Fréttablaðið - 28.11.2013, Side 1
NÁTTÚRA Stjórn Ferðamálasam-
taka Íslands leggur til að höggv-
ið verði á hnútinn um fyrirhug-
aða gjaldtöku af ferðamönnum
með tímabundinni frjálsri fjölda-
fjármögnun (crowd funding). Um
millileik væri að ræða á meðan
framtíðarlausn er fundin á gjald-
töku.
Hugmyndin snýst um að fá
almenning, fyrirtæki og ferða-
menn til að kaupa sjálfviljugir
ígildi náttúrupassa og styðja með
því samfélagsverkefni sem snýst
um uppbyggingu ferðamannastaða
um land allt.
Ásbjörn Björgvinsson, formaður
FÍ, segir mögulegt að hrinda verk-
efni sem þessu í framkvæmd ef
samstaða næðist á breiðum vett-
vangi. Netið væri hins vegar
þungamiðjan við að kynna verk-
efnið og koma upplýsingum á
framfæri, og þá í gegnum erlend-
ar sem innlendar ferðaskrifstofur,
aðra ferðaþjónustuaðila og í raun
alla sem vettlingi geta valdið.
Spurður um fordæmi segir
Ásbjörn að ekki þurfi annað en að
gúgla „crowd funding“ til að átta
sig á að þetta fyrirkomulag er að
ryðja sér til rúms um allan heim
þar sem verið er að fjármagna
ótrúlegustu hluti.
Það sem FÍ telur ekki síst skipta
máli er að átakið gæti, ef vel tekst
til, nýst hér innanlands til að auka
skilning og velvild almennings á
því að vernda viðkvæma ferða-
mannastaði og gefa þjóðinni kost á
að vera virkir þátttakendur í verk-
efni með jákvæðum formerkjum.
- shá / sjá síðu 6
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
26
ELDVARNIR Jón Pét-ursson slökkviliðsmaður leiðbeinir Sólveigu Arn-arsdóttur um eldvarnir á heimilinu. Landssam-band slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna býður upp á forvarnar-fræðslu í skólum og fyrirtækjum.MYND/STEFÁN
J ón Pétursson slökkviliðsmaður heim-sótti Sólveigu en hann er forvarnar-fulltrúi hjá Landssambandi slökkvi-liðs- og sjúkraflutningamanna. „Það var fínt að fá Jón hingað,“ segir Sólveig. „Þótt maður telji sig vita allt um eldvarnir er gott að fá áminningu. Ég myndi ráðleggja lesendum að standa strax upp og setja upp reykskynjara. Ef hann er kominn upp nú þegar ætti að athuga með rafhlöður. Þegar eldur kom upp hér í götunni varð mér mjög brugðið þegar ég áttaði mig á að reykskynjarinn okkar var rykfallinn uppi á ísskáp. Sem betur fer urðu ekki slys á fólki en mikið tjón og óþægindi hljótast af bruna,“ segir Sólveig. „Jón var undrandi þegar í ljós kom að við ætluðum eingöngu að hafaskynjara í að l
hún enn fremur. „Þá þarf að vera réttur
reykskynjari nálægt eldhúsi sem ekki fer í
gang þegar brauð er ristað.“Jón Pétursson segir að Sólveig hafi
gert sér fulla grein fyrir að hún þyrfti að
bæta úr eldvarnarmálum á heimilinu.
„Hún þarf að bæta við reykskynjurum.
Það er nauðsynlegt að hafa reykskynjara
í öllum rýmum sem við viljum að fólk
komist lifandi úr ef eldur kemur upp.
Reykskynjarinn hefur bjargað mörgum
mannslífum. Nauðsynlegt er að skipta um
rafhlöður árlega.Til að draga úr brunahættu þarf að
hafa alla hluti á heimilinu í reglu, hafa
hreinlegt í kringum sig, geyma aldá eldavél né f
REYKSKYNJARINN VEITIR ÖRYGGILSS KYNNIR Sólveig Arnarsdóttir leikkona býr í timburhúsi í miðborginni en
hún sótti sér fræðslu um eldvarnir eftir að eldur kom upp hjá nágranna.
TÍSKUDÚKKUR Á UPPBOÐI
Chanel, Dior og Lanvin eru meðal tískufyrirtækja
sem hafa hannað einstakar dúkkur sem seldar
verða á UNICEF-uppboði 2. desember. Dúkkurnar
verða til sýnis í Petit Palais í París til 1. desember.
AF
NÝ SENDING
!
JÓLAFÖTUM
N
ÚTSALA HAFIÁ ÚLPUM
Skipholti 29b • S. 551 0770
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
Mikið af flottum tilboðum
TÆKIFÆRISGJAFIR
T
IL
B
O
Ð
Margar gerðir
f. 12 m.
með fylgihl.
Frábær úrval af buxum í góðum sniðum.
Allar buxur
á
20% afslætti.
Stærðir 34-46
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
28. nóvember 2013
280. tölublað 13. árgangur
Sprengjum beitt á síld
Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar
mun freista þess í dag að hrekja
síldartorfuna út úr Kolgrafafirði með
djúpsprengjum. 2
Hallinn 25 milljarðar Afkoma
ríkissjóðs á þessu ári er mun verri en
gert var ráð fyrir í gildandi fjárlögum.
Ferðalög forseta kalla á hækkun á
framlögum. 4
Uppsagnir á RÚV Starfsmönnum
RÚV verður fækkað um 60 vegna
niðurskurðar. 8
Mikill tekjumunur Meðallaun
karla innan Flóabandalagsins eru
120 þúsundum hærri en meðallaun
kvenna. 10
„I ♥ Iceland“
gæti til dæmis verið
nafnið á herferðinni
Úr greinargerð
Ferðamálasamtaka Íslands
SPORT Mögnuð undankeppni HM
2014 hjá Íslandi gerð upp í máli og
myndum. 54
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
F A C E B O O K . C O M / V I L A C L O T H E S
Nýjar vörur
í jólapakkann
Peysa 7.990
MENNING Hrafnhildur Sigurðardóttir
segir málflutning forsætisráðherra
lygilega sögufölsun. 48
SKOÐUN Katrín Jakobsdóttir skrifar
um Ríkisútvarpið og dapurlega
framtíðarsýn. 24
NÁMSMENN „Hefði ég ekki farið á
þetta námskeið þá hefði ég líklega
ekki náð prófinu,“ segir Ragn-
heiður Braga Geirsdóttir, 24 ára
nemandi í félagsráðgjöf í Háskóla
Íslands. Hún er ein af fjölmörgum
nemendum sem hafa skráð sig á
námskeið hjá Nóbel námsbúðum.
Í námsbúðunum er boðið upp
á helgarnámskeið fyrir nem-
endur í framhalds- og háskólum.
Nemendur sem hafa lítið fylgst
með yfir önnina nýta sér nám-
skeiðin til að rifja upp fyrir próf
og ná þeim.
„Laugardag og sunnudag lærði
ég meira en ég hafði gert alla önn-
ina,“ segir Daníel Þór Irvine, 25
ára viðskiptafræðinemi í Háskóla
Íslands, en hann sótti námskeiðið
Inngangur að fjárhagsbókhaldi
hjá Nóbel. - glp / sjá síðu 40
Helgarnámskeið njóta aukinna vinsælda meðal framhalds- og háskólanema:
„Hefði líklega ekki náð prófinu“
RAGNHEIÐUR B.
GEIRSDÓTTIR
DANÍEL ÞÓR
IRVINE
Vilja að Íslandsvinir
fóstri náttúruperlur
Ferðamálasamtök Íslands vilja nýja hugsun í fjármögnun uppbyggingar ferðamanna-
staða til skamms tíma. Reynd verði fjöldafjármögnun sem ryður sér víða til rúms.
OPIÐ TIL Í KVÖLD21
Bolungarvík 3° SSV 6
Akureyri 3° S 5
Egilsstaðir 2° SSV 5
Kirkjubæjarkl. 2° SA 5
Reykjavík 4° S 4
Úrkoma sunnan- og vestanlands og
einnig norðaustan til þegar líður á
daginn. Fremur hægur vindur víðast
hvar en hvessir sunnanlands í kvöld. 4
LÖGREGLUMÁL Þrír menn dreifðu
hausum og löppum af svínum og
svínsblóði um lóð fyrirhugaðrar
mosku í Sogamýri í gær. Menn-
irnir sögðu vegfarendum að til-
gangur verknaðarins væri að
mótmæla byggingu moskunnar.
Krossar höfðu verið teiknaðir á
lóðina með blóðinu. Þar að auki
hafði Kóraninn, útataður í blóði,
verið skilinn eftir og svínslöpp-
um raðað í kringum hann.
Forsvarsmenn Félags músl-
ima gefa lítið fyrir verknaðinn.
„Þetta er sárt en engu að síður
getur maður ekki annað en hlegið
að þessu fólki og vorkennt því,“
segir Salmann Tamimi, varafor-
maður félagsins.
Í hegningarlögum segir að hver
sem „opinberlega dregur dár að
eða smánar trúarkenningar eða
guðsdýrkun löglegs trúarbragða-
félags“ skuli sæta sektum eða
fangelsi. Lögreglan rannsakar
málið. - skó
Svínshausar á moskulóð:
Svínsblóði hellt
á Kóraninn
HAUSUM MOKAÐ UPP Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru fljótir á vettvang og hirtu upp svínshausana, sem þrír menn dreifðu
á lóð Félags múslima á Íslandi. Með þessu vildu mennirnir mótmæla byggingu mosku í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Ungur maður
reyndi að lokka börn upp í bíl
sinn í norðurhluta Grafarvogs
fyrir síðustu helgi. Annars vegar
unga stúlku og hins vegar ungan
dreng, en hvorugt barnið lét plata
sig. Í báðum tilvikum var um
ungan mann á rauðleitum bíl að
ræða.
Foreldrar barna í Vættaskóla
í Grafarvogi fengu í gær send-
an tölvupóst þar sem Jóhanna S.
Vilbergsdóttir skólastjóri biður
foreldra að ræða alvarlega við
börnin um að þiggja ekki far,
gjafir eða gylli boð frá ókunnugu
fólki. Lögregla rannsakar málið
en maðurinn er ófundinn.
„Það er venja að láta foreldra
vita af slíku svo þau geti varað
börnin við. Við erum mikið að
minna börnin á þetta sjálf, eins
og foreldrarnir heima. Við pöss-
um hvert upp á annað,“ segir
Jóhanna. - skó
Foreldrar vari börnin sín við:
Reyndi að tæla
börn inn í bíl