Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 32
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Fyrsta mót UFC var hald-ið fyrir 20 árum í Den-ver árið 1993. Þá var hugtakið „blandaðar bardaga íþróttir“ ekki til heldur hafði hver bardagamaður sinn eigin stíl. Sumir kepptu í boxi, aðrir í karate eða mu thai og enn aðrir í glímu. Tilgangurinn með fyrsta UFC- mótinu var að leiða mismunandi stíla saman og sjá hvaða bardaga- aðferð væri best. UFC sótti inn- blástur sinn víða að, til að mynda í tölvuleikinn Mortal Kombat sem var á þessum tíma afar umdeild- ur fyrir gróft ofbeldi. Það voru engir þyngdarflokkar eða lotur heldur mættust keppendur í átt- hyrnda búrinu og börðust þar til yfir lauk. Fyrsti sigurvegarinn í UFC var ungur, slánalegur piltur sem barðist í karateslopp. Hann hét Royce Gracie og var hluti af fjölskyldu sem hafði búið til nýja tegund af sjálfsvarnarlist – brasilískt jiu-jitsu. Royce Gra- cie tók hvern andstæðinginn af fætur öðrum, dró þá á gólfið og læsti í stöðum sem ómögulegt var að losna úr. Royce Gracie sýndi heiminum mátt brasilísks jiu-jitsu en óyfirlýstur tilgangur fyrstu UFC-keppninnar var að auglýsa bardagakerfi fjölskyldunnar. Engar reglur Á þessum tíma var slagorð UFC: Það eru engar reglur! Þegar horft er á upptökur frá fyrstu mótunum er ofbeldið á stundum yfirþyrmandi. Það mátti rífa í hár, berja í pung, rífa sundur varir (kallað „fiskikrók- ur“), skalla og henda mönnum yfir búrið. Það var reyndar bannað að bíta en í lagi að sparka í liggjandi mann. Það voru heldur engir hansk- ar líkt og í UFC í dag heldur börðust menn með berum hnefum. Þessi áhersla UFC á regluleysi var bæði blessun og bölvun. Ofbeldið og blóðið vakti gríðarlega athygli á UFC sem varð á skömmum tíma vinsælt sjónvarpsefni í Bandaríkj- unum og aðdáendum fjölgaði hratt. En regluleysið átti líka eftir að kosta UFC peninga og tíma í rétt- arsölum, sérstaklega eftir að þing- maðurinn John McCain steig fram og líkti UFC við hanaat með lifandi einstaklingum. Þessi stimpill átti eftir að loða við UFC árum saman. Reynt var að bæta við reglum, hinir umdeildu „fiskikrókar“ voru bann- aðir, líka að pota í augu og keppend- ur voru skyldaðir til að vera með hanska. Mennskt hanaat „Mennska hanaatið“ var bannað í einu ríki í Banda- ríkjunum og erfitt reyndist að fá leyfi í öðrum ríkjum. Eigend- ur UFC stefndu í gjald- þrot. Um aldamótin var UFC selt. Nýju eig- endurnir voru einlæg- ir aðdáendur bland- aðra bardagaíþrótta og gullöld UFC gekk í garð. UFC keypti upp samkeppnina – til að mynda hina vinsælu Pride-bardagakeppni í Japan sem var á tíma- bili stærri en UFC. Það var ekki bara nýtt fjármagn sem breytti ásýnd UFC. Gamli götubardagastimpillinn var end- anlega máður út. Nýjar reglur, með því markmiði að gera bardagana öruggari, voru kynntar og í raun varð ný íþrótt til – MMA eða bland- aðar bardagalistir sem allur heim- urinn þekkir í dag. Menn á borð við Anderson Silva og George St. -Pierre urðu stærstu stjörnur blandaðra bardagaíþrótta í sögunni. Það var ekki tilviljun að UFC fékk Kandamaninn George St. Pierre til að berjast við áskorand- ann Johny Hendricks síðustu helgi þegar UFC fagnaði 20 ára afmæli sínu. Umdeildar ákvarðanir hafa sett svip sinn á þessi fyrstu 20 ár UFC og afmælisviðburðurinn var þar ekki undanskilinn. George St. Pierre var laminn eins og harðfisk- ur af áskorandanum en dómarar veittu Kanadamanninum sigurinn á silfurfati. Umdeild ákvörðun eins og sportið sjálft. Ofbeldisfyllsta íþrótt í heimi UFC fagnaði 20 ára afmæli um síðustu helgi. Í upphafi UFC var allt leyfilegt og gróft ofbeldið vakti hörð viðbrögð. Með árunum hefur íþróttin þróast og nú eiga Íslendingar sinn fulltrúa í búrinu. „Ég byrjaði upphaflega að fylgjast með elstu keppn- unum, UFC 1 og þessu fyrsta tímabili. Bardagarnir voru til á VHS-spólum í Bónusvídeói í Mosó. Vinur minn, Steindi Jr., sagði mér frá þessum spólum. Þetta var svolítið eins og að stelast til að horfa á klám, spennandi og bannað. Maður trúði ekki eigin augun þegar menn voru kýldir liggjandi!“ segir Hall- dór sem hefur lýst UFC á Stöð 2. „Í byrjun var þetta miklu meira ofbeldi en nú er þetta orðin alvöruíþrótt. ímynd íþróttarinnar er miklu jákvæðari í dag. Harðjaxlaímyndin er að hverfa og með auknu öryggi verður þetta aðgengilegra fyrir almenning. Í dag er MMA ekki lengur jaðarsport fyrir mótorhjólatöffara heldur ein vinsælasta íþrótt í heimi.“ ➜ „Eins og að horfa á klám“ „Ég kynntist UFC fyrst þegar ég var 17 ára og æfði karate. Ég byrjaði að æfa með Jóni Viðari Arnþórssyni, sem nú er formaður Mjölnis. Hann hafði fylgst með UFC og Pride og kynnti mig fyrir þessu. Við prófum svo að glíma og höfum ekki stoppað síðan,“ segir Gunnar. Hann segir Pride hafa verið vinsælla í sínum vinahópi en UFC. „Þar voru olnbogahögg bönnuð en það mátti nota svokölluð „fótboltaspörk“ (sparka í menn liggjandi, innsk. blm.). En annars var þetta svipað og UFC. Reyndar voru bara þrjár reglur í UFC á þessum tíma. Það var bannað að pota í augu, nota fiskikróka og bíta. En allt annað var leyfilegt og engar hlífar nema punghlíf og gómur. Engir hanskar eða svoleiðis. Svo þetta var helvíti hart og alls ekki eins sjónvarps- vænt og í dag.“ Gunnar hefur unnið tvo fyrstu bardaga sína í UFC. Hvernig tilfinning er það að keppa í búrinu? „Ég fann ekki svo mikið fyrir stressi eða svoleiðis þegar ég labbaði inn í búrið. Hafði oft keppt með myndavélar á mér áður. En maður finnur fyrir þessu fyrir utan búrið. Það er allt miklu stærra. Fleiri áhorfendur, meiri læti og umstang, fleiri blaðamenn og viðtöl. Þarna er elíta bardagamanna í heiminum og það er ótrúlega gaman og hvetjandi að vera hluti af þessu.“ Finn ekki fyrir stressi í búrinu BLÓÐUG ÍÞRÓTT UFC hefur oft vakið reiði vegna yfirgengilegs ofbeldis. SÉRFRÆÐINGUR Í BARDAGAÍÞRÓTTUM Halldór Halldórsson hefur fylgst með UFC frá upphafi. Símon Birgisson simon@frettabladid.is HIÐ ÓGNVÆNLEGA ÁTTHYRNDA BÚR Aðeins einn stendur uppi sem sigurvegari. MYND/GETTY GUNNAR NELSON BARDAGAKAPPI Er eini Íslendingurinn sem keppt hefur í UFC. Í BÚRINU UM SÍÐUSTU HELGI Georges Saint- Pierre varði heimsmeistaratitil sinn í umdeildum bardaga. MYND/GETTY ROYCE GRACIE BERST Í UFC kynnti heiminn fyrir brasilísku jiu-jitsu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.