Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 40
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
➜ We Steal
Secrets: The Story
of Wikileaks, 2013
Sögu Wikileaks eru
Íslendingar farnir að
þekkja ágætlega. Í
myndinni kafar Alex
Gibney ofan í bakgrunn Julians Assange,
upphafsára hans sem hakkara í Ástralíu,
árdaga Wikileaks og þann tíma þegar
samtökin springa út. Julian Assange hefur
fordæmt myndina og sagt hana gefa
skakka mynd af persónu sinni.
Hann sér
sig reyndar enn
sem fórnar-
lamb, eins og
hann sé sá eini
sem þurfi að
borga fyrir
þessa lyfjamis-
notkun.
Myndir Alex Gibney eiga það flestar sammerkt að fjalla um lygar og vald. Hann vakti heims-athygli með heim-
ildarmynd sinni um fall Enron;
hann hefur fjallað um myrkari hlið-
ar kapítalismans í myndinni Freak-
onomics, þöggun kaþólsku kirkj-
unnar á kynferðisglæpum í Mea
Maxima Culpa, ofbeldi og pynt-
ingar bandaríska hersins í Ósk-
arsverðlaunamyndinni Taxi to the
Dark side og aðalpersóna myndar-
innar We Steal Secrets sem kom út
á þessu ári er Julian Assange.
Afdrifarík kynni
Í viðtölum hefur Alex látið hafa
eftir sér að hann hafi verið orðinn
þreyttur á hinum „myrkari hliðum“
mannsálarinnar. Hann hafi langað
að gera hugljúfa hetjumynd sem
gæti gefið fólki von og jákvæðan
innblástur. Þess vegna hafði hann
samband við Lance Arm strong –
upphafleg áætlun Alex Gibney var
að gera sína fyrstu íþróttamynd.
Myndin átti að heita The Road back
(Vegurinn til baka) og fjalla um
síðasta Tour de France-mót Lance
Armstrong árið 2009.
Lance Armstrong vann reyndar
ekki mótið en myndin var tilbúin,
Matt Damon sögumaður og mynd-
in átti að fara á kvikmyndahátíðir
eftir nokkrar vikur. Þá steig Floyd
Landis fram á sjónarsviðið. Hann
var einn af liðsfélögum Lance
Armstrong úr hinu ósigrandi US-
Postal liði. Þetta var árið 2010 og
Floyd Landis uppljóstraði um ára-
langa og þaulskipulagða lyfjamis-
notkun liðsins. Annar liðsfélagi
Lance Armstrong, Tyler Hamilton,
steig fram og gerði slíkt hið sama
og hafin var rannsókn á ásökunum
þeirra félaga.
Reyndar var Lance Armstrong
ekkert óvanur því að vera ásakað-
ur um lyfjamisnotkun. Sá stimpill
hafði loðað við hann allt frá því sig-
urganga hans hófst árið 1999 í Tour
de France-keppninni og þar til hann
vann sjöunda mótið í röð árið 2005.
Áður en þessi ótrúlega sigurganga
hófst, sem gerði Lance Armstrong
að einum frægasta íþróttamann
heims, var besti árangur Lance
í Tour de France 36. sæti. Þrisv-
ar sinnum hafði hann tekið þátt
án þess að ljúka keppni. Hann var
miðlungsgóður hjólreiðamaður sem
skyndilega var sá langbesti í heimi.
Og yfirleitt ef eitthvað er of gott til
að vera satt þá er það ekki satt.
Í dag er ljóst að kynni Lance
Armstrong af lækninum Michel
Ferrari, sem tók á móti íþrótta-
mönnum í Sviss, umbreytti ferli
Lance Armstrong. Ferrari gerði
sannkölluð ofurmenni úr íþrótta-
mönnum með notkun á testoste-
róni, kortisóni og EPO-lyfjum og
tók í staðinn tíund af launum þeirra.
Lance Armstrong leitaði til Ferrari
eftir að eistnakrabbamein gerði það
að verkum að hann þurfti að draga
sig í hlé frá Tour de France. Kynni
þeirra áttu eftir að verða örlaga-
rík. Lance Armstrong var hið full-
komna tilraundýr. Á nokkrum árum
millifærði Lance Armstrong hundr-
uð milljóna á svissneska banka-
reikninga Michel Ferrari og hlaut
að launum sjö sigra í erfiðustu
íþróttakeppni í heimi.
Lance Armstrong þverneitaði
hins vegar alltaf fyrir það að nota
ólögleg lyf. Hann kallaði blaða-
menn á borð við David Walsh sem
héldu öðru fram „lítil tröll“. Hann
réðst að æru fólks sem steig fram
og reyndi að segja sannleikann og
notfærði sér lögfræðiher US-Post-
al liðsins. Eitt dæmi er nuddkon-
an Emma O´Reilly. Hún var opin-
ber heimild tveggja blaðamanna
í bók um meinta lyfjamisnotk-
un Lance Armstrong. Fyrir vikið
gerði Armstrong allt sem hann gat
til að leggja líf hennar og starfsæru
í rúst og gerði hana reyndar nán-
ast gjaldþrota. Hann sakaði hana
um drykkjuskap og lygar. Nú í vik-
unni átti Lance Armstrong fund
með Emmu O´Reilly þar sem hann
bað hana afsökunar. Eftir fundinn
sagði Emma að Lance hefði reynd-
ar aldrei notað orðið „fyrirgefðu“.
En hann hefði beðist afsökunar á
sinn hátt.
En eitt frægast dæmið um hroka
Lance Armstrong er sigurræða
hans eftir sinn síðasta sigur í Tour
de France árið 2007. Hann beindi
orðum sínum til efasemdarfólks og
sagði: Ég kenni í brjósti um ykkur.
Ég vorkenni ykkur fyrir að eiga
ekki stóra drauma. Ég vorkenni
ykkur fyrir að trúa ekki á krafta-
verk.“
Vel þekkt stef
Alex Gibney segir það undarlega
lífsreynslu fyrir heimildarmynda-
gerðarmann að sjá viðfangsefni
breytast úr hetju í skúrk á einni
nóttu og vísar þar sérstaklega í
frægt viðtal Ophru Winfrey við
Lance Armstrong. Hann hafi ekki
átt annað val en að endurhugsa
mynd sína frá grunni. Hann segist
hafa orðið reiður þegar hann heyrði
fréttirnar, hann hafi áttað sig á að
Lance Armstrong hafi verið að nota
hann. Hann hafi verið enn eitt tann-
hjólið í þessari risavöxnu lygavél.
„Mér fannst hann skulda mér
að segja sannleikann,“ segir Alex
Gibney sem var kominn á kunn-
ugleg mið. Hann sá fyrir sér nýja
mynd. Mynd sem fjallar um stef
sem hann þekkti vel úr rannsókn-
um sínum á stórfyrirtækjum,
kaþólsku kirkjunni og kapítalism-
anum – lygar og vald. Og hann
líkir Lance Armstrong við Julian
Assange – segir þá báða blindaða
af „háleitum markmiðum sínum“
en Lance Armstrong varð hetja
krabbameinssjúklinga út um allan
heim – dæmi um að með járnvilja
og jákvæðni sé hægt að sigrast á
öllum erfiðleikum.
Sú saga er þó auðvitað lygi.
„Hann sér sig reyndar enn sem
fórnarlamb, eins og hann sé sá
eini sem þurfi að borga fyrir
þessa lyfjamisnotkun,“ sagði Alex
Gibney í viðtali við blaðamenn á
kvikmyndahátíðinni í Toronto en
í myndinni kemur fram að allir
þeir sem tóku við silfur og brons
verðlaunum í þeim sjö mótum sem
Lance Armstrong vann hafi verið
fundnir sekir um lyfjamisnotk-
un síðar. Sú staðreynd bætir þó
ekki fyrir brot Lance Armstrong.
Þau sjö ár sem hann vann Tour de
France hafa verið þurrkuð út í sögu
keppninnar.
HEIMILDARMYND UM LYGI
Alex Gibney var nýbúinn að klára heimildarmynd um hetjudáðir og sigra Lance Armstrong þegar
hjólreiðakappinn játaði áralanga lyfjamisnotkun. Nú, einum þremur árum síðar, er ný útgáfa myndarinnar tilbúin
sem ber titilinn: Lygi Armstrongs. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í vikunni.
➜ Enron: The Smartest Guys
in the Room, 2005
Líklega sú mynd Alex Gibney sem er hvað
best þekkt hér á landi. Myndin var eins
konar forleikur að hruninu, lýsir á ótrúleg-
an hátt hugarfari forstjóra stórfyrirtækja
sem svífast einskis til að græða peninga.
Enron var orkufyrirtæki sem var breytt í
risavaxinn vogunarsjóð og gjaldþrot fyrir-
tækisins var það stærsta í sögu Banda-
ríkjanna. Árið 2010 setti Borgarleikhúsið
upp leikritið Enron eftir Lucy Prebble en
hún sótti innblástur sinn í myndina.
NOKKRAR AF ÞEKKTUSTU HEIMILDARMYNDUM ALEX GIBNEY
Símon
Birgisson
simon@frettabladid.is
LANCE
ARMSTRONG
Var um tíða dáðasti
íþrótta maður heims
en var sviptur öllum
sjö Tour de France
titlum sínum fyrir
ólöglega lyfjanotkun.
MYND/EPA
ALEX GIBNEY
LEIKSTJÓRI
Hann ætlaði að
búa til hetjumynd
um Lance Arm-
strong en hætti við
þegar upp komst um
lyfjaneyslu hjólreiða-
kappans.
➜ Taxi to the Dark Side,
2007
Hlaut Óskarsverðlaun fyrir myndina
sem fjallar um löglegar pyntingar
bandarískra hermanna í Afganistan.
Myndin skoðar sögu leigubílstjórans
Dilawar sem barinn var til dauða af
bandarískum hermönnum meðan hann
var í haldi í fangelsi í Parwan. Myndin
skoðar pyntingar út frá sjónarhorni
þeirra sem telja réttlætanlegt að nota
pyntingar í ákveðnum tilfellum og líka
þeirra sem eru á móti pyntingunum.
➜ Mea Maxima Culpa,
2010
Myndin fjallar um fjóra
mállausa menn sem voru
misnotaðir af kaþólskum
prestum á sjötta áratug síðustu
aldar í Bandaríkjunum. Menn-
irnir fjórir voru þeir fyrstu
sem sökuðu kaþólska presta
opinberlega um misbeitingu. Í
myndinni er fjallað um hvernig
kirkjan reyndi á öllum stigum
málsins að þagga það niður.