Fréttablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 32
FÓLK|TÍSKA
Tískuvikan, sem ber nafnið World MasterCard Fashion Week, vekur mikla athygli víðar en í Kanada, enda sýna margir ungir hönnuður þar vöru sína. Aðrir hafa þegar
getið sér gott orð í tískuheiminum.
Þar má nefna hinn gríska Stephan Caras sem sýndi
fallega galakjóla í rómantískum litum. Caras menntaði
sig í Ástralíu og sökkti sér ungur í heim tískunnar. Hann
hefur verið leiðbeinandi í fatavali helstu fegurðardrottn-
inga heimsins, til dæmis Miss Universe. Honum hefur
verið boðið að taka þátt í tískusýningum í París, London,
New York, Los Angeles og víðar þar sem hann sýnir með
heimsþekktum hönnuðum. Caras þykir hafa einstaka
framtíðarsýn fyrir hönnun og næmt auga fyrir kvenlegum
glæsileika.
Mikael D er ungur kanadískur hönnuður sem getið hefur
sér gott orð fyrir listræna sköpun og hönnun. Foreldrar hans
hönnuðu og framleiddu barnafatnað svo hann á ekki langt
að sækja hæfileikann. Mikael D sýndi galakjóla fyrir næsta
sumar, líkt og Caras og báðir lögðu þeir áherslu á róm-
antík, blúndur og fínar línur. Mikael D selur hátískuföt
undir eigin merki.
Margir aðrir sýndu hönnun sína á tískuvikunni í
Toronto en gaman er að skoða hvaða hugmyndir
þeir Mikael D og Caras hafa um fallega kjóla, nú
þegar jólin og nýársfagnaðir eru á næsta leiti.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is,
s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
GALAKJÓLAR
Í KANADA
TÍSKA Ein stærsta tískuvika í Kanada fór fram í Tor-
onto þar sem fjölmenni fylgdist með innlendum og
erlendum hönnuðum sýna vor- og sumartísku 2014.
SUMARLEGUR
Stephen Caras
hannaði þennan
fallega galakjól
og lætur vítt,
bleikt pilsið
njóta sín
vel.
SVART OG BLÚNDA Svartir
blúndu kjólar voru áberandi á tísku-
sýningum í Toronto en ljósir litir eru
ekkert síður vinsælir.
BLEIKT OG SVART Það er greinilegt að bleikt og svart verður áberandi
næsta sumar. Stephan Caras hannaði þennan kjól. MYNDIR/GETTY
MEÐ SILFURÞRÁÐUM Þessi fall-
egi, stutti, hvíti og silfurliti kjóll er
hannaður af hinum unga Mikael D.
MEIRI BLÚNDA
Fallegur kjóll,
hannaður af
Mikael D fyrir
vorið 2014.
HAFMEYJAN Fallega blár hafmeyjukjóll hannaður af Mikael D.
af fiski og frönskum gegn
framvísun þessa miða.
Aðeins 1.900 kr. fyrir tvo.
Gildir til 31.12.2013.
Sjavarbarinn.is s: 517-3131
2
1FY
RI
R
Magnús Ingi Magnússon,
veitingamaður á Sjávar-
barnum, hefur sett sam-
an einstaklega girnilegt
hlaðborð fyrir hópa og
fyrirtæki sem er upplagt
í jólagleðina á vinnu-
staðnum, í veislusal eða
heima. „Þetta er einfalt
og ódýrt jólahlaðborð en
á því eru bæði heitir og
kaldir klassískir réttir og
verð á mann er aðeins
1.990 krónur,“ segir
Magnús Ingi. „Á borðinu
eru karrísíld og rauðrófu-
síld, sjávarrétta fantasía,
purusteik, hangikjöt og
kjúklingur. Meðlætið er
ríkulegt; heit sósa, brún-
aðar kartöflur, kartöflu-
jafningur, fjölbreytt græn-
meti, ferskt salat, kaldar
sósur og úrval af brauði.“
Lágmarksfjöldi er 10
manns en allar nánari
upplýsingar er að finna á
vef Sjávarbarsins,
sjavarbarinn.is.
JÓLAHLAÐBORÐ
Á AÐEINS 1.990 KR.!
SJÁVARBARINN KYNNIR
Pakkar og töskur með Meguiar’s bóni og hreinsivörum frá Máln-ingarvörum eru vinsælar jólagjafir
til bíleigenda á öllum aldri. Steindór
Reykdal, starfsmaður hjá Málningar-
vörum, segir marga koma til þeirra fyrir
hver jól og kaupa pakka enda er um
sérlega heppilegar og gagnlegar gjafir
að ræða. „Við höfum sérstaklega selt
mikið af stóru og veglegu töskunum
okkar en þær innihalda flest þessi
helstu efni sem bílaáhugamenn þurfa
að eiga. Í töskunni eru sápa, bón, felgu-
hreinsir, mælaborðshreinsir, dekkjagljái,
þvottahanski og örtrefjaklútur. Öll efnin
koma saman í handhægri tösku á frá-
bæru jólatilboði.“
Auk þess bjóða Málningarvörur líka
minni pakka og svo geta viðskiptavinir
að sjálfsögðu búið til sinn eigin pakka
að vild segir Steindór.
Málningarvörur eru í Lágmúla 9 í
Reykjavík sem er bakhúsið hjá Nova.
„Þar er svo sannarlega stórmarkaður
bílaáhugamanna með allar helstu
hreinsivörur fyrir bíla, bæði að innan
sem utan. Viðskiptavinir njóta líka góðs
af því að ræða við fagmenn sem hafa
svör við öllum spurningum um hreins-
un og viðhald bílsins. Hjá Málningar-
vörum vinnur hópur reyndra manna
sem hafa starfað lengi í þessum bransa
og viðskiptavinir okkar eru í góðum
höndum.“
Helsta nýjungin hjá Málningarvörum
núna er Water Spot Remover sem er
efni sérstaklega ætlað til að fjarlægja
för eftir vatnsdropa á öllum glansandi
flötum. „Efnið fjarlægir för eftir vatns-
dropa af til dæmis lakki, gleri, plasti og
fleiri yfirborðsefnum. Þetta töfraefni
leysir úr vanda hér sem annars staðar
þar sem áfall vegna regns getur skapað
bletti. Þetta
á sérstaklega
við á stórum
svæðum í og
við gufuafls-
virkjanir eins
og til dæmis
hér á suð-
vesturhorni
landsins.“
BÓN OG HREINSI-
VÖRUR FYRIR JÓLIN
MÁLNINGARVÖRUR KYNNA Bón og hreinsivörur frá Málningarvörum eru vin-
sælar jólagjafir handa bíleigendum. Vörurnar fást í fallegum pökkum og töskum.
GÓÐ GJÖF Stóru tösk-
urnar innihalda helstu
efnin sem bílaáhuga-
menn þurfa að eiga að
sögn Steindórs Reykdal
hjá Málningarvörum.
MYND/GVA
JÓLAGJÖFIN Tösk-
urnar eru veglegar og
tilvalin jólagjöf fyrir bíla-
áhugamanninn.
MYND/GVA