Fréttablaðið - 28.11.2013, Side 24

Fréttablaðið - 28.11.2013, Side 24
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Dapurlegar fregnir berast okkur nú frá Ríkisútvarpinu, almannaútvarpinu okkar. Ljóst er að Ríkisútvarpið hefur búið við skertan kost undanfarin ár eins og aðrar stofnanir hins opinbera eftir hrun. Um leið hefur flestum orðið ljósari þörfin á öflugum almannaþjónustumiðli í samfélaginu sem hefur gríðarmiklu hlut- verki að gegna við að tryggja upplýsta og lýðræðislega umræðu, sinna menningu og mannlífi og veita upplýsingar þegar óvæntir atburðir verða. Síðastliðið vor samþykkti Alþingi Íslendinga ný lög um Ríkisútvarpið. Þau voru afrakstur mikillar vinnu þar sem leitast var við að skilgreina almanna- þjónustuhlutverk útvarpsins. Ætlunin var ennfremur að breyta stjórnarfyrir- komulagi stofnunarinnar þannig að val- nefnd, tilnefnd af Alþingi, samtökum listamanna og háskólasamfélaginu, gerði tillögu til ráðherra að stjórn sem fengi skýrara en um leið víðtækara hlutverk en áður. Síðast en ekki síst voru lagðar til ákveðnar takmarkanir á þátttöku Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði en á móti var lagt til að útvarpsgjaldið, sem allir greiða, ætti að renna óskert til útvarpsins. Nú er það hins vegar svo að meðal fyrstu verka nýrrar ríkisstjórnar var að bakka í gamalt fyrirkomulag í stjórnar- skipun þar sem flokkarnir á Alþingi til- nefna í stjórn. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014 er gert ráð fyrir að ákvæðinu um að útvarpsgjaldið renni óskert til RÚV verði frestað til 2016 en það verði um leið lækkað þannig að tekjur RÚV aukist ekki að sama skapi. Og síðasta útspil ríkisstjórnarinnar er að boða til- lögur um að teknar verði til baka að hluta þær takmarkanir sem settar voru á öflun auglýsingatekna. Í stuttu máli hefur staða Ríkisútvarps- ins verið veikt stórlega á tíma þar sem hefði átt að vera svigrúm til að bæta hana. Afleiðingarnar eru fjöldauppsagn- ir á starfsmönnum Ríkisútvarpsins og dapurleg framtíðarsýn þar sem búast má við minni getu til að sinna því mikil- væga hlutverki sem stofnunin hefur að gegna í nútímalegu lýðræðissamfélagi. Við hljótum að gera kröfu um skýra for- gangsröðun stjórnenda RÚV í þágu þess hlutverks og skýran vilja stjórnvalda til að sinna því. Fyrirætlunum um skerðingu útvarps- gjalds er hægt að breyta við afgreiðslu fjárlaga ef þingmönnum er annt um hér verði áfram rekinn öflugur almanna- þjónustumiðill og vilja tryggja framtíð hans. Verjum Ríkisútvarpið RÍKISÚTVARPIÐ Katrín Jakobsdóttir alþingismaður og formaður Vg Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Póstsendum www.lifstykkjabudin.is Laugavegi 82 sími 551-4473 Ný sending af undirfatnaði frá París Til bjargar Gnarr Þingmenn Bjartrar framtíðar vilja mannanafnanefnd feiga. Þeir hafa lagt fram frumvarp þess efnis á Alþingi. Í frumvarpinu er lagt til að þær kvaðir sem lög um mannanöfn fela í sér varðandi ættarnöfn verði felldar niður. Samkvæmt því verður hverjum manni heimilt að kenna sig til föður eða móður nema hann kjósi að bera ættarnafn. Það sem Gerir málið sérlega skemmtilegt er að tveir flutningsmanna bera ættarnöfn, þeir Óttarr Proppé og Róbert Marshall. Þetta leiðir líka hugann að því að Jón Gnarr borgarstjóri er ekki par sáttur við manna- nafnanefnd og hefur velt því fyrir sér að flytja úr landi svo hann geti fengið að breyta millinafni sínu formlega úr Gunnar í Gnarr. Meintar Hótanir Menn ræddu uppsagnir á RÚV á Þingi í gær og sagði Helgi Hjörvar að Vigdís Hauksdóttir hefði haft í hótunum við RÚV; ef stofnunin gerði ekki hitt eða Þetta fengi hún minni peninga á fjárlögum. Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra gaf ekki mikið fyrir þessi ummæli. Hann kvaðst ekki til viðræðu um að taka lán til að halda úti óbreyttri dagskrá eða óbreyttri starf- semi Ríkisútvaps- inis. Það yrði að spara. Þarf meiri peninga Það hljómar einhvern veginn öfug- snúið þegar allir eiga að spara og skera niður hjá ríkinu að þá skuli ríkisstjórnin biðja um meiri peninga. Í fjáraukalögum sem lögð voru fram á Alþingi í gær kemur fram að kostn- aður vegna nýrrar ríkisstjórnar, fjölg- unar ráðherra og aðstoðarmanna eykst um 97 milljónir á þessu ári og það þarf aukafjárveitingu til að mæta þessum kostnaði. Í hagræðingartillögum sem nýlega voru kynntar var ekkert minnst á að þarna mætti kannski eitthvað klípa af fitulaginu. johanna@frettabladid.isU ppsagnir hátt í fjörutíu starfsmanna Ríkisútvarpsins í gær vekja athygli og umræður. Gott fagfólk, sem margt hvert hefur orðið heimilisvinir landsmanna í gegnum viðtækin, missti vinnuna og að því er að sjálfsögðu eftirsjá. Samdráttur í umsvifum RÚV frá hruni er þó sízt minni en hjá einkareknum fjölmiðlafyrirtækjum, sem líka hafa þurft að taka sársaukafullar ákvarðanir um að fækka starfsfólki. Það er ein- faldlega úr minni peningum að spila á Íslandi. Auglýsingamarkað- urinn hefur ekki rétt úr kútnum og ríkissjóður, sem leggur RÚV til stærstan hluta rekstrarfjárins, er rekinn með halla. Það er ekki hægt að fara til skattgreiðenda og biðja um meiri peninga. Starf- semi sem rekin er fyrir þeirra fé verður að sníða stakk eftir vexti. Það á við um RÚV eins og önnur ríkisfyrirtæki. Skerðing á þjónustu RÚV er boðuð og er óhjákvæmileg, miðað við að lækka þurfi árlegan rekstrarkostnað um 500 milljónir króna, eins og Páll Magnússon útvarpsstjóri metur það. Hins vegar má draga í efa að það sé rétt stefna að segja upp nokkrum hér og nokkrum þar. Að minnsta kosti til lengri tíma hlýtur að þurfa að forgangsraða í starfseminni, þannig að RÚV sinni því hlutverki sem ríkisútvarp á að gera; að veita þjónustu sem einkareknir fjölmiðlar gera ekki eða ekki er hægt að ætlast til að þeir geri, en hætti því sem aðrir gera jafnvel eða betur. Í undirskriftasöfnun, sem nú er hafin til að mótmæla sparnað- inum hjá RÚV, er vikið að lögbundnu menningar- og öryggishlut- verki þess, gildi RÚV sem óháðs fréttamiðils, fræðsluhlutverki og framlagi til skemmtunar og afþreyingar. Ríkisútvarpið á að sjálfsögðu að einbeita sér að menningar- og öryggishlutverkinu, upplýsingunum og fræðslunni. Um skemmtunina sjá aðrir. RÚV þarf til dæmis ekki tvær útvarpsstöðvar til að sinna þessu hlutverki. Svo vitnað sé til orða Páls Magnússonar, þegar hann var útvarpsstjóri á einkamiðli: „Til hvers í ósköpunum er ríkið að halda úti afþreyingarrás á borð við Rás 2, þegar sprottið hafa upp frjálsar stöðvar sem eru að gera nákvæmlega það sama?“ Ríkisútvarpið þarf heldur ekki að verja hundruðum milljóna króna til að kaupa útsendingarrétt að erlendum íþróttakappleikj- um, í harðri samkeppni við einkafyrirtæki. Yfirboð RÚV í slíkum viðskiptum benda til að þar hafi menn fyrir löngu misst sjónar á hvað sé skynsamleg meðferð skattpeninganna sem þeim er treyst fyrir. Og RÚV þarf ekki að senda út Hollywood-bíómyndir, amerískar eða ameríkaníseraðar þáttaraðir eða skemmtiþætti. Það er nóg af slíku á einkastöðvunum. RÚV getur sinnt með sóma sínu öryggis-, menningar-, upp- lýsinga- og fræðsluhlutverki fyrir minni peninga. Þegar Páll Magnússon tók við útvarpsstjórastarfinu sagði hann að RÚV þyrfti að „gera upp við sig hvernig það vill verða og raða hlut- verkum í ákveðinn forgang og ég tel að á þeim sviðum, sem Ríkisútvarpið ætlar á annað borð að beita sér, eigi það að gerast af fullum krafti ...“ Páll ætti að taka mark á þessum skynsamlegu eigin orðum. Sparnaður hjá Ríkisútvarpinu er óhjákvæmilegur: Minna RÚV með skýrara hlutverk

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.