Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 62
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
„Við erum báðir búnir að vinna
lengi í tískubransanum og kynnt-
umst þegar við vorum báðir að
vinna hjá NTC. Við höfðum talað
um það í einhvern tíma að stofna
okkar eigið merki saman því við
höfðum svipaðar hugmyndir um
hvað vantaði á markaðinn og
hvað væri skemmtilegt að gera.
Við ákváðum því fyrr í ár að slá
til og stofna Sons.is,“ segir Oddur
Sturluson. Hann stofnaði vefversl-
unina Sons.is ásamt vini sínum
Ólafi Fannari Heimissyni en vef-
urinn var opnuð í síðustu viku.
„Við seljum okkar eigið merki
sem fæst ekki neins staðar ann-
ars staðar. Framleiðandi í Banda-
ríkjunum hannar vörurnar fyrir
okkur og við veljum útlitið í sam-
ráði við hann. Viðtökurnar hafa
verið mjög jákvæðar og allir
sem hafa fengið og séð vörurnar
eru mjög ánægðir,“ bætir Oddur
við. Nafnið á versluninni vísar
til þess sem allir karlmenn eiga
sameiginlegt.
„Nafnið spratt upp úr samtali
sem við áttum um handa hverj-
um merkið væri. Þá byrjuðum við
að tala um þá staðreynd að allir
karlmenn eiga fyrirmyndir sem
þeir líta upp til og vilja líkjast.
Við erum allir synir.“
Þeir Oddur og Ólafur eru mjög
liðlegir þegar kemur að því að
panta af síðunni og vilja allt fyrir
viðskiptavini sína gera.
„Við erum í því að redda mál-
unum og bjóða upp á sem besta
þjónustu. Viðskiptavinir panta
vöru á vefsíðunni og fá hana
senda daginn eftir. Ef einhver
er hins vegar óviss um einhverja
vöru eða vill fá hana fyrr er lítið
mál að senda okkur skilaboð og
við reddum því.“
Vinirnir hafa í hyggju að
breikka vöruúrvalið en sem
stendur selja þeir bindi, slaufur
og vasaklúta. En er ekkert erfitt
að vinna með vini sínum?
„Satt best að segja er rosalega
þægilegt að vinna með honum
Óla. Við erum svo góðir vinir að
það er lítið mál að ræða saman og
komast að niðurstöðu ef við erum
ósammála.“ liljakatrin@frettabladid.is
Við erum allir synir
Vinirnir Ólafur og Oddur opnuðu vefverslunina Sons.is og selja klassískar vörur.
NÓG AÐ GERA Ólafur er viðskiptafræðingur en Oddur er að klára BA-gráðu í mannfræði. Eftir áramót byrjar hann i meistara-
námi í stjórnun og stefnumótun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Við seljum okkar
eigið merki sem fæst ekki
neins staðar annars staðar.
Söngkonan Carrie Underwood
ræðst ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur og mun leika
Mariu í nýrri sjónvarpsútgáfu af
Söngvaseið. Julie Andrews lék
sama hlutverk í kvikmyndinni
árið 1965 og finnst sumum aðdá-
endum Söngvaseiðs Carrie ekki
passa í hlutverkið.
„Ég fæ haturstíst á borð við
„Þú ert ekki Julie Andrews!“
Ég veit að ég er ekki Julie. Eng-
inn getur verið það og ég myndi
aldrei reyna að vera hún,“ segir
Carrie í viðtali við Entertainment
Weekly.
Ásamt Carrie fara Stephen
Moyer og Audra McDonald með
hlutverk í söngleiknum sem
verður sýndur í beinni útsend-
ingu 5. desember á NBC.
Fær haturstíst
EKKI JULIE ANDREWS Carrie reynir
ekki að apa eftir goðsögninni.
Leikkonan Jennifer Love Hewitt
eignaðist sitt fyrsta barn, fal-
lega dóttur, með Brian Halli-
say á þriðjudaginn. Ekki er nóg
með það heldur létu Jennifer
og Brian líka gefa sig saman á
laun.
„Jennifer Love Hewitt og eig-
inmaður hennar, Brian Hallisay,
eru í skýjunum yfir fæðingu
dóttur sinnar. Autumn James
Hallisay fæddist 26. nóvember,“
segir kynningarfulltrúi leikkon-
unnar.
Jennifer og Brian leika saman
í þáttunum Client List og til-
kynntu að þau væru trúlofuð í
júní síðastliðnum. - lkg
Barn og
leynibrúðkaup
ALLT AÐ GERAST Jennifer er nú móðir
og eiginkona.
Ágætur maður, á röngum tíma
Síðasti föstudagur, 22. nóvember, var frá-bær fyrir menn eins og mig sem lifa á
röngu tímaskeiði. Í fyrsta lagi þá eignað-
ist heimurinn nýjan heimsmeistara í skák
og eyddi ég drjúgum hluta af deginum í að
fylgjast með lokaskákinni. Það fyndna er
að ég veit lítið um skák og skildi varla hvað
var í gangi. Mér fannst bara eins og ég
þyrfti að sjá þetta í beinni útsendingu því
skákeinvígi eru heillandi enda vitsmuna-
legt uppgjör tveggja þjálfaðra huga –
eða jafnvel geópólitískt uppgjör tveggja
heimsvelda eins og haldið var fram í
kalda stríðinu. Ég elska skákeinvígi því
mér finnst þau hluti af merkara tíma-
bili heimssögunnar, tímabili sem ég
lifði ekki en þrái að tengjast. Þess
vegna eyddi ég hálfum föstudegin-
um í að horfa á tvo menn í jakkaföt-
um með sokkin augu sitja í stólum.
Á föstudaginn var einnig hálf
öld liðin síðan Kennedy Banda-
ríkjaforseti var myrtur.
Ég er einn af mörgum sem
hafa aldrei komist yfir þann
atburð, hann hefur dýpri
rætur í huga mínum en
flest það sem gerst hefur á
minni lífstíð. Afmælishelginni eyddi ég í að
horfa á JFK eftir Oliver Stone (mynd sem
ég sá fyrst tíu ára gamall í Bíóborginni við
Snorrabraut og fékk á heilann árin á eftir)
og hina nýju Parkland sem fjallar meðal
annars um lækna á Parkland Memorial-
spítalanum sem tóku á móti Kennedy eftir
tilræðið. Þá er ég búinn að lesa um 400
blaðsíður af Warren-skýrslunni og skima
að nýju yfir bækurnar Crossfire og Case
Closed (sú fyrri er meistaraverk í samsær-
iskenningafræðum en sú síðari ein sú besta
sem tekur fyrir þær).
ÞAÐ sem heillar mig við atburðina 22.
nóvember 1963 eru þó ekki samsæris-
kenningar heldur fagurfræðin. Sólríkur
haustdagur, CIA-menn með hatta og bindi,
konur í drögtum, opinn og gljáandi Ford
Continental, rauðbirkinn og pabbastráks-
greiddur forsetinn með skjannahvítar tenn-
ur en sótsvarta bletti á sálinni. Zapruder-
myndskeiðið. Skotin þrjú. Hvarf sakleysis,
grafið inn í YouTube og komandi kynslóðir
að eilífu, endalaus leikvöllur fyrir ágæta
menn til að lifa á röngum tíma, láta sig
dreyma og þykjast vita eitthvað um atburð
sem er löngu liðinn. Það er besti veruleika-
flóttinn.
Save the Children á Íslandi
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
THE STARVING GAMES
CARRIE
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 2D
TÚRBÓ 2D ÍSL.TAL
THE HUNGER GAMES 2
THE FIFTH ESTATE
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
ÁM LMHAUS
HROSS Í OSS
THE HUNGER GAMES 2
THE COUNCELOR
FURÐUFUGLAR 3D
KL. 4 - 5 - 6 - 8 - 9 - 11
KL. 5 - 8 - 11
KL. 8 - 10.30
KL. 6
KL. 10.45
KL. 8
KL. 3.30
KL. 3.30
KL. 6 - 9 - 10:10
KL. 8
KL. 6
Miðasala á: og
KL. 6 - 8 - 9
KL. 10.15
KL. 5.45 - 8
KL. 10.15
KL. 5.45
KL. 6
DR. WHO 50TH
ANNIVERSARY SPECIAL
PARADÍS: VON
“IT COULD BE HIS BEST FILM
SO FAR” - THE GUARDIAN
THE BROKEN
CIRCLE BREAKDOWN
BESTA LEIKKONA Í
AÐALHLUTVERKI
TRIBECA 2013
SJÁ SÝNINGATÍMA Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
HUNGER GAMES 2 6, 7, 9, 10
PHILOMENA 5:50, 8
CARRIE 10:10
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
EMPIRE
ROLLING STONE
GQ
DEADLINE HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT WEEKLY
VAR ÍSLENSKUR ÞINGMAÐUR Í INNSTA HRING WIKILEAKS?
MÖGNUÐ MYND SEM VAR TEKIN AÐ HLUTA TIL Á ÍSLANDI