Fréttablaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 35
| SMÁAUGLÝSINGAR |
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010,
er hér með auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi
í Reykjavík.
Brautarholt 7
Tillaga að nýju deiliskipulagi reitsins að Brautarholti
7. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á reitnum rísi
byggingar sem hýsi litlar íbúðir/einingar fyrir
stúdenta, einnig er gert ráð fyrir þjónustustarfssemi
á hluta jarðhæðar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillaga liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar
að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 –
16:15, frá 4. desember 2013 til og með 20. janúar
2014. Einnig má sjá tillöguna á vefsíðunni, www.
reykjavik.is, undir skipulag í kynningu. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við
tillöguna skal skila skriflega til umhverfis- og
skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa eða á netfangið
skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 20. janúar
2014. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir
innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Reykjavík 4. desember 2013
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Íbúum og öðrum hagsmunaaðilum gefst kostur á að
kynnar sér nýtt deiliskipulag frístundasvæðis í
Stafafellsfjöllum. Kynningin fer fram í Ráðhúsi
sveitarfélagsins Hafnarbraut 28
fimmtudaginn 5. desember kl. 13:00-15:00.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Umhverfis-og skipulagsstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Kynning á nýju
deiliskipulagi Stafafellsfjöllum
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
kopavogur.is
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum 26. nóvember 2013 tillögu að nýju Aðalskipulagi Kópavogs fyrir tímabilið
2012-2024, ásamt umhverfisskýrslu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Tillagan, ásamt umhverfisskýrslu var kynnt í samræmi við 31. gr ofangreindra laga og lög nr. 105/2006 samhliða breytingum á
Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Kynningartími var frá og með 9. ágúst til 20. september 2013. Frestur til að
gera athugasemdir var til 20. september 2013. Alls barst 31 bréf með athugasemdum og ábendingum við efnisatriði auglýstrar
tillögu. Með tilvísan í innsendar athugasemdir og ábendingar voru gerðar nokkrar breytingar og lagfæringar á kynntri tillögu.
Þær eru helstar:
• Sett var inn í sérskilmála fyrir Þríhnúka að kannaðir verði möguleikar á öðrum samgöngumátum til að draga úr notkun
einkabíla á svæðinu og skerpt var á sérskilmálum til næstu skipulags- og framkvæmdastiga.
• Texti greinargerðar var yfirfarinn og hnykkt á að heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu standi nú yfir og
það sé stefna bæjayfirvalda að mörkum fjarsvæðis og grannsvæðis sunnan Elliðavatns verði breytt á þann hátt að ný byggð
geti risið sunnan vatnsins m.a. í Vatnsvík.
• Í texta umhverfisskýrslu um grunnkerfi var bætt við umfjöllun um göngu-, hjóla- og reiðstíga og nýjum kafla bætt við um
umhverfisáhrif göngu- og hjólabrúar yfir Fossvog.
• Enn fremur voru gerðar nokkrar breytingar á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulagsins þar sem m.a. var fallið frá íbúðarbyggð
austan við Hlíðarveg 65, tákn um bæjarvernd (hverfisvernd) ásamt táknum fyrir reið-, hjóla og göngustíga voru felld út þar
sem skipulagi er frestað sunnan Vatnsvíkur í landi Vatnsenda.
Þær breytingar sem gerðar voru á tillögunni hafa ekki áhrif á meginmarkmið eða forsendur aðalskipulagsins og breyta
því ekki tillögunni í grundvallaratriðum. Bréf hafa verið send til þeirra sem gerðu athugasemdir og ábendingar við tillöguna
á kynningartíma þar sem þeim er kynnt afgreiðsla bæjarstjórnar og umsögn um athugasemdir.
Tillaga að nýju aðalskipulagi Kópavogs, ásamt umhverfisskýrslu og öðrum fylgigögnum hefur verið send Skipulagsstofnun
til staðfestingar og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs Kópavogs,
í Fannborg 6, 2 hæð eða sent tölvupóst á adalskipulag@kopavogur.is.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024
Endurskoðun Aðalskipulags Kópavogs 2001-2012
30.000
fréttaþyrstir
notendur
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu
blaðið hvar sem er og hvenær sem er
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann
með Fréttablaðsappinu. Sláðu inn Fréttablaðið á Google
Play, Windows store eða í App store og náðu í appið.
Save the Children á Íslandi
MIÐVIKUDAGUR 4. desember 2013 19