Fréttablaðið - 28.11.2013, Síða 38
FÓLK|BARNAHEILL
Starfsmenn og dvalargestir á Hrafnistu í Reykjavík eru þessar vikurnar að prjóna saman tvær fallegar jólapeysur. Markmið er
að halda uppboð á þeim fljótlega og gefa and-
virðið til Barnaheilla. Sigurbjörg Hannesdóttir,
deildarstjóri iðjuþjálfunar hjá Hrafnistu í Reykja-
vík, segir hópinn hafa áður tekið þátt í ýmsum
samvinnuverkefnum undanfarin ár en þetta sé
í fyrsta skiptið sem þau vinna fyrir Barnaheill.
„Hugmyndin varð til í starfsmannahópnum yfir
hádegismatnum fyrir nokkrum vikum. Ein hafði
lesið auglýsingu á netinu og annarri datt í hug
að vinna svona verkefni á Hrafnistu. Svo fæddist
hugmyndin um uppboð sem færi fram á Skálafelli,
nýja matsalnum hér á Hrafnistu í Reykjavík. Fyrst
ætluðum við að gera eina peysu en svo langaði
okkur að gera tvær stærðir, eina rauða og eina
græna.“
MARGIR HJÁLPAST AÐ
Fjöldi starfsmanna og dvalargesta kemur að
vinnunni að sögn Sigurbjargar. Starfsmenn
hengdu upp auglýsingu innanhúss og sendu
einnig á póstlista Hrafnistu. Öllum var boðið að
vera með í verkefninu; starfsmönnum, dvalar-
gestum og ættingjum. „Dvalargestir og starfs-
menn hafa verið sérstaklega duglegir undanfarn-
ar tvær vikur en við starfsmenn höldum þó utan
um verkefnið. Báðar peysurnar eru prjónaðar
samtímis ásamt fjórum ermum. Allir sem koma
að prjónaskapnum skrá nafn sitt á lista sem fylgir
hvorri peysu. Þannig fær sá sem býður hæst í
viðkomandi peysu nafnalistann með og getur séð
hverjir tóku þátt í gerð hennar sem er virkilega
skemmtilegt.“
Áætluð verklok eru í næstu viku. Upphaflega
var stefnt á næstu helgi en vegna jólabasars og
undirbúnings í tengslum við hann hefur prjóna-
skapurinn tafist lítillega. „Við stefnum þá bara
á næstu viku og þá taka prjónamaskínurnar í
hópnum við. Þegar við sjáum fram á verklok
byrjum við að skipuleggja uppboðið sem verður
vonandi sem fyrst enda styttist í jólin. Við ætlum
að auglýsa það vel og draumurinn er að fá upp-
boðsstjóra og gera þetta svolítið flott. Auðvitað
rennum við svolítið blint í sjóinn varðandi upp-
hæðina en að sjálfsögðu vonumst við eftir góðum
viðbrögðum þannig að Barnaheill njóti vel.“ Ef
uppboðið gengur vel eru góðar líkur á að verk-
efnið verði endurtekið á næsta ári enda segir
Sigurbjörg að það sé góður vettvangur fyrir
dvalargesti, starfsmenn og ættingja til að sýna
samstöðu og láta um leið gott af sér leiða.
MIKIL PRJÓNAHEFÐ
Sjálf segist Sigurbjörg ekki vera mikil prjónakona.
Þegar hún hóf störf á Hrafnistu fyrir tíu árum hafi
hún þó smitast af dvalargestum sem prjónuðu mik-
ið. „Þá byrjaði ég að prjóna á fullu en gekk illa að
klára. Núorðið kaupi ég frekar af heimilisfólkinu hér
enda er mikil prjónahefð á Hrafnistu. Hér áður fyrr
var mjög mikið prjónað hér fyrir hver jól og voru
hér sokkar, vettlingar og treflar í kassavís. Nú eru
dvalargestir eldri og verkefnin hafa breyst en engu
að síður er enn þá mikið prjónað hér.“
KYNSLÓÐIR PRJÓNA JÓLAPEYSUR
BARNAHEILL KYNNIR Tvær fallegar jólapeysur eru prjónaðar þessa dagana á Hrafnistu í Reykjavík. Þær verða báðar boðnar upp
á uppboði í næstu viku og rennur andvirðið til Barnaheilla. Mikil prjónahefð ríkir á Hrafnistu.
Dvalargestir og starfsmenn Hrafnistu í Reykjavík prjóna jólapeysur þessa dagana sem á að selja á uppboði til styrktar Barnaheillum.
MYND/DANÍEL
Jólabasar Hrafnistu
í Reykjavík
laugardaginn 30.
nóvember kl. 13-16,
mánudaginn 2. des-
ember kl. 9-16. Hægt
verður að skoða
jólapeysurnar og
taka í prjónana og
taka þannig þátt í
verkefninu. Einnig
er fallegt handverk
heimilismanna og
jólavörur til sölu á
góðu verði.
Bryndís Björk Arnardóttir prjónaði vægast sagt hressilegar jólapeysur á sig og kærastann, Árna Grétarsson, í fyrra. Þegar Barnaheill –
Save the Children á Íslandi hóf fjáröflunarátakið
Jólapeysan var hún ekki lengi að skrá sig til leiks.
„Fyrst ég átti þetta til mátti ég til með að flagga
þessu,“ segir Bryndís.
Vinahópur þeirra hjóna heldur árlegt jólapartí og
þótti þeim voða fyndið að koma vinunum á óvart og
mæta í jólapeysum. „Ég tók mig til og prjónaði ein-
litar peysur. Ég saumaði svo í þær alls kyns myndir
og skreytti með tölum, böndum og öðru glingri.“
Þegar kom að partíinu var Bryndís í útlöndum
svo Árni fór einn síns liðs. Peysan vakti að vonum
mikla lukku og á leið sinni um miðbæinn um kvöldið
var hann stöðvaður í öðru hverju skrefi. „Fólk vildi
fá myndir af sér með honum og klappa hreindýr-
inu sem er á bakinu en það gerði ég úr ekta lamba-
skinni.“
Bryndís og Árni létu svo mynda sig í peysunum
og sendu vinum og vandamönnum stórskemmti-
leg jólakort. „Bróðir minn býr í Noregi og á norska
konu. Hún vissi ekki alveg hvað hún átti að halda og
hélt jafnvel að við værum alltaf svona,“ segir Bryn-
dís og hlær.
Hún segir það hafa tekið þrjá mánuði að búa
peysurnar til. „Ég bý að því að hafa verið í Hús-
mæðraskólanum og kann því til verka. Ég var þó
óvenjulengi enda nýorðin ólétt og ekki alveg með
sjálfri mér.“ Bryndís er nú heima í fæðingarorlofi
með dóttur sína Ingibjörgu Evu en skyldi hún hafa
fengið jólapeysu? „Hún á reyndar eina sem hún fékk
að gjöf. Ég ákvað því að prjóna handa henni jóla-
kerrupoka og er hann í vinnslu.“
Hægt er að heita á þau hjónin á slóðinni
www.jolapeysan.is undir Bryndís og Árni. Þar er að
finna alls kyns skrautlegar jólapeysur. „Það eru þó
ekki margar heimagerðar og hljótum við að fá prik
fyrir það,“ segir Bryndís.
MEÐ SKRAUTLEGASTA MÓTI
BARNAHEILL KYNNIR Bryndís Björk Árnadóttir útbjó stórskemmtilegar jólapeysur á sig og kærastann í fyrra. Þegar Barnaheill –
Save the Children á Íslandi hleypti af stokkunum fjáröflunarátakinu Jólapeysan ákvað hún samstundis að taka þátt.
TÓKU HUGMYNDINA
ALLA LEIÐ Hjónin
gengu alla leið og sendu
ættingjum og vinum
jólakort af sér í peys-
unum.
KLAPP Á BAKIÐ
Hreindýrapeysa Árna
vakti sérstaka lukku en
hreindýrið á bakinu er úr
ekta skinni.
JÓLASVEINAR, SNJÓKARLAR OG JÓLAPAKKAR Bryndís gekk í Húsmæðraskól-
ann. Þekkingin sem hún öðlaðist þar nýttist henni vel við peysugerðina.