Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 78
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN BÆKUR | 46
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Sögusvið bókarinnar er Snæfellsnes, Borgarfjörð-ur, Reykjavík og Kaup-mannahöfn. Þórunn móðir Erlu, sem bókin Stúlka með fingur fjallar um, er
enskukennari og Jón Alexanders-
son, maður hennar, forstjóri hlust-
endaþjónustu Ríkisútvarpsins frá
1930 til dauðadags. Það kom Þór-
unni mest á óvart í þessari ferð um
texta móðurfjölskyldunnar að átta
sig á því að Jón og Þórunn, fínir
borgarar á Víðimel, lifðu í skugga
sýfiliss. Hún segir kominn tíma
til að létta bannhelginni af þess-
um sjúkdómi. Lítið er fjallað um
tímann eftir 1951 og bókin full af
fínum aldar farslýsingum og gleði.
Ekki skortir strákastand, músík, bíó
og böll.
„Mamma hefur auðvitað alltaf
verið aðalpersóna í mínu lífi,“ segir
Þórunn spurð hvort þessi bók hafi
ekki mallað lengi í undirmeðvitund-
inni. „Hún hlaut grimm örlög, var
bara 42 ára þegar hún fékk krabba-
mein í andlitið. Þetta er samt alls
engin vælubók! Mamma var sterk,
jákvæð og töfrandi. Hún segir frá
mótunarárum sínum, fram til tutt-
ugu og tveggja ára aldurs. Stiklar
mjög lauslega á framhaldinu.“
Flaggar sýfilisnum
Fyrsti hluti Stúlku með maga fjallar
um forfeður Þórunnar og Erlu,
annar hlutinn um foreldra Erlu og sá
þriðji um Erlu sjálfa. Sagan er sögð
í fyrstu persónu með rödd Erlu sem
grúskar í gömlum sögum og bréf-
um og kemst að ýmsu sem hún ekki
vissi. „Þetta er skáldættar saga,“
segir Þórunn. „Fólki finnst alltaf að
það sé allt satt í svona bókum þann-
ig að ég leyfði mér að hafa drekann,
ættarfylgjuna, með og fara með fólk
út fyrir veruleikann.“
Ýmsar upplýsingar koma fram í
bókinni sem ekki hafa verið á vit-
orði fólks hingað til. „Það gleður
mig að geta flaggað sýfilis ömmu
og afa,“ segir Þórunn. „Það hefur
hvílt svo svakaleg bannhelgi á því
að fjalla um þann sjúkdóm. Ég þekki
fólk með alnæmi sem getur ekki
sagt frá því og ég held að öll opinber
umræða um þessa sjúkdóma sé af
hinu góða. Þetta er síðasta tabúið.“
Það eru reyndar ekki nema tvö ár
síðan Þórunn fann bréf sem höfðu
farið á milli afa hennar og ömmu
og komst þá að því í fyrsta sinn að
afi hennar hafði smitast af sýfilis
og smitað ömmu hennar. „Það var
aldrei talað um þetta. Ég veit ekki
einu sinni hvort mamma vissi þetta,
hún minntist allavega aldrei á það
við okkur. Ég hélt alltaf að amma
hefði verið með Alzheimer-sjúkdóm-
inn en veit núna að það var þriðja
stigs sýfilis sem fór í heilann á
henni. Ég fékk auðvitað áfall þegar
ég uppgötvaði þetta og er fegin að
hafa verið hlíft við þessu á sínum
tíma þegar maður var lítill kjáni
sem ekki skildi heiminn. Við systk-
inin fórum lítil með mömmu á Far-
sóttarheimilið þegar Þórunn amma
var orðin mjög veik, með andlit allt
í kippum. Þegar ég spurði út í sjúk-
dóminn sagði mamma að það sem
hrjáði hana væri heilarýrnun. Þegar
ég hafði jafnað mig eftir áfallið sem
bréfin ollu fór ég að skilja alla sögu
móður minnar miklu betur og ýmis-
legt sem hafði áður verið óskiljan-
legt féll á sinn stað í púslinu.“
Neitaði að taka í hönd Erlu
Erla, móðir Þórunnar, var einka-
barn, minnsti fyrirburi á landinu
Bullandi sögur og tilfinningar
Stúlka með maga er skáldættarsaga Þórunnar Erlu og Valdimarsdóttur, sögð í fyrstu persónu af móður hennar. Erla
Þórdís Jónsdóttir leitar uppi sögu sína og ættarinnar gegnum gömul bréf, dagbækur og skjöl. Bókin segir frá stórfjölskyldu
sem ferðast eins og þjóðin öll frá gamla samfélaginu gegnum heimsstyrjaldir inn í það nýja.
og kraftaverk að foreldrar henn-
ar skyldu geta eignast barn. Móðir
hennar missti fóstur hvað eftir
annað. Erla hætti í háskólanum
ólétt í annað sinn og sættist við það
hlutverk að verða móðir og húsmóð-
ir. Hún átti sjö börn og bætti sér
upp systkinaskortinn. Þegar hún
varð ófrísk námsmey í M.R. varð
hún fyrsta stúlkan í sögu skólans,
telur Þórunn, sem lét ekki hrekja
sig úr skóla þrátt fyrir barneign-
ina. Sú ákvörðun olli því að þegar
henni var afhent stúdentsskírteinið
á sal menntaskólans tók rektor ekki
í útrétta höndina á henni eins og
hinum stúdentunum, nokkuð sem
Þórunn segir hafa setið í móður
sinni alla tíð. „Hún talaði aldrei um
það en á dánarbeði sagði hún Lilju
systur frá þessari niðurlægingu.
Í þessari senu speglast svo mikil
kvennasaga að mér fannst að ég
þyrfti að gefa þjóðinni þessa bók.“
Þórunn segir þó alls ekki við
Pálma rektor að sakast í þessu til-
felli, svona hafi hugsunarhátturinn
bara verið á þeim tíma. „Sem sagn-
fræðingur reyni ég í bókinni að láta
lesandann skynja að það er hugsun-
arháttur og tíðarandi sem stjórnar
gerðum fólks.“
Sagnfræðin og tilfinningarnar
Er ekkert erfitt að halda sagn-
fræðilegri fjarlægð á efni sem
snertir mann persónulega? „Nei,
sagnfræðin er bara styrkur sem
og sú reynsla að hafa skrifað nítján
bækur um ólík efni, sönn og skáld-
uð. Annar hver roskinn maður á
bréf ofan í skúffu. Það voru forrétt-
indi að hafa tíma til að skoða eigin
fortíð, allir ættu að finna sér tíma
til þess. Hver einasti maður hefur
gengið í gegnum einstakar þjóð-
félagsbreytingar og allir hafa sögu
að segja. Það eru bullandi sögur og
tilfinningar í hverri einustu fjöl-
skyldu.“
Það skortir ekki tilfinninga-
sveiflurnar í sögu Erlu. Sam-
band hennar við fyrri eiginmann
sinn, Valdimar föður Þórunnar, er
stormasamt. Þau skilja tvisvar og í
síðara sinnið vegna þess að Valdi-
mar á von á barni með annarri
konu og segir henni það. Þórunn, þá
tíu ára, verður vitni að því samtali,
falin á bak við hurð. „Auðvitað voru
þetta átök,“ viðurkennir hún. „En
þegar pabbi fer þá er það vegna
þess að mamma rekur hann út. Í
gamla tímanum eignuðust menn
börn framhjá, um það eru dæmi í
ættinni og konurnar létu sig hafa
það, en það voru að renna upp nýir
tímar árið 1965. Mamma jafnaði
sig fljótt og fann sér nýjan mann,
fór í stúdentadeild Kennaraskólans
og kenndi börnum. Mér þótti alltaf
óskaplega vænt um pabba, ásakaði
hann aldrei. Það sem var sárast var
að með honum fóru systkinin næst
mér í aldri, Lilja og Trausti, en þar
var heldur ekki við hann að sakast,
það þótti sjálfsagt á þessum tíma.
Hann vildi svo vel.“
Erfiðleikar gott byggingarefni
Erla greindist með beinkrabba í
andliti 42 ára gömul og glímdi við
hann síðustu þrettán árin sem hún
lifði. Missti vinstra kinnbein, auga
og efri kjálka, að sögn Þórunnar.
„Þetta tímabil er utan bókar, en
ég skil að þú hafir áhuga á þessu.
Það tíðkuðust sömu hrossalækn-
ingarnar við krabbameini þá eins
og nú. Mamma fékk gerviauga og
kinnbein áfast gleraugum. Það
myndi enginn láta bjóða sér í dag,
á tíma lýtalækninga. Við systkinin
sjö erum öll eldri en hún þegar hún
veiktist og þakklát fyrir að hafa
heilsu og vera lifandi. Erfiðleikar
eru gott byggingarefni. Allar ættir
fá sinn skammt af þeim.“
Stúlka með maga er sjálfstætt
framhald skáldsögunnar Stúlka
með fingur, þar sem Þórunn rakti
bernsku og unglingsár ömmu sinn-
ar, er ekki næsta skref að skrifa
eigin ævisögu og hvað mun hún
þá heita? „Það er ekki útilokað, ég
djóka allavegana með það – allt þá
þrennt er. Í fantasíunni heitir hún
Stúlka með höfuð því þegar mælt
var ummál stúdentsefna í MH
fyrir stúdentshúfurnar var ég með
stærsta kvenhöfuðið í árganginum!
Tíhí og haha! Ég er með margar
bækur í bígerð, satt að segja, hef
aldrei skynjað mig yngri en nú.
Næsta verkefni er ævisaga Skúla
fógeta, föður Reykjavíkur. En best
er að segja með fullum fyrirvara
eins og Matthías Jochumsson: Ef
algóðum Guði þóknast að varðveita
mig til þess.“
Ó, Jón Alex! Af hverju gerðirðu
þetta! Af hverju fórstu ekki til
læknis þegar þú fékkst útbrotin!
Af hverju eru karlmenn svona
tregir til að heimsækja doktora?!
Hún er fullfrísk, útbrotin hurfu
skömmu eftir að hún hóf með-
ferð en það er ekki það. Sálin er
kramin í mask. Er svo hrædd um
að fá annað stigið og það þriðja.
Von hennar um að eignast börn
… að vera komin í hóp sýfilis-
sjúkra … ó, Guð, á þetta orð við
hana? Það var svo hræðilegt að
sjá svipinn á Jóu systur.
Jón er skotinn í henni, það býr
undir í bréfinu þótt hann þori
ekki að segja það frekar en hún.
Og hún elskar hann, ó, hún bara
grætur og grætur og lokar sig inni
og kúrir ofan í koddann, þykist
sárlasin, er svo lasin í sálinni,
bandar frá sér nemendum, kvíðir
því svo að tala um þetta við hann.
Ó, pabbi. Þú hlýtur að hafa
heimsótt vafasöm hús í hafnar-
borgum. En … það er ekki víst.
Vafasöm kona hér heima gæti
hafa smitað þig, sjúkdómurinn
grasseraði hér líka ljóst og leynt.
Æ. Vafasöm kona, sagði ég. Það er
hún móðir mín.
➜ Kaflabrot úr
Stúlku með maga
Erla var kvenréttindakona, sú
fyrsta sem útskrifaðist frá M.R. eftir
að hafa eignast barn. Börnin urðu
sjö eins og hún, einkabarnið, hafði
ákveðið í bernsku. Hún greindist með
beinkrabba í kinnbeini 42 ára gömul
og fékk síðar brjóstkrabbamein sem
dró hana til dauða 58 ára gamla.
Erla Jónsdóttir,
móðir Þórunnar, er
sögumaður bókarinnar
SKÁLDIÐ „Fólki finnst
alltaf að það sé allt
satt í svona bókum.”
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fyrri bók höfunda hlaut
bæði Bóksalaverðlaunin
og Fjöruverðlaunin.
Vinirnir komast hér í kynni
við sérkennilegt fólk,
forvitnilega fugla og
dularfullan nábít.
Þórarinn M. Baldursson
myndskreytti.
RANDALÍN OG MUNDI Í LEYNILUNDI EFTIR ÞÓRDÍSI GÍSLADÓTTUR
FYNDIN OG FJÖRUG!