Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 50
Laus er staða sérfræðings í barnalækningum við Heilsugæslustöðina Sólvangi frá 1. janúar 2014 eða samkvæmt frekara
samkomulagi. Um 50% starfshlutfall er að ræða, ótímabundið. Umsóknarfrestur er til 8. desember 2013.
Heilsugæslan Sólvangi þjónar íbúum Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar er að finna á www.heilsugaeslan.is/heilsugaeslustodvar/solvangur/
Starf barnalæknis felst einkum í venjubundinni ung- og smábarnavernd.
Boðið er upp á fjölbreytt starf í örvandi starfsumhverfi og góðum starfsanda.
Æskilegt er að umsækjandi sé sérfræðingur í barnalækningum en til greina kemur að ráða sérfræðing í heimilislækningum.
Mikilvægur eiginleiki er færni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Emil L. Sigurðsson, yfirlæknir Sólvangi í síma 550-2600 eða með tölvupósti: emil.larus.sigurdsson@heilsugaeslan.is
Sækja skal um starfið rafrænt á vefsíðu Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is) eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Umsókn skulu fylgja staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu K. Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 8. desember. n.k..
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Reykjavík, 23. nóv. 2013. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. www.heilsugaeslan.is/. Álfabakka 16,109 Reykjavík
Barnalæknir
við heilsugæslustöðina Sólvangi
Sölumaður í timburdeild
Verkefnin þín verða fyrst og fremst sala og ráðgjöf til
viðskiptavina um glugga, hurðir, parket, timbur og tengdar
vörur. Iðnmenntun og/eða vöruþekking sem nýtist í þessu
starfi er mikill kostur. Reynsla af sölustörfum er einnig vel
metin. Traustvekjandi, jákvæðir, ábyrgir, þjónustulund-
aðir og skipulagðir umsækjendur eru boðnir sérstaklega
velkomnir.
Frekari upplýsingar finna áhugasamir inn á heimasíðu
okkar www.bauhaus.is, undir flipanum
Um Bauhaus/Atvinna í Bauhaus.
Þangað skal einnig beina umsóknum.
Umsóknarfestur er til 4. desember 2013
BAUHAUS er ein stærsta verslanakeðjan á byggingasviði í Evrópu og rekur yfir 220 verslanir í 15 Evrópulöndum.
BAUHAUS er frumkvöðull að hugmyndafræðinni „allt undir einu þaki“. Markmið BAUHAUS er að geta boðið
viðskiptavinum sínum mikið vöruúrval, faglega ráðgjöf, góða þjónustu og gæðavörur á góðu verði á einum stað.
BAUHAUS hefur verið starfrækt í rúm 50 ár og hefur fyrir löngu sannað tilveru sína með gríðarlegu vöruúrvali,
gæðavöru, faglegri ráðgjöf og góðri þjónustu.
Við leitum að öflugum sölumanni í viðbót við okkar frábæra hóp starfsmanna:
Sixt rent a car - Fiskislóð 18 - 101 Reykjavík
540 2222 - www.sixt.is - sixt@sixt.is
Sixt
óskar eftir
fjármála-
fulltrúa
Starfssvið:
Reikningagerð
Innheimtur
Hæfniskröfur:
Tungumálakunnátta
Umsóknir berist til Sixt rent a car, Fiskislóð 18,
101 Reykjavík eða á tölvupóstfangið anton@
sixt.is fyrir föstudaginn 6. desember. Nánari
upplýsingar veitir Anton Smári Rúnarsson.
Sixt er stærsta bílaleiga Þýskalands, stofnuð
1912, og hefur 3500 afgreiðslustaði í yfir 110
löndum. Sixt á Íslandi hefur starfsstöðvar
í Reykjavík og Keflavík. Fyrirtækið hefur
verið í miklum vexti undanfarin ár með hátt
þjónustustig að leiðarljósi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Lyfju hf. hvetjum við karla jafnt sem
konur til þess að sækja um störf hjá fyrirtækinu.
Umsóknir sendist á netfangið hallur@lyfja.is
Nánari upplýsingar veitir Hallur Guðjónsson,
starfsmannastjóri, í síma 530-3800 eða hallur@lyfja.is
Í boði er góð starfsaðstaða í einu veðursælasta bæjarfélagi
landsins. Vinnustaðurinn er líflegur og umhverfið notalegt.
Lyfjafræðingur annast afgreiðslu lyfseðla auk þess að veita
viðskiptavinum og starfsfólki faglega ráðgjöf.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur: Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi.
Stjórnunarhæfileikar, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum. Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2013 og farið verður
með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Spennandi tækifæri
fyrir lyfjafræðing
í góða veðrinu fyrir austan
www.lyfja.is
Lyfja hf. leitar að metnaðarfullum og sjálfstæðum
lyfjafræðingi til starfa í verslun Lyfju á Egilsstöðum.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
L
YF
6
67
03
1
1/
13