Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 104
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 72
LAUGARDAGUR
12.45 Everton-Liverpool, enski Sport 2
15.00 Arsenal-South., enski Sport 2
15.00 Newcastle-Norw., enski Sport 4
15.00 Stoke-Sunderland, enski Sport 5
15.00 Fulham-Swansea, enski Sport 6
15.00 Barcelona-Granada, spænski Sp3
16.00 Tímataka í Brasilíu, F1 Sport
17.30 West Ham-Chelsea, enski Sport 2
19.00 Almeria-Real spænski Sport
SUNNUDAGUR
13.30 Man.City-Tottenh. enski Sport 2
14.00 Flensburg-Kiel, þýski handb. Sp.
15.30 Brasilíukappaksturinn, F1 Sport
16.00 Cardiff-Man. Utd, enski Sport 2
DOMINOSD. KARLA
NJARÐVÍK - HAUKAR 105-83 (48-43)
Njarðvík: Logi Gunnarsson 41, Elvar Már
Friðriksson 24/4 frák./11 stoðs. Nigel Moore
15/11 frák./5 stoð., Óli Ragnar Alexandersson 6,
Ágúst Orrason 5, Egill Jónasson 4, Hjörtur Hrafn
Einarsson 4, Ólafur Helgi Jónsson 3, Magnús Már
Traustason 2, Friðrik E. Stefánsson 1.
Haukar: Terrence Watson 32/12 fráköst, Kári
Jónsson 17, Haukur Óskarsson 13/5 fráköst, Davíð
Páll Hermannsson 7/7 fráköst, Emil Barja 7/9
stoðsendingar, Sigurður Þór Einarsson 7.
Logi Gunnarsson hitti úr 15 af 26 skotum
sínum í leiknum þar af 7 af 11 skotum fyrir utan
þriggja stiga línuna. Hann varð fyrsti íslenski
leikmaðurinn til að skora yfir 40 stig í einum leik
í vetur en hann og Jason Smith hjá KFÍ eiga nú
hæsta stigaskorið saman.
KFÍ - GRINDAVÍK FRESTAÐ
Nýr leiktími: Í dag klukkan 17:00.
STIG LIÐA Í DEILDINNI
KR 14, Keflavík 12, Njarðvík 10, Snæfell 8,
Haukar 8, Grindavík 8, Þór Þ. 6, Stjarnan 6, ÍR
4, Skallagrímur 2, KFI 2 og Valur 2
NÆSTU LEIKIR:
Mánudagurinn 25. nóv. kl. 19.15: Þór
Þorlákshöfn-Skallagrímur.
Fimmtudagin 28. nóv. kl. 19.15: KR - Þór Þ.,
Haukar - Keflavík, Grindavík - Njarðvík, Snæfell -
Stjarnan, Valur - Skallagrímur.
OLÍSD. KVENNA
GRÓTTA - FRAM 22-23
Upplýsingar um markaskor bárust ekki áður en
Fréttablaðið fór í prentun.
STIG LIÐA Í DEILDINNI
Stjarnan 19, Valur 18, Grótta 15, Fram 14, ÍBV
12, , FH 8, HK 6, Haukar 6, KA/Þór 5, Fylkir 5,
Selfoss 4, Afturelding 0.
FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliðinn Margrét Lára
Viðarsdóttir stendur á smá tímamótum því
hún hefur ekki ákveðið hvar hún spilar á næsta
tímabili. Margrét Lára var að klára fimmta
tímabil með Kristianstad en veit ekki hvort hún
tekur nýju samningstilboði frá liðinu.
„Það er ekkert komið á hreint ennþá,“ segir
Margrét Lára aðspurð um framtíðina. „Þetta
er búið að vera langt tímabil og mikið í
gangi auk þess sem ég er að komast upp
úr erfiðum meiðslum. Ég hef fengið vilyrði
fyrir því að hafa tíma fram að áramótum
til að ákveða hvað ég vil gera,“ segir Mar-
grét Lára.
„Ég reikna með að þetta skýrist einhvern
tímann í desember. Ég er að skoða mína
möguleika og hvað er í boði. Ég er búin að fá samnings-
tilboð frá Kristianstad. Það er inni í myndinni en ég fæ
að bíða með að svara þeim þangað til í desember,“ segir
Margrét Lára.
„Ég er búin að missa mikið úr undanfarin ár og hef ekki
getað gert ákveðnar æfingar í mörg ár. Ég er farin að
gera þær núna til þess að ná fyrri styrk. Það er fínt
að fá þessa tvo mánuði í haust og nota þá vel til
að koma mér í gott líkamlegt stand. Ég tel mig
vera nokkurn veginn búna að sigrast á þessum
meiðslum,“ segir Margrét Lára. Margrét Lára
er orðin 27 ára gömul og segir að þetta sé
ekki bara fótboltaleg ákvörðun. „Eftir því sem
maður eldist þá verða ákvarðanirnar erfiðari.
Maður þarf þá að fara taka ákvörðun út frá
öðrum vinklum líka,“ segir Margrét Lára. - óój
Margrét Lára ákveður sig ekki fyrr en í desember
FÓTBOLTI Enska úrvalsdeildin
fer aftur af stað með látum
um helgina en það er nóg af
áhugaverðum leikjum í dag og á
morgun. Stórleikur umferðarinnar
er jafnframt fyrsti leikur
helgarinnar þegar Everton tekur
á móti Liverpool á Goodison Park
í hádeginu í dag en á morgun
glíma Íslendingaliðin Cardiff
og Tottenham við risaliðin frá
Manchester-borg.
Everton-menn hafa verið
fyrir ofan Liverpool í töflunni
undanfarin tvö tímabil en
eini sigur liðsins í síðustu
þrettán leikjum liðsins á móti
nágrönnunum var í október
2010. Liverpoll hefur unnið
sjö þessara leikja (fimm
jafntefli) og haldið átta
sinnum hreinu.
Everton hefur ekki tapað í
fjórtán heimaleikjum á árinu
2013 (10 sigrar, 4 jafntefli) en
mætir nú sjóðheitu Liverpool-liði
sem er 11 stigum og 11 sætum á
undan árangri síns fyrir ári.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar
í Tottenham fara í heimsókn til
Manchester City klukkan 13.30
á morgun.
Tottenham hefur aðeins fengið eitt
stig út úr tveimur síðustu leikjum
sínum og er komið niður í 7. sæti.
City hefur sýnt veikleikamerki á
útivelli en á Etihad-leikvangnum
er liðið með fullt hús og 20 mörk í
fimm leikjum á þessu tímabili.
Aron Einar Gunnarsson og
félagar í Cardiff City taka á móti
Englandsmeisturum Manchester
United klukkan 16.00 á morgun
og eiga möguleika á að ná
Manchester-tvennu því Cardiff
vann 3-2 sigur á City-liðinu fyrr
í vetur. Manchester United
hefur unnið þrjá leiki í röð og
virðist vera að finna taktinn
undir stjórn Davids Moyes.
T o p p l i ð A r s e n a l
tekur á móti spútnikliði
Southampton klukkan þrjú
í dag en Southampton gæti
náð toppsætinu með sigri á
Emirates. - óój
Ísland á móti Manchester-borg
Everton og Liverpool mætast í Merseyside-slagnum í hádeginu í dag.
KLÁRIR
Aron Einar
Gunnarsson
og Gylfi Þór
Sigurðsson.
Ægisstelpurnar Eygló Ósk Gústafsdóttir og Inga Elin Cryer og Fjölnis-
maðurinn Kristinn Þórarinsson unnu öll þrjú gull á fyrsta degi Íslands-
meistaramótsins í 25m laug sem fer fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði
um helgina.
Eygló Ósk vann 200 metra baksund og 200 metra fjórsund en hún
setti Íslandsmet í báðum greinum. Hún synti á 2:06.59 mínútum í
200 metra baksundi og á 2:13.41 mínútum í 200 metra fjórsundi.
Inga Elín vann 400 metra skriðsund og 200 metra flugsund. Þær
hjálpuðu síðan A-sveit Ægis að vinna 4 x 200 metra skriðsund.
Kristinn vann 200 metra baksund og 200 metra fjórsund og
hjálpaði Fjölnismönnum að vinna 4 x 200 metra skriðsund.
Karen Sif Vilhjálmsdóttir úr SH vann tvær greinar, 100
metra bringusund og 50 metra skriðsund.
Keppni heldur áfram í dag og klárast síðan á morgun.
Undanrásir hefjast klukkan níu báða daga en úrslitahlut-
inn hefst klukkan fimm og stendur yfir í um tvo tíma.
Eygló með tvö Íslandsmet á fyrsta degi
SPORT
FÓTBOLTI Þrjár íslenskar lands-
liðskonur geta orðið norskir bik-
armeistarar í dag þegar fjölþjó-
ðalið Avaldsnes reynir að vinna
fyrsta stóra titilinn í sögu félags-
ins. Markvörðurinn Guðbjörg
Gunnarsdóttir á möguleika á
því að lyfta bikarnum í leiks-
lok en hún er fyrirliði liðsins.
„Það fór 0-0 þegar við
mættum þeim síðast en þær
voru töluvert betri í leikn-
um. Við erum eiginlega litla
liðið því þær eru nýorðnar
norskir meistarar. Þetta er
samt bikarúrslitaleikur og
það getur allt gerst,“ segir
Guðbjörg. „Við náum allt-
af að skapa okkur færi og
skora mörk en varnarleik-
urinn verður að smella
saman ef að við ætlum
að vinna þennan leik. Ef ég held
hreinu þá hljótum við að vinna,
annars klárast ekki leikurinn,“
segir Guðbjörg létt.
Þarf að eiga toppleik
„Ég geri mér grein fyrir því að ef
við ætlum að vinna þennan leik
þá þarf ég að eiga toppleik. Það
yrði einstök upplifun á ferlinum
að taka við bikar utan landstein-
anna. Ég hef líka spilað úrslitaleik
í Svíþjóð þegar við í Djurgården
töpuðum fyrir Örebro þegar Edda
(Garðarsdóttir) og Ólína (Guð-
björg Viðarsdóttir) unnu. Ég hef
tapað einu sinni úti og það er kom-
inn tími á að vinna,“ segir Guð-
björg.
„Þetta er allt öðru vísi leikur og
fyrsta markið er ótrúlega mikil-
vægt. Það er draumur að geta
gefið eitthvað til baka til eig-
andans sem hefur fjárfest svona
mikið í þessu liði. Það væri líka
geggjað fyrir bæinn ef við tækj-
um bikarinn. Þetta er lítið bæjar-
félag og það væri gaman að geta
gefið þeim titil.“
Undirbúningur liðsins hefur
staðið í tæpar þrjár vikur og síð-
ustu vikuna hefur áreitið verið
töluvert. „Allt liðið fékk fría
klippingu og litun frá einum
styrktaraðila og þar voru tvær
sjónvarpsstöðvar að taka við-
töl við okkur. Svo var NRK með
okkur allan þriðjudaginn,“ segir
Guðbjörg, en fékk allt liðið sér
nokkuð sömu klippingu?
„Nei. Ég litaði hárið aðeins
dekkra, en Brassarnir eru alltaf
að reyna að breyta mér í Brassa
því þær vilja að ég spili fyrir
Brasilíu. Þær vilja gefa mér bras-
ilískt vegabréf þannig að ég var
að grínast við þær að ég ætlaði
að fá mér brasilíska klippingu,“
segir Guðbjörg. Brasilísku leik-
mennirnir Debinha og Rosana eru
ásamt Hólmfríði Magnúsdóttur og
norska landsliðsframherjanum
Cecilie Pedersen í stórum hlut-
verkum í sókn liðsins. „Þær eru
alltaf að grínast við mig að þær
ætli að falsa vegabréf fyrir mig.
Ég er náttúrulega búin að spila
fyrir Ísland en ég held að þær eigi
ekkert sérstakan markmann. Þær
eru ótrúlega góðar og bestu leik-
menn liðsins,“ segir Guðbjörg.
Avaldsnes endaði í fjórða sæti í
norsku úrvalsdeildinni sem nýliði
í deildinni en liðið var þó með 22
stigum færra en Stabæk.
„Við áttum mjög góða seinni
umferð og erum búnar að vera
á uppleið. Vonandi toppum við
bara á laugardaginn (í dag) og
vinnum,“ segir Guðbjörg en Sta-
bæk getur unnið bikarinn þriðja
árið í röð.
„Pressan er algjörlega á þeim
og við höfum allt að vinna en auð-
vitað er pressan sem maður setur
á sjálfa sig alltaf mest. Ég er klár-
lega að fara inn í þennan leik til
þess að vinna hann. Það væri
ótrúlega gaman að taka við bik-
arnum,“ sagði Guðbjörg.
ooj@frettabladid.is
Þær geta orðið
bikarmeistarar í dag
GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR, 28 ÁRA
MARKVÖRÐUR. „Síðasta mánuðinn
fyrir EM, EM og svo seinni hluta
tímabilsins er ég alltaf að vera betri
og betri. (Fékk heilahimnubólgu í
febrúar). Ég er mjög ánægð með
seinni hluta tímabilsins. EM gaf mér
fáránlega mikið sjálfstraust," segir
Guðbjörg um sjálfa sig.
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚS DÓTTIR,
29 ÁRA SÓKNARMAÐUR „Maður
veit aldrei með Hólmfríði. Hún
gæti sett þrennu eða jafnvel fernu
á góðum degi," segir Guðbjörg
um Hólmfríði.
ÞÓRUNN HELGA JÓNSDÓTTIR,
28 ÁRA MIÐJUMAÐUR „Þórunn
hefur verið ótrúlega góð seinni
hluta tímabilsins. Hún er sú sem
vinnur skítavinnuna fyrir liðið. Maður
tekur kannski ekki eftir henni en við
tökum eftir því þegar hana vantar," segir
Guðbjörg um Þórunni.
Vilja að ég spili fyrir Brasilíu
Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir verður í fyrirliðahlutverki í norska bikarúrslitaleiknum í
dag þegar lið hennar Avaldsnes mætir norsku meisturunum í Stabæk á Ullevaal-leikvanginum í Ósló.
FRÁBÆR Á
EVRÓPUMÓTINU Í
SVÍÞJÓÐ Guðbjörg
Gunnarsdóttir varði
mark Íslands á EM
í Svíþjóð og hefur
staðið sig vel á sínu
fyrsta tímabili í norsku
deildinni.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
3. Lögð fram skýrsla formanns
4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
Reikningar bornir undir atkvæði.
6. Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins
ef um er að ræða.
7. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
8. Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
9. Kosning stjórnar, varastjórnar og skoðenda reikninga skv. 9. gr. laga.
10. Önnur mál.
Aðalfundur
Golfklúbbs Ness - Nesklúbbsins 2013
Aðalfundur Golfklúbbs Ness -
Nesklúbbsins verður haldinn í golfskála
félagsins laugardaginn 30. nóvember nk.
kl. 15.00.