Fréttablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 4
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Aðrir útgjaldaliðir hækka líka.
Sérfræðihópur ríkisstjórnarinn-
ar í skuldamálum kostar þannig
40 milljónir en ekki var gert ráð
fyrir störfum þessa hóps í fjár-
lagafrumvarpinu. Útlendinga-
stofnun fær tæpar 370 milljónir
til að standa straum af auknum
kostnaði við hælisleitendur. Í lok
septembermánaðar höfðu 137 sótt
um hæli hér á landi en í fyrra
voru umsóknir 83. Þá fær stofnun-
in líka aukið framlag til að hraða
málsmeðferð í málefnum hælis-
leitenda. hks@frettabladid.is
➜ Útlendingastofnun fær
tæpar 370 milljónir til að
standa straum af auknum
kostnaði við hælisleitendur.
Þegar ferðaáform Íslendinga voru
könnuð fyrir árið 2013
kom í ljós að níu af hverjum
tíu svarendum höfðu áform um
ferðalög á árinu.
34,9% ætluðu í borgarferð erlendis,
34,0% í ferð innanlands með
vinahópi eða klúbbfélögum og 26,0%
í borgar- eða bæjarferð innanlands.
17,5% ætluðu í sólarlandaferð, svo
eitthvað sé nefnt. Heimild: Ferðamálastofa
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingsvindur eða allhvasst um
allt land.
KÓLNAR OG HLÝNAR Á VÍXL næstu daga og því verður sú úrkoma sem fellur ýmist
á formi rigningar, slyddu eða snævar. Meiri líkur eru á rigningu og slyddu sunnan og
vestan til en slyddu eða snjókomu norðan- og austanlands.
3°
6
m/s
4°
7
m/s
4°
4
m/s
6°
8
m/s
Á morgun
Strekkingsvindur með SA og A-
ströndinni annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
4°
2°
3°
3°
2°
Alicante
Aþena
Basel
15°
15°
4°
Berlín
Billund
Frankfurt
8°
9°
3°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
3°
9°
9°
Las Palmas
London
Mallorca
24°
9°
13°
New York
Orlando
Ósló
1°
17°
4°
París
San Francisco
Stokkhólmur
6°
16°
6°
2°
5
m/s
5°
4
m/s
2°
5
m/s
2°
5
m/s
3°
5
m/s
3°
6
m/s
-1°
7
m/s
1°
-2°
0°
1°
0°
ALÞINGI Frumvarp til fjáraukalaga
var lagt fram á Alþingi í gær. Sam-
kvæmt frumvarpinu lækka tekjur
ríkisins verulega miðað við þá
áætlun sem gildandi fjárlagafrum-
varp tekur mið af.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að ríkissjóður yrði rekinn með 3,7
milljarða króna halla en nú stefn-
ir í að hallinn verði 25,5 milljarðar
króna.
Fram kemur í greinargerð með
frumvarpinu að efnahagsbat-
inn hafi verið hægari en áætlan-
ir gerðu ráð fyrir og lækkar það
tekjur ríkisins um 11,6 milljarða.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að falla frá virðisaukaskatti á hótel-
og gistináttaþjónustu og breytingar
á sérstöku veiðigjaldi kosta ríkis-
sjóð 3,7 milljarða. Áform um tekjur
af eignasölu munu ekki ganga eftir
og arðgreiðslur til ríkisins lækka.
Í frumvarpinu eru lagðar til fjöl-
margar breytingar á útgjaldalið-
um. Embætti forseta Íslands fær
þannig 14 milljóna króna viðbótar-
framlag meðal annars vegna end-
urnýjar á tækjabúnaði, viðhalds-
verkefna og aukinna ferðalaga í
tengslum við opinberar heimsóknir.
Eftir bankahrun var ákveðið fækka
ferðalögum forseta en ákveðið var
að fjölga þeim á ný á þessu ári.
Rekstrarkostnaður ríkisstjórnar-
innar hefur líka hækkað á milli
ára, meðal annars vegna fjölgunar
ráðherra og aðstoðarmanna. Kostn-
aðurinn hækkar um rúmar hund-
rað milljónir og fer úr 240 milljón-
um miðað við áætlanir upp í tæpar
340 milljónir.
Hallinn á ríkissjóði
rúmir 25 milljarðar
Afkoma ríkissjóðs á þessu ári er mun verri en gert var ráð fyrir í gildandi fjár-
lögum. Rekstrarkostnaður ríkisstjórnarinnar hækkar um 100 milljónir og aukin
ferðalög forseta kalla á hækkun á fjárframlögum í frumvarpi til fjáraukalaga.
BREYTINGAR FRÁ FJÁRLÖGUM 2013
Hækkun á framlögum í fjáraukalögum
í milljónum króna
14 milljónir
368 milljónir
40 milljónir
35 milljónir
31 milljón
Forsetaembættið
Rekstur ríkisstjórnarinnar
Almannatengslafyrirtæki vegna makríldeilunnar
97 milljónir
22,5 milljónir
Útlendingastofnun vegna hælisleitenda
Sérfræðihópar um skuldatillögur
RÚV vegna gervihnattaþjónustu
Hafrannsóknastofnun vegna síldardauða í Kolgrafafirði
TEKJUR
-23,7milljarðar
GJÖLD
-1,9milljarðar
Tekjur lækka mun
meira en niður-
skurður á útgjöldum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Við ætlum að hittast
næstkomandi þriðjudag og skipa kjörstjórn
vegna forvals flokksins í Reykjavík,“ segir
Kjartan Valgarðsson, formaður flokksstjórnar.
Það verður svo kjörstjórnar að ákveða fram-
kvæmd forvalsins.
Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi sækist
eftir fyrsta sætinu og þykir öruggur um að
hreppa það. Oddný Sturludóttir sem skipaði
annað sætið á lista Samfylkingarinnar fyrir
síðustu kosningar ætlar ekki að gefa kost á sér.
Ekki er vitað hvort Björk Vilhelmsdóttir,
sem skipaði þriðja sætið fyrir síðustu kosn-
ingar, ætlar að halda áfram. Björk bauð sig
fram til þings í fyrra en náði ekki kjöri. Hún
er nú varaþingmaður. Björk lýsti því yfir í
vor að hún myndi hætta í borgarstjórn ef hún
næði kjöri á þing. Einhverjir hafa skorað á
Björk að halda áfram, Kjartan Valgarðsson er
einn þeirra. „Ég bið til guðs á hverjum degi að
Björk haldi áfram,“ segir hann.
Hjálmar Sveinsson sem skipaði fjórða sætið
fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar mun
hafa hug á að halda áfram.
Sigrún Elsa Smáradóttir sem skipaði sjö-
unda sætið sagði í samtali að hún væri hætt
og Margrét Sverrisdóttir segist ekki búin að
ákveða hvort hún taki þátt prófkjöri. - jme
Kjörstjórn vegna forvals Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík skipuð í næstu viku:
Biðlað til Bjarkar Vilhelms að halda áfram
LÍFIÐ Eva Dögg Rúnarsdóttir fata-
hönnuður prýðir forsíðu Lífsins á
morgun. Hún rekur eigin verslun
í Kaupmannahöfn og hefur nú
hannað sínu fjórðu skólínu fyrir
Shoe the bear.
Svava Sigberts-
dóttir einka-
þjálfari er orðin
vinsæl meðal
stjarnanna í
Bretlandi og
þjálfar X-Fac-
tor dómarann
Nicole Scherz-
inger. Jónas Breki Magnússon
gullsmiður er með Rokk og Ról-
skartgripalínuna Breka. Magnea
Einarsdóttir fatahönnuður er með
töffaralega prjónalínu sem verð-
ur fáanleg í kvenfatadeild JÖR í
desember og hvað gera frægir í
tilefni aðventunnar?
Lífið með blaðinu á morgun:
Umhverfisvænn
hönnuður
KJRATAN
VALGARÐSSON
BJÖRK
VILHELMSDÓTTIR
EVA DÖGG
RÚNARSDÓTTIR
AKUREYRI Allt að eitt hundrað millj-
ónum verður varið í átakið á næsta ári.
UMHVERFISMÁL Í tilefni af 150 ára
afmæli Akureyrarkaupstaðar í
fyrra ákvað bæjarstjórn Akureyr-
ar að verja allt að hálfum milljarði
króna í sérstakt umhverfisátak
næstu fimm árin.
Framkvæmdaráð vann áætlun
eftir þeim ríflega 200 tillögum
sem bárust í byrjun þessa árs og
nú er óskað eftir nýjum tillögum
frá bæjarbúum fyrir árið 2014.
Á næsta ári, líkt og á því síðasta,
verða allt að eitt hundrað milljónir
lagðar í átakið og er fjárveitingin
einkum ætluð til nýframkvæmda
og stofnbúnaðarkaupa sem tengj-
ast umhverfismálum í sveitar-
félaginu. - fb
Bæjarstjórn Akureyrar:
Tillögur fyrir
umhverfisátak
ALÞINGI Fjórir þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins lögðu í gær fram þings-
ályktunartillögu um að mennta-
og menningarmálaráðherra móti
heildstæða stefnu um afreksfólk
í íþróttum. Stefnan yrði unnin í
samstarfi við Íþrótta- og Ólympíu-
samband Íslands og sveitarfélög.
Stefnan yrði tímasett samhliða því
að fjárhagslegur stuðningur við
afreksfólk yrði tryggður.
Í greinargerð með tillögunni
segir að afreksíþróttir hafi skipað
veglegan sess meðal landsmanna
og fólkið verið góð landkynning á
erlendri grund. - skó
Vilja styðja íþróttahreyfingu:
Móta stefnu
um afreksfólk
SJÁVARÚTVEGUR Frystitogarinn
Örfirisey RE er nú að veiðum á
Vestfjarðamiðum og hefur veiði-
ferðin staðið í tæpa viku. Í veiði-
ferðinni á undan var aflinn rúm
600 tonn af fiski upp úr sjó og
auk hausaðs og heilfrysts fisks
og frystra flaka var skipið með
um 100 tonn af hausum sem allir
nýtast til þurrkunar í landi eða
útflutnings.
Símon Jónsson, sem var skip-
stjóri í veiðiferðinni, segir á
heimasíðu HB Granda að þorsk-
og ufsahausarnir fari í þurrkun,
en eru einnig seldir frosnir úr
landi. Karfahausarnir eru hins
vegar seldir frystir úr landi og
nýtast sem beita í krabbagildr-
um. - shá
Fín veiði fyrir vestan:
100 tonnum af
hausum landað