Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Verkefnastjóri forvarnamála
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða verkefna-
stjóra forvarnamála til að hafa yfir umsjón með
félagsmiðstöðinni Músík og mótor, Ungmennahúsinu
Húsið og forvarnastarfi á vegum Hafnarfjarðarbæjar
ásamt að sinna öðrum verkefnum sem Tómstundaskrif-
stofu er falið að sinna.
Verkefnastjórinn yrði staðsettur í Húsinu, Staðarbergi 6
og er hluti af stjórnendateymi ÍTH. Starfið heyrir undir
skrifstofu Tómstundamála í Hafnarfirði og næsti yfir-
maður er æskulýðs- og forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar.
Helstu verkefni:
• Umsjón með rekstri og starfsmannamálum Hússins
og Músík og mótor
• Skipulagning, framkvæmd og umsjón með forvarna-
verkefnum og viðburðum tengdum frístundastarfi
• Umsjón með verkefnum tengdum innflytjendum
á fjölskyldusviði
• Fagleg forysta og vinna við stefnumótum forvarna-
og tómstundamála
• Samskipti við samstarfsaðila, stofnanir
og félagasamtök
Menntunar og hæfniskröfur:
• Umsækjandi þarf að hafa lokið háskólamenntun sem
nýtist í starfi
• Reynsla af störfum sem tengjast forvörnum, tóm-
stundaverkefnum og rekstri verkefna eða stofnana
• Reynsla af stjórnun og þróun verkefna
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst árið
2014.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum
Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Geir Bjarnason æskulýðs- og
forvarnarfulltrúi, geir@hafnarfjordur.is eða hafa sam-
band við skrifstofu æskulýðsmála í síma 585-5500.
Umsóknarfrestur er til og með 10. des. næstkomandi.
Umsóknum skal skilað í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar
merktar „Verkefnastjóri forvarna- og frístundastarfs“
eða með rafrænum hætti á geir@hafnarfjordur.is
Orkugarður
Grensásvegi 9
108 Reykjavík
www.os.is
Hlutverk Orkustofnunar er
að vera stjórnvöldum til
ráðuneytis um orku og
auðlindamál, standa fyrir
rannsóknum á orkubúskap
og orkulindum þjóðarinnar,
safna og miðla gögnum um
orkumál, vinna áætlanir til
lengri tíma og stuðla að
samvinnu á sviði orkumála
og rannsókna innan lands
og utan.
kopavogur.is
Kópavogsbær
Spennandi störf
hjá Kópavogsbæ
· Ritari á menntasvið Kópavogsbæjar
· Starfsmenn á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk
· Starfsmaður í félagslega heimaþjónustu
· Deildarstjóri í leikskólann Austurkór
· Matráður í félagsmiðstöðina Boðann
· Matráður í félagsmiðstöðina Gullsmára
Nánari upplýsingar og fleiri störf er að finna á
vef Kópavogsbæjar
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Vakin er athygli á að öll laus störf hjá bænum
eru auglýst www.kopavogur.is
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar.
Starfssvið
Hæfniskröfur
· Tekur þátt í daglegu starfi og vinnslu verkefna á renniverkstæði
· Umsjón með sérverkefnum
· Veitir faglega ráðgjöf og tekur þátt í verkfundum með verkkaupum
· Yfirfer tæki og búnað og heldur vinnustöð hreinni
· Ákjósanlegt að viðkomandi hafi sveinspróf í rennismíði og 3 ára starfsreynslu í faginu.
· Þekking á CNC stýrikerfum rennibekkja og fræsivéla
· Þekking á Manual rennibekkjum og fræsivélum
Þekkt vélsmiðja á höfuðborgarsvæðinu með fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni
í nýsmíði, sérsmíði, fjöldaframleiðslu og viðhaldsverkefnum hefur nú lausa stöðu til
umsóknar fyrir öflugan rennismið.
Vinnutími er frá kl. 07:30 til kl. 16:00/18:00 mánudaga til föstudaga.
Rennismiður
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR4