Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 32
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Fyrsta mót UFC var hald-ið fyrir 20 árum í Den-ver árið 1993. Þá var hugtakið „blandaðar bardaga íþróttir“ ekki til heldur hafði hver
bardagamaður sinn eigin stíl.
Sumir kepptu í boxi, aðrir í karate
eða mu thai og enn aðrir í glímu.
Tilgangurinn með fyrsta UFC-
mótinu var að leiða mismunandi
stíla saman og sjá hvaða bardaga-
aðferð væri best. UFC sótti inn-
blástur sinn víða að, til að mynda
í tölvuleikinn Mortal Kombat sem
var á þessum tíma afar umdeild-
ur fyrir gróft ofbeldi. Það voru
engir þyngdarflokkar eða lotur
heldur mættust keppendur í átt-
hyrnda búrinu og börðust þar til
yfir lauk.
Fyrsti sigurvegarinn í UFC
var ungur, slánalegur piltur
sem barðist í karateslopp. Hann
hét Royce Gracie og var hluti
af fjölskyldu sem hafði búið til
nýja tegund af sjálfsvarnarlist
– brasilískt jiu-jitsu. Royce Gra-
cie tók hvern andstæðinginn af
fætur öðrum, dró þá á gólfið og
læsti í stöðum sem ómögulegt var
að losna úr. Royce Gracie sýndi
heiminum mátt brasilísks jiu-jitsu
en óyfirlýstur tilgangur fyrstu
UFC-keppninnar var að auglýsa
bardagakerfi fjölskyldunnar.
Engar reglur
Á þessum tíma var slagorð UFC:
Það eru engar reglur! Þegar horft er
á upptökur frá fyrstu mótunum er
ofbeldið á stundum yfirþyrmandi.
Það mátti rífa í hár, berja í pung,
rífa sundur varir (kallað „fiskikrók-
ur“), skalla og henda mönnum yfir
búrið. Það var reyndar bannað að
bíta en í lagi að sparka í liggjandi
mann. Það voru heldur engir hansk-
ar líkt og í UFC í dag heldur börðust
menn með berum hnefum.
Þessi áhersla UFC á regluleysi var
bæði blessun og bölvun. Ofbeldið
og blóðið vakti gríðarlega athygli
á UFC sem varð á skömmum tíma
vinsælt sjónvarpsefni í Bandaríkj-
unum og aðdáendum fjölgaði hratt.
En regluleysið átti líka eftir að
kosta UFC peninga og tíma í rétt-
arsölum, sérstaklega eftir að þing-
maðurinn John McCain steig fram
og líkti UFC við hanaat með lifandi
einstaklingum. Þessi stimpill átti
eftir að loða við UFC árum saman.
Reynt var að bæta við reglum, hinir
umdeildu „fiskikrókar“ voru bann-
aðir, líka að pota í augu og keppend-
ur voru skyldaðir til að vera með
hanska.
Mennskt hanaat
„Mennska hanaatið“ var
bannað í einu ríki í Banda-
ríkjunum og erfitt
reyndist að fá leyfi í
öðrum ríkjum. Eigend-
ur UFC stefndu í gjald-
þrot. Um aldamótin
var UFC selt. Nýju eig-
endurnir voru einlæg-
ir aðdáendur bland-
aðra bardagaíþrótta
og gullöld UFC gekk í
garð. UFC keypti upp
samkeppnina – til að
mynda hina vinsælu
Pride-bardagakeppni í
Japan sem var á tíma-
bili stærri en UFC. Það
var ekki bara nýtt fjármagn
sem breytti ásýnd UFC. Gamli
götubardagastimpillinn var end-
anlega máður út. Nýjar reglur, með
því markmiði að gera bardagana
öruggari, voru kynntar og í raun
varð ný íþrótt til – MMA eða bland-
aðar bardagalistir sem allur heim-
urinn þekkir í dag.
Menn á borð við Anderson Silva
og George St. -Pierre urðu stærstu
stjörnur blandaðra bardagaíþrótta
í sögunni. Það var ekki tilviljun að
UFC fékk Kandamaninn George St.
Pierre til að berjast við áskorand-
ann Johny Hendricks síðustu helgi
þegar UFC fagnaði 20 ára afmæli
sínu. Umdeildar ákvarðanir hafa
sett svip sinn á þessi fyrstu 20 ár
UFC og afmælisviðburðurinn var
þar ekki undanskilinn. George St.
Pierre var laminn eins og harðfisk-
ur af áskorandanum en dómarar
veittu Kanadamanninum sigurinn
á silfurfati. Umdeild ákvörðun eins
og sportið sjálft.
Ofbeldisfyllsta íþrótt í heimi
UFC fagnaði 20 ára afmæli um síðustu helgi. Í upphafi UFC var allt leyfilegt og gróft ofbeldið vakti hörð viðbrögð.
Með árunum hefur íþróttin þróast og nú eiga Íslendingar sinn fulltrúa í búrinu.
„Ég byrjaði upphaflega að
fylgjast með elstu keppn-
unum, UFC 1 og þessu
fyrsta tímabili. Bardagarnir
voru til á VHS-spólum í
Bónusvídeói í Mosó. Vinur
minn, Steindi Jr., sagði mér
frá þessum spólum. Þetta
var svolítið eins og að
stelast til að horfa á klám,
spennandi og bannað.
Maður trúði ekki eigin
augun þegar menn voru
kýldir liggjandi!“ segir Hall-
dór sem hefur lýst UFC á Stöð 2. „Í byrjun var þetta miklu meira ofbeldi
en nú er þetta orðin alvöruíþrótt. ímynd íþróttarinnar er miklu jákvæðari
í dag. Harðjaxlaímyndin er að hverfa og með auknu öryggi verður þetta
aðgengilegra fyrir almenning. Í dag er MMA ekki lengur jaðarsport fyrir
mótorhjólatöffara heldur ein vinsælasta íþrótt í heimi.“
➜ „Eins og að horfa á klám“
„Ég kynntist UFC fyrst þegar ég var 17 ára og æfði karate. Ég byrjaði að
æfa með Jóni Viðari Arnþórssyni, sem nú er formaður Mjölnis. Hann hafði
fylgst með UFC og Pride og kynnti mig fyrir þessu. Við prófum svo að
glíma og höfum ekki stoppað síðan,“ segir Gunnar. Hann segir Pride hafa
verið vinsælla í sínum vinahópi en UFC. „Þar voru olnbogahögg bönnuð en
það mátti nota svokölluð „fótboltaspörk“ (sparka
í menn liggjandi, innsk. blm.). En annars var
þetta svipað og UFC. Reyndar voru bara
þrjár reglur í UFC á þessum tíma. Það var
bannað að pota í augu, nota fiskikróka
og bíta. En allt annað var leyfilegt
og engar hlífar nema punghlíf
og gómur. Engir hanskar eða
svoleiðis. Svo þetta var helvíti
hart og alls ekki eins sjónvarps-
vænt og í dag.“ Gunnar hefur
unnið tvo fyrstu bardaga sína í
UFC. Hvernig tilfinning er það
að keppa í búrinu? „Ég fann
ekki svo mikið fyrir stressi
eða svoleiðis þegar ég labbaði
inn í búrið. Hafði oft keppt
með myndavélar á mér áður.
En maður finnur fyrir þessu
fyrir utan búrið. Það er allt
miklu stærra. Fleiri áhorfendur,
meiri læti og umstang, fleiri
blaðamenn og viðtöl. Þarna er elíta
bardagamanna í heiminum og það er
ótrúlega gaman og hvetjandi að vera hluti
af þessu.“
Finn ekki fyrir stressi í búrinu
BLÓÐUG ÍÞRÓTT UFC hefur oft vakið reiði vegna yfirgengilegs ofbeldis.
SÉRFRÆÐINGUR Í BARDAGAÍÞRÓTTUM
Halldór Halldórsson hefur fylgst með UFC frá upphafi.
Símon
Birgisson
simon@frettabladid.is
HIÐ ÓGNVÆNLEGA
ÁTTHYRNDA BÚR
Aðeins einn stendur
uppi sem sigurvegari.
MYND/GETTY
GUNNAR NELSON
BARDAGAKAPPI Er eini
Íslendingurinn sem keppt
hefur í UFC.
Í BÚRINU UM
SÍÐUSTU HELGI
Georges Saint-
Pierre varði
heimsmeistaratitil
sinn í umdeildum
bardaga.
MYND/GETTY
ROYCE GRACIE BERST Í UFC kynnti
heiminn fyrir brasilísku jiu-jitsu.