Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 39
Jólagjöf
jeppamannsins
Glæsilegt rit um Ferðaklúbbinn 4x4 í 30 ár. Um sex
hundruð ljósmyndir og kort. Í bókinni er fjallað um sögu
klúbbsins og einstakra deilda frá upphafi, sögu jeppa
á Íslandi, landmælingar og slóðamál, skála klúbbsins,
umhverfis- og tæknimál, ýmis hagnýt ráð fyrir fjallamenn
og þannig má lengi telja.
Það má enginn fjallamaður
missa af þessari bók!
Ólafur Haukur í essinu sínu!
Strákurinn Óli er að verða að manni – og skáldi. Glæsilegur lokahnykkur á
þríleiknum sem hófst með Flugu á vegg og Fuglalífi á Framnesvegi.
„Bókin er rosalega vel skrifuð ... dásamlegar lýsingar ...“
Egill Helgason, Kiljunni 30. okt.
„Það er virkilega hægt að hafa gaman að þesssari bók.“
Soffía Auður Birgisdóttir, Kiljunni 30. okt.
Endurminningar Ragnars
Stefánssonar jarðskjálftafræðings
Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur hefur lengi verið áberandi í íslensku
þjóðlífi. Í þessari bók rekur hann dramatíska fjölskyldusögu sína, uppvöxt og
áhrifavalda, starf sitt í áratugi sem einn helsti jarðskjálftafræðingur okkar, og
ekki síst pólitísk afskipti sín en hann varð snemma tákngervingur fyrir pólitískt
andóf gegn hersetu Bandaríkjanna á Íslandi, Víetnamstríðinu, og fyrir baráttu
íslenskrar alþýðu fyrir bættum kjörum.
Opinská og heiðarleg baráttusaga,
og jafnframt stórskemmtileg!
SKRUDDA
www.skrudda.is