í Þýskalandi og fékk þar
verðlaun sem besti titill ársins. Misjafn er
mannanna smekkur.
Stúlka með
maga besti
bókartitillinn
BESTU BÓKATITLARNIR
BESTI TITILLINN
Stúlka
með maga
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir
„Gott að halda á lofti jákvæðum
líkamsímyndum fyrir stúlkur,
nú á þessum síðustu og verstu
internettímum.“ Vigdís Þormóðsdóttir
„Orðið magi er ekki algengt í titlum
skáldverka. Kallast fallega á við titil
á bók eftir sama höfund, Stúlka með
fingur.“ Brynhildur Björnsdóttir
„Mann langar ósjálfrátt að lesa
bókina til að fá botn í titilinn. Þetta
er framhald af Stúlku með fingur, svo
Þórunn á nóg af líkamspörtum eftir í
seríuna.“ Stefán Pálsson
Brynhildur Björnsdóttir dagskrárgerðarmaður
Brynja Þorgeirsdóttir dagskrárgerðarmaður
Kolbeinn Óttarsson Proppé upplýsingafulltrúi
Ólafur Sindri Ólafsson þýðandi
Pétur Jónsson tónlistarframleiðandi
Ragnheiður Tryggvadóttir blaðamaður
Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur
Álitsgjafar
VERSTU BÓKATITLARNIR
VERSTI TITILLINN
Bananasól
Björk Þorgrímsdóttir
„Í alvöru? Kallar fram hugrenningartengsl um Sanasól stappað
saman við banana.“ Þorgils Jónsson
„Að það sé til bók sem heitir Bananasól ber sennilega vitni
mikillar hugmyndaauðgi, en um leið og ég las titilinn tók ég
nú samt óhagganlega ákvörðun um að bók með slíku nafni
skyldi aldrei prýða náttborðið mitt.“ Pétur Jónsson
„Fékk laglínuna „ring ring ring bananaphone“ á heilann þegar
ég sá þennan. Mér leiddist það.“ Ragnheiður Tryggvadóttir
Fiskarnir hafa enga fætur
Jón Kalmann Stefánsson
„Grípandi titill. Þó flestir myndu ekki setja sig
upp á móti þessari staðhæfingu og þykjast
alltaf hafa vitað... þá rennur hún samt upp
fyrir fólki eins og opinberun. Snjallt!“
Viðar Eggertsson
„Nei, þeir gera það ekki og maður veit
eiginlega ekki hvort maður á að fagna því
að þeir geti ekki hlaupið mann uppi eða
vorkenna þeim... og segir ekkert um bókina.“
Brynhildur Björnsdóttir
5. SÆTI
Skuggasund
Arnaldur Indriðason
„Hvað getur glæpasaga sem
gerist í Reykjavík heitið
annað?“ Viðar Eggertsson
„Með því að taka þetta
götuheiti út úr sínu venjulega
samhengi skapast einhver
ógn.“ Örn Úlfar Sævarsson
4. SÆTI
Mánasteinn
Sjón
„Einfaldur og hnitmiðaður
titill sem vekur áhuga.“
Soffía Auður Birgisdóttir
„Innan um allra
einsorðstitlana kemur loksins
einn með smá orðaleik eða
tvöfaldri merkingu.“
Stefán Pálsson
3. SÆTI
My Pussy is
Hungry
Hugleikur Dagsson
„Langbesti titill ársins.
Mér finnst líka risastóra
plakatið af kápu bókarinnar
í glugga Máls og menningar
á Laugaveginum vera besta
innsetning ársins.“ Sunna Ben
„Án efa mest ögrandi titill
ársins.“ Örn Úlfar Sævarsson
2. SÆTI
1983
Eiríkur Guðmundsson
„Töff nafn á skáldsögu. Ekki 1984, heldur 1983. Vekur alls
konar hugrenningartengsl og hrindir mér út í alls konar
pælingar. Hef ekki lesið hana en langar til þess bara út af
titlinum.“ Brynja Þorgeirsdóttir
„Tölustafir og ártöl höfða sterkt til mín í einfaldleika
sínum. Árið 1983 var líka skemmtilegt ár, ég var átta ára.“
Ragnheiður Tryggvadóttir
„Nostalgíulegur titill sem vekur upp áhuga allra sem lifðu
þessa tíma. Vísunin í Orwell skemmir ekki fyrir.“
Kolbeinn Óttarsson Proppé
5. SÆTI
Ekki þessi týpa
Björg Magnúsdóttir
„Finnst þessi titill ávísun á
eitthvert jag og þreytandi vesen á
sögupersónunni, sem ég hef litla
þolinmæði fyrir.“
Ragnheiður Tryggvadóttir
4. SÆTI
Látið síga piltar
Óskar Magnússon
„Mjög neftóbakslegur titill.“
Soffía Auður Birgisdóttir
„Má láta bækur bera þennan
titil nema um sé að ræða
endurminningar togaraskipstjóra frá
áttunda áratugnum?“
Stefán Pálsson
3. SÆTI
Blóð hraustra
manna
Óttar M. Norðfjörð
„Virkar eins og titill á hetjusögu
úr heimsstyrjöldinni, þá líklega
frekar fyrri en síðari, eða
einhverri hrakningasögu frá
19. öld. Gæti mögulega gengið
sem lesefni í Blóðbankanum
eða til að höfða til ímyndaðrar
karlmennsku tilvonandi
blóðgjafa.“ Kolbeinn Óttarsson
Proppé
„Úff, fékk einhverskonar klénan
karlrembuhroll niður bakið. Þó
er gaman að lesa þennan með
leikrænum tilþrifum.“
Ragnheiður Tryggvadóttir
2. SÆTI
Guðni – Léttur í
lund
Guðni Ágústsson
„Flatur og eintóna titill sem skilur
ekkert eftir sig, nema gamalt
popplag sönglandi í höfðinu:
„Léttur í lundu ég lagði af stað...““
Brynja Þorgeirsdóttir
„Þar sem þrjú orð koma saman,
þar er klisjukenndasti undirtitill
síðari tíma.“
Ólafur Sindri Ólafsson
Vince Vaughn í skýjunum
Halldór Armand Ásgeirsson
„Þetta er skemmtilega utan af kanti og talsvert
grípandi og eftirminnilegt, ekki bara af því að ég
hef gaman af Vince Vaughn.“ Þorgils Jónsson
„Fyrir utan popptexta sem innihalda titla annarra
dægurlaga, er ekkert hallærislegra en bókartitlar
með nöfnum frægðarfólks.“
Stefán Pálsson
Sérðu
harm minn,
sumarnótt?
Bjarki Bjarnason
„Ljóðrænn og grípandi
titill.“
Brynhildur Björnsdóttir
„Hrikalega
tilgerðarlegur titill.“
Soffía Auður Birgisdóttir
Hann
Börkur Gunnarsson
„Einfaldur og sterkur titill. Segir ekki mikið,
svo mig langaði að vita meira og fór og
kynnti mér um hvað hún var. Fyrst ég bar
mig eftir því, hefur eitthvað tekist vel til.
Flott kápa spillir ekki fyrir.“ Pétur Jónsson
„Hver? Einhver maður bara. Veit ekki meir.“
Vigdís Þormóðsdóttir
UMDEILDUSTU TITLARNIR
Jafn mörgum álitsgjöfum þóttu titlar eftirfarandi verka góðir og slæmir:
Titlar bóka eru mikilvægir og telja margir að góðir slíkir þurfi að
fela ýmislegt í sér, til að mynda að vera forvitnilegir, söluhvetj-
andi og lýsa umfjöllunarefni bókanna. Fréttablaðið leitaði álits
valinkunns andans fólks á bestu og verstu bókartitlum ársins.
Stefán Pálsson sagnfræðingur
Sunna Ben listamaður
Viðar Eggertsson leikhússtjóri
Vigdís Þormóðsdóttir upplýsingafræðingur
Þorgils Jónsson blaðamaður
Örn Úlfar Sævarsson hugmyndasmiður
og spurningahöfundur
„Minnir annars vegar á titil
á unglingasögu frá níunda
áratugnum og hins vegar á titla á
sjálfshjálparbókum, Not My Type,
He‘s Just Not That Into You, eða
hvað þetta heitir. Var þessi Chick
lit-bylgja ekki hjöðnuð?“
Kolbeinn Óttarsson Proppé