Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 70

Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 70
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58 Þeir staðir sem ég fer nú oftast á eru í beinni línu frá vinnustofunni, Lemon, Gló og svo auðvitað Snaps. Það er besti staðurinn til að hitta gott fólk, plotta heimsyfirráð yfir hvítvíni og Confit de Canard. Ási Már Friðriksson, fatahönnuður BESTI BITINN „Þetta verður mjög leiðinlegt. Fólk mun örugglega ganga út eftir tíu mínútur,“ segir spéfuglinn Hug- leikur Dagsson um uppistandið sitt Djókaín í Háskólabíói á föstudag- inn. „Nei, ég er að sjálfsögðu að grínast. Þetta verður mjög gaman. Ég tækla allt milli himins og jarðar, tala um kynlíf, hið íslenska tungu- mál, barneignir og allt mögulegt.“ Uppistandið verður tekið upp en Reykjavík Studios sér um fram- leiðsluna. Afraksturinn verður síðan sýndur á Stöð 2. „Þetta uppistand er samansafn af því efni sem ég hef flutt síðustu þrjú árin. Ég ætla að klára þetta og halda næst uppistand þegar ég verð búinn að semja nýtt efni,“ segir Hugleikur sem treður líka upp í Hofi á Akureyri 19. desember. „Ég held að þetta sé stærsta uppi- stand sem íslenskur uppistandari hefur haldið einn á Íslandi. Ég er í raun ekkert stressaður enda of upp- tekinn til að spá í það. Ég er búinn að vera að fínstilla þetta efni fram að þessu þannig að þetta verður frábært.“ Aðspurður hvort framhald verði á grínþáttunum Hulla sem sýndir voru á RÚV segir Hugleikur það til- tölulega öruggt. „Ég held að það sé alls staðar áhugi á að það komi meira. Fram- leiðsluferlið er hægt og eiginlega hægara núna vegna ríkisstjórnar- innar. Ef fólk þarf að bíða of lengi eftir þáttunum er það ríkisstjórn- inni að kenna.“ - lkg Börn, kynlíf og íslensk tunga Hugleikur Dagsson heldur eitt stærsta uppistand á Íslandi í Háskólabíói. EKKERT STRESSAÐUR Hugleikur hefur ekki tíma fyrir stress. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ef fólk þarf að bíða of lengi eftir þáttunum er það ríkisstjórninni að kenna. Egill Björnsson rekur viðburða- fyrirtækið T-Street í London, sem er eins konar systurfélag Tjarnar- götu, íslensku auglýsingastof- unnar. Hann hefur starfað með Samuel L. Jackson og fyrir knatt- spyrnufélagið Chelsea. „Samuel L. Jackson heldur golf- mót til styrktar ýmsum góðgerðar- samtökum. Lokahnykkur mótsins er svo kvöldverður og skemmtun tengd honum. Við tökum kvöld- ið upp á myndband og sjáum um hljóðvinnu,“ segir Egill. Starf- ið með Chelsea snýst meðal ann- ars um verðlaunaafhendingu sem sýnd er á Chelsea TV, sjónvarps- stöð félagsins. „Við sjáum um grafíska vinnu í útsendingunni og veitum ýmiss konar tæknilegan stuðning. Ann- ars störfum við mikið á Stamford Bridge [heimavelli Chelsea]. Þar eru alls kyns viðburðir og flott- ur tónleikastaður á neðstu hæð- inni í eigu Romans Abramovich,“ segir Egill. Hann segir aðstöðuna þar vera frábæra. „Allar græjur þarna eru af bestu gerð, þarna hefur greinilega verið keypt inn það dýrasta og besta.“ Samstarfsfélagar Egils í T- Street bera Jose Mourinho vel söguna. „Knattspyrnustjórar hafa auðvitað komið og farið hjá Chelsea undanfarin ár. En mér er sagt að Mourinho sé eini gæinn sem tekur í spaðann á almennum starfsmönnum,“ segir Egill. Samhliða kvikmyndanáminu, sem var dýrt að hans sögn, aðstoð- aði Egill fólk við uppsetningu á viðburðum og ákvað að stofna fyr- irtæki í tengslum við Tjarnargötu. Nóg er af verkefnum hjá Agli, en jólavertíðin er stór í London. „Jólin byrjuðu í nóvemberbyrjun hérna. Það verður nóg að gera alveg fram á jóladag,“ segir Egill. - kak Vinnur með Samuel L. Jackson Egill Björnsson rekur fyrirtækið T-Street og hefur unnið við stóra viðburði í London. ÁSAMT JACKSON Hér er Egill með Samuel L. Jackson á lokakvöldi golfmóts sem Jackson heldur. Hljómsveitin Hjaltalín tilkynnti í gær að hún héldi tónleika í Eld- borgarsal Hörpu á næsta ári. Sveit- in forsýndi nýtt myndband við lagið I Feel You í Hörpu í gærkvöldi. Myndbandið verður frumsýnt á Íslandi á visir.is í dag. „Hjaltalín verður þá í raun fyrsta hljómsveitin af yngri kynslóðinni sem heldur sína eigin tónleika þar,“ segir Steinþór Helgi Arnsteins- son, umboðsmaður sveitarinnar. „Við viljum vera með smá „state- ment“ og hlökkum mikið til að taka þetta skref,“ segir Steinþór og bætir við að fleiri valmöguleikar fyrir ungt fólk til að fara á tónleika í Hörpu hafi vantað, sérstaklega stærri einstaka viðburði, þó svo að hátíðir á borð við Airwaves og Sónar hafi þjónað þessum kúnnahópi frá- bærlega. „Við ætlum þess vegna að stilla miðaverði í hóf en samt að leggja allt í þetta varðandi hljóð, ljós og ætlum að frumflytja nýtt efni og fleira til,“ segir Steinþór jafnframt. Miðasala hefst á hádegi á föstu- dag. „Þetta verða stærstu tónleikar sem við höfum haldið og auðvitað erum við strax orðin hrikalega spennt,“ segir Steinþór að lokum. - ósk Hjaltalín spilar í Eldborg Frumsýnir nýtt myndband við lagið I Feel You á Vísi í dag. LEGGJA ALLT Í TÓNLEIKANA Hjaltalín verður með tónleika í Hörpu á næsta ári. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON D Y N A M O R E Y K J A V ÍK HLUSTAÐ EFTIR JÓN ÓTTAR ÓLAFSSON „Nýr höfundur hefur stigið fram í sviðs- ljósið með sérlega raunsæja og kraftmikla glæpasögu.“ IÞK, Bokmenntir.is D Y N A M O R E Y K J A V ÍK Útgáfuréttur seldur til Noregs og Frakklands „RÍGHELDUR“ „Hlustað er spennandi, rígheldur og fléttan gengur smekklega upp.“ ÞÞ, FRÉTTATÍMINN, 22. NÓV. „eftirhruns- tryllir af bestu s ort ... lesandinn nöt raði síðustu hundrað síðurnar.“ HALLGRÍMUR HE LGASON „Í nýju skartgripalínunni Scarab er sóttur innblástur til skordýra,“ segir Helga Gvuðrún Friðriksdótt- ir, sem kynnir nýja skartgripalínu á Loftinu í Austurstræti í kvöld klukkan hálf níu, ásamt Orra Finn- bogasyni. Saman skipa þau hönn- unarteymið Orri Finn. Þau Helga og Orri halda áfram að vinna með tákn, líkt og þau gerðu með síðustu línu sinni, Akk- eri. „Þetta tákn er forn-egypskt. Við erum að líkja eftir bjöllu af ýflaætt [scarab]‚ en það eru bjöllur sem lifa í heitari löndum og í eins konar sandhólum. Forn-Egyptar heilluðust mjög af bjöllunum og töldu þær heilagar, aðallega vegna þess að þær sýndu af sér hegðun sem var hliðstæð hegðun sólguð- sins,“ útskýrir Helga. „Sólguðinn ýtti sólinni inn í sjón- deildarhringinn á hverjum morgni og þessi bjalla ýtti moldarkúlu á undan sér. Inni í kúlunni var að finna matarforða dýranna og svo fylltu bjöllurnar hana af eggjum og afkvæmi þeirra skriðu svo út úr henni,“ heldur Helga áfram. „Þannig að táknið nær yfir hringrásina, endurfæðingu og umbreytingu.“ Orra og Helgu fannst heillandi að heiðra þessi tákn á sama hátt og Egyptarnir gerðu. „Okkur finnst líka svo skemmtilegt að þetta form, og þessi bjalla, var vernd- argripur. Formið var skorið út í steina og svo jafnvel grafið með faraóum og múmíur skreyttar með þessu,“ segir Helga. Helga hefur lengi heillast af verndargripnum. „Ég fékk svona stein að gjöf þegar ég var barn. Ég gekk alltaf með hann og var eiginlega með hann á heilan- um,“ segir Helga létt í bragði. Sýningin í kvöld verður í formi hefðbundinnar tískusýningar, þar sem koma fram tíu atvinnu- fyrirsætur, fimm af hvoru kyni. „Við leggjum áherslu á að skart- gripirnir okkar eru fyrir bæði kynin,“ segir Helga, en tónlistar- maðurinn Biggi Bix fer með tón- listarstjórn á sýningunni. „Hann er búinn að semja eins konar skordýrahljóðverk sem verður flutt meðan á sýningunni stend- ur,“ bætir Helga við. olof@frettabladid.is Táknin notuð til að skreyta múmíur Helga Gvuðrún Friðriksdóttir og Orri Finnbogason kynna nýju skartgripalínuna Scarab á Loft inu í kvöld. Innblástur í línuna er sóttur til Forn-Egypta og faraóa. ORRI FINN Þau Helga Gvuðrún Friðriks- dóttir og Orri Finnbogason skipa saman hönnunar- teymið Orri Finn. Þau kynna nýja skartgripalínu á Loftinu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI HEILÖG TÁKN Forn-Egyptar heilluðust mjög af bjöllum af ýflakyni og töldu þær heilagar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.