Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 112
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
STÍLL OG
BRAGUR
Nánar á www.hib.is
HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG
Nú er
opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
Eva Laufey Kjaran
Hermannsdóttir
Sjónvarpskona og
matreiðslubloggari
ALDUR: 24 ára
MAKI: Haraldur Haraldsson
Eva Laufey heldur úti matreiðslubloggi sem
notið hefur talsverðra vinsælda undanfar-
ið. Hún hefur gefið út eina matreiðslubók,
Matargleði Evu, og nýverið hóf göngu sína
á Stöð 3 þátturinn Í eldhúsinu hennar Evu
þar sem hún stígur sín fyrstu spor í sjón-
varpi. Hún er dóttir landsþekkta gleðigjaf-
ans Hermanns heitins Gunnarssonar.
NÆRMYND
„Hún er fyrst og fremst dugnaðar-
forkur og mjög dugleg að láta vaða.
Hún á það náttúrulega ekki langt að
sækja. Hún tekur sjálfa sig voða lítið
alvarlega, og það er kannski það sem
mér líkar best við hana. Hún getur
hlegið að öllu, sama hversu erfitt
verkefnið er. Svo eru nátt-
úrulega fáir sem eru jafn
sjarmerandi í eldhúsinu
og hún og geta sannfært
mann um að smjör og
rjómi séu hið eina rétta.“
Edda Hermanns-
dóttir systir
„Hún Eva er rosalega dugleg og bara
góð að utan sem innan. Hún var úti
um allt og uppi í öllu sem barn og það
mátti ekki líta af henni eitt augnablik,
þá var hún búin að gera eitthvað af
sér. Hún var eiginlega eins og strákur.
Ég fylgist mikið með matreiðslunni
hennar og hjálpa henni sjálf. Eigum
við ekki að segja að hún hafi erft elda-
mennskuna frá mér og
hitt frá pabba sínum.
Hún er brosmild
og blíð við þá sem
minna mega sín, og
mjög barngóð.“
Sigurrós Allans-
dóttir móðir
„Ég myndi lýsa henni sem alveg
einstakri konu. Hún er
metnaðarfull og ákveðin,
en í senn bæði brosmild
og elskuleg. Við hlæjum
mjög mikið saman, hún
er náttúrulega mikill
húmoristi.“
Haraldur Haraldsson
kærasti