Fréttablaðið - 23.11.2013, Qupperneq 102
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 70
BAKÞANKAR
Fanneyjar Birnu
Jónsdóttur
Tónlistarmaðurinn Friðrik Thorl-
acius, einnig þekktur sem Frigore,
klifrar hratt upp vinsældalista hol-
lenska útgáfufyrirtækisins Spinnin‘
Records. „Fyrirtækið er með app
sem gerir tónlistarmönnum kleift
að senda inn tónlist og hlustendum
að kjósa hvaða lag þeim líkar best,“
útskýrir Friðrik. Lagið hans, sem
ber titilinn Afro Jackin, er á hraðri
uppleið á listanum.
„Í gær var það í 127. sæti og hefur
nú farið upp um rúmlega 100 sæti
og er númer 26 á listanum. Lagið
flokkast líklega undir elektróníska
hústónlist.“ segir Friðrik. Fræg-
asti tónlistarmaðurinn sem er með
samning við útgáfufyrirtækið er
Martin Garrix, sem gerði hið geysi-
vinsæla lag Animals. Friðrik er
með plötu í burðarliðnum og kæmi
sér því afar vel að komast á útgáfu-
samning. „Ég sit á mörgum lögum
og á mikið af efni,“ segir tónlist-
armaðurinn. Friðrik á langan tón-
listarferil að baki og hefur meðal
annars hitað upp fyrir Deadmau5,
Benny Benassi og Pendulum.
Upp um 100 sæti á vinsældalista
Friðrik Thorlacius reynir fyrir sér hjá stóru hollensku útgáfufyrirtæki í gegnum app.
VINSÆLLI Í DAG EN Í GÆR Frigore er á
hraðri uppleið á vinsældalistanum.
Ég á víst að hafa sloppið fyrir horn núna í vikunni, mínum nánustu til mikillar
ánægju. Reyndar var ég ekki nálægt því
að vera rekin úr vinnunni þótt fjölskyldan
mín láti þannig. Málið er mun alvarlegra
en svo. Ég var hársbreidd frá því að setja
íbúðina á sölu til að geta komist á heims-
meistaramótið í Brasilíu í sumar.
FYRIRGEFIÐ en ég bara verð að tala um
þennan helvítis leik. Hvernig í ósköpunum
gat þetta gerst? Ég, eins og sannur Íslend-
ingur, ætla þó hvorki að líta fram á veginn
né læra af þessu áfalli. Ég ætla að leita að
sökudólgum.
VAR þetta kannski RÚV að kenna? Á ögur-
stundu, þegar það var tilkynnt að við kæm-
umst í umspilið, skelltu þeir á auglýs-
ingum og stálu þannig af þjóðinni sínu
stærsta afreki á sviði knattspyrnunn-
ar (við skulum, eitt augnablik, láta
eins og EM kvenna árið 2009 og 2013
hafi aldrei gerst). Þetta var ófyrirgef-
anlegt hjá ríkisfjölmiðlinum því, eins
og allir vita: Ef við sjáum það ekki í
sjónvarpinu þá gerðist það aldrei.
VAR þetta KSÍ að kenna? Nætur-
sala aðgöngumiða setti allt úr skorðum.
Við vitum að þetta næturbrölt var ekki til
að forðast álag (þrátt fyrir að miði.is hafi
síðan hrunið þegar 300 miðar voru til sölu
á leikdag) heldur til að fóðra hinn alræmda
„svarta markað“ sem eftir á að hyggja verð-
ur að teljast sá lélegasti á jarðkringlunni –
guð minn góður hvað við erum léleg í þessu.
EÐA var þetta kannski forsetinn? Núna
ættu allir – meira að segja forysta KSÍ – að
hafa uppgötvað að í hvert skipti sem forset-
inn opnar munninn verður helmingur þjóð-
arinnar ofsakátur en hinn band brjálaður.
Alltaf. Í hvert einasta skipti. Hver fékk þá
snilldarhugmynd að peppa bara helming
liðsins upp fyrir leikinn?
ÞETTA var alla vega ekki leikmönnunum
eða þjálfaranum að kenna – svo mikið er
víst. Þeir lögðu sig alla fram og gerðu sitt
besta. Fyrir utan að ef þeir hefðu ekki spil-
að jafn frábærlega og raun bar vitni í riðla-
keppninni þá hefði ekki verið neinn leikur
á þriðjudaginn.
NEI, það voru ekki þeir. En hver var það?
Við verðum að finna sökudólg. Einhvern til
að hengja. Eins og alltaf.
Upp með heykvíslarnar
2DKL. 13 SMÁRABÍÓ KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2D
KL. 15.30 HÁSKÓLABÍÓ Í 2D
KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2DKL. 14 HÁSKÓLABÍÓ 2D
DR. WHO 50TH
ANNIVERSARY SPECIAL
PARADÍS: VON
SUN: 20.00 (16)
“IT COULD BE HIS BEST FILM
SO FAR” - THE GUARDIAN
SÍÐASTA MYNDIN Í PARADÍSARÞRÍLEIK ULRICH SEIDL
FYRRI MYNDIRNAR TVÆR ERU EINNIG SÝNDAR
Q&A MEÐ LEIKSTJ. ULRICH SEIDL
SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
EMPIRETOTAL FILM
M.S. WVAI RADIO J.B – WDR RADIO
JOBLO.COM
ROLLING STONE
GQ
DEADLINE HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT WEEKLY
VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS?
MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI
HUNGER GAMES 2 4, 6, 7, 9, 10
THE COUNSELOR 8, 10:30
PHILOMENA 3:50, 5:50
FURÐUFUGLAR - ÍSL TAL 2, 3:50 2D
TÚRBÓ - ÍSL TAL 1:50 3D
AULINN ÉG 2 - ÍSL TAL 1:50 2D
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
ÍSL TAL
ÍSL TAL
5%
THE HUNGER GAMES 2 KL. 3.20 - 6 - 9 -10.10
THE COUNCELOR KL. 8
FURÐUFUGLAR 2D KL. 4
FURÐUFUGLAR 3D KL. 6
Miðasala á: og
„DJÖ RF, HNÍFBEITT OG
ÓFYRIRSJÁANLEG ÚT Í GEGN.“
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS„ELDFIM & ÖGRANDI“
- ROLLING STONE
„FYRSTA FLOKKS ÞRILLER“
- GQ
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
THE STARVING GAMES
CARRIE
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 2D
TÚRBÓ 2D ÍSL.TAL
KL.1 (TILBOÐ) 2 - 4 - 5 - 6 - 8 - 9 - 11
KL. 2 - 5 - 8 - 11
KL. 8 - 10.30
KL. 6
KL. 10.45
KL. 8
KL. 1 (TILBOÐ)3.20
KL. 1 (TILBOÐ)3.20
THE HUNGER GAMES 2
THE FIFTH ESTATE
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
ÁM LMHAUS
HROSS Í OSS
FURÐUFUGLAR 2D
KL. 2(TILBOÐ) 5 - 6 - 8 - 9 - 11
KL. 8 - 10.40
KL. 3.30(TILBOÐ) 8
KL. 10.15
KL. 5.45
KL. 3.30 - 6
KL. 3.30 (TILBOÐ)