Fréttablaðið - 23.11.2013, Qupperneq 97
LAUGARDAGUR 23. nóvember 2013 | MENNING | 65
SU
N
N
U
D
AG
U
R HVAÐ? HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
20.00 Níundu tónleikarnir í
tónleikaröðinni Magnús mán-
aðarins fer fram á KEX Hosteli
sunnudaginn 24. nóvember
næstkomandi. Þá verður mikið
um dýrðir því kanadíska raf-
sveitin Pick a Piper mun leika
þar með Magnúsi Trygvasyni
Eliassen. Sú sveit er ný af
nálinni og er hliðarverkefni
liðsmanna hljómsveitarinnar
Caribou, sem tryllti landsmenn
með eftirminnilegum tón-
leikum á Nasa um árið.
Leiklist
14.00 Möguleikhúsið sýnir
barnaleikritið Prumpuhóll-
inn í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi sunnudaginn 24.
nóvember kl. 14.00
Fræðsla
15.00 Sigríður Björk Jónsdóttir,
byggingarlistfræðingur og for-
maður skipulagsráðs Hafnar-
fjarðar, leiðir göngu um miðbæ
Hafnarfjarðar þar sem friðuð
hús verða skoðuð. Gangan
hefst í Hafnarborg, menningar-
og listamiðstöð Hafnarfjarðar
og eru gestir hvattir til að
klæða sig eftir veðri.
16.00 Jólaljós, styrktartónleikar
Kirkjukórs Lágafellssóknar,
verða sunnudaginn 24.nóvem-
ber kl 16 í Guðríðarkirkju.
Sýningar
11.00 Síðasti sýningardagur
sýninganna „Ég fæ ekki af mér
að flýja af hólmi - Hinsegin
fólk í máli og mynd“ á Torgi
Þjóðminjasafns og Kónguló á
3. hæð Þjóðminjasafns.
Kvikmyndir
15.00 Kl. 15 verður Fávitinn
(Idiot), sovésk kvikmynd frá
árinu 1958, byggð á fyrsta
hluta samnefndrar skáldsögu
Fjodors Dostojevskíj, sýnd í
MÍR, Hverfisgötu 105. Undir-
titill myndarinnar er Nastasha
Filipovna. Leikstjóri Ivan Pyrjev.
Rússneska. Íslenskur texti.
Aðgangur ókeypis.
Dansleikir
20.00 Dansað verður í félags-
heimili eldri borgara í Stangar-
hyl 4 í Reykjavík næstkomandi
sunnudagskvöld kl.20.00-23.00
. Danshljómsveitin Klassík
leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir
er 1.500 kr. fyrir félagsmenn
en 1.800 fyrir gesti. Allir
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
Ungstirnið og tónlistarmaðurinn Steinar Baldursson hefur
vakið athygli erlendis og var fenginn í viðtal hjá hollenskri
útvarpsstöð fyrir skemmstu. „Þeir höfðu samband við mig
í gegnum Facebook og svo talaði ég við þá um plötuna mína
í gegnum Skype,“ útskýrir hinn 18 ára gamli Steinar. Hann
stendur í ströngu þessa dagana, enda nýbúinn að gefa út
plötu. „Ég er að fylgja plötunni eftir og er að spila á fjölda
tónleika, meðal annars með Jóni Jónssyni 19. desember,“
segir Steinar. Platan hans, Beginning, er nýkomin í versl-
anir. „Ég hef ekki enn heyrt neinar sölutölur. Gerð plötunn-
ar var ferli sem tók eitt ár. Ég fjármagnaði plötuna sjálfur
og tók hana upp víða. Síðan fór hún fullbúin til Senu og þeir
ákváðu að gefa hana út,“ segir Steinar.
Fór í viðtal á hollenskri útvarpsstöð
Steinar Baldursson tónlistarmaður var í viðtali á hollenskri útvarpsstöð. Platan hans er komin í verslanir.
VEKUR ATHYGLI
Steinar Baldursson
er farinn að vekja
athygli erlendis.
Leikarinn Hugh Jackman opin-
beraði á Instagram-síðu sinni
í gær að hann væri í meðferð
vegna húðkrabbameins. Jack-
man hafði verið með hnúð á
nefinu í nokkurn tíma en sá
ekki ástæðu til þess að leita til
læknis. Eiginkona hans hvatti
hann til þess og á endanum lét
hann tilleiðast og þá kom í ljós að
hann var með húðkrabbamein.
Hann hvetur alla til þess að láta
athuga allt óeðlilegt. „Ekki vera
jafn vitlaus og ég. Og notið sólar-
vörn,“ segir Jackman.
Hugh með
húðkrabba