Fréttablaðið - 12.12.2013, Page 2
12. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Herbert, er ekki tímabært að
líta heiminn öðrum augum?
„Jú, þess vegna er ég með marga liti
af sólhlífum til skiptanna.“
Herbert Guðmundsson tónlistarmaður
hefur haldið ástfóstri við gleraugu sem hann
keypti fyrir tuttugu árum og segir vera sömu
tegundar og hasarhetjan Bruce Willis bar í
myndinni Hudson Hawk.
LJÓSMYNDUN Fréttablaðið blæs til samkeppni um
bestu jólaljósmyndina og hefst hún í dag. Í verð-
laun fyrir bestu myndina er glæsileg Sony 20,1
megapixla myndavél með 16-50mm linsu frá
Sony Center. Besta myndin verður einnig á for-
síðu Fréttablaðsins á aðfangadag og fleiri mynd-
ir úr keppninni birtast í blaðinu.
Þátttakendur hlaða upp myndum sínum á ljos-
myndakeppni.visir.is. Innsendar myndir birtast
á visir.is og lesendur geta kosið bestu myndina.
Niðurstaðan í kosningunni gildir helming á móti
áliti dómnefndar blaðsins.
Hver þátttakandi skal senda inn eina mynd
og skal hún hafa verið tekin nú í aðdraganda
jólanna. Óheimilt er að senda inn eða eigna sér
ljósmyndir sem aðrir en sendandi hafa tekið.
Myndinni þarf að fylgja nafn höfundar og upp-
lýsingar um heimilisfang, netfang og símanúm-
er.
Jólaljósmyndakeppnin stendur frá deginum
í dag, 12. desember, fram að miðnætti fimmtu-
daginn 19. desember. Tilkynnt verður um úrslit
á aðfangadag.
Lesendur velja bestu jólamyndirnar í ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins:
Besta jólamyndin fer á forsíðu
JÓLAMYND Þórir Ó. Tryggvason átti sigurmyndina í jólaljós-
myndakeppni Fréttablaðsins í fyrra. MYND/ÞÓRIR Ó. TRYGGVASON
LÍFIÐ Aníta Briem leikkona prýðir
forsíðu Lífsins á morgun. Hún
ræðir um sitt stærsta hlutverk
hingað til, að verða móðir. Ný
herrafatalína Kormáks og Skjald-
ar er komin í hús. Theódóra Mjöll
Skúladóttir Jack hvetur fólk til að
taka þátt í hárgreiðsluleik Lokka
og Lífsins. Kristín Stefánsdóttir
sýnir förðun fyrir konur á besta
aldri. Svava Halldórsdóttir opnar
netverslunina Brother & Sister,
hún selur einstök viðarúr og
gróðursetur tré fyrir hvert selt
úr. Dimmblá er með sína fyrstu
fatalínu og fær innblástur úr
íslenskri náttúru og norðurljós-
unum.
Aníta í Lífinu á morgun:
Þetta er stór-
brotin upplifun
DANMÖRK Þeir Villy Søvndal utan-
ríkisráðherra og Morten Bødskov
dómsmálaráðherra Dana hafa sagt
af sér á síðustu dögum. Ástæðurn-
ar eru þó ólíkar.
Søvndal gekkst undir aðgerð í
október eftir að blóðtappi fannst
í hjarta hans. Læknar segja að
hann hafi ekki lengur heilsu til
að standa í stjórnmálum. Hann
sagði jafnframt af sér þing-
mennsku.
Bødskov sagði hins vegar af sér
fyrir að hafa logið að þingmönnum
um ráðstöfun ríkisfjár. Þrýstingur
er jafnframt á Anette Vilhelmsen
félagsmálaráðherra að segja af sér
vegna sama máls. - gb
Tveir ráðherrar segja af sér:
Annar laug,
hinn er veikur
PENINGASÖFNUN „Ég er sannfærð-
ur um að allir þeir sem hafa tekið
þátt í söfnuninni eiga eftir að finna
jafnvel eitthvað örlítið betra bragð
af jólamatnum,“ segir Örvar Þór
Guðmundsson, 36 ára fjölskyldu-
faðir í Hafnarfirði.
Átta fjölskyldur munu skipta
með sér 1.550.000 krónum sem
Örvar Þór safnaði í gegnum
Facebook-síðu sína. Um foreldra
langveikra barna er að ræða sem
þurfa svo sannarlega á peninga-
styrknum að halda.
Örvar Þór safnaði tvö hundruð
þúsund krónum í fyrra fyrir ein-
stæða móður sem hann heyrði
vinna jólatré á útvarpsstöðinni
FM957. Hún sagðist bara eiga tvö
þúsund krónur til að halda jól og
lifa út mánuðinn. „Ég lamaðist bara
við að hlusta á þessa mömmu. Þó að
ég væri enginn Hannes Smárason
ætlaði ég að reyna gera eitthvað.
Ég ætlaði ekkert að setjast niður á
aðfangadag fyrr en það væri búið
að græja eitthvað fyrir hana.“
Í október síðastliðnum byrj-
aði Örvar Þór að fá símtöl þar
sem hann var spurður hvort hann
ætlaði ekki að endurtaka leik-
inn. Eftir að hafa lagst undir feld
ákvað hann að hefja nýja söfnun og
í þetta sinn myndu foreldrar lang-
veikra barna fá peninginn. Hann
setti sér markmið um að ná þrjú
hundruð þúsund krónum en sú tala
hefur heldur betur margfaldast.
Söfnun Örvars Þórs fór þannig
fram að hann hringdi ekki í einn
einasta mann til að óska eftir
framlagi heldur tók fólk þátt á
eigin forsendum. Engu að síður
hafi hann lítið sofið að undan-
förnu. „Núna eru um 240 manns
bara búnir að koma á spjallið hjá
mér á Facebook í alls konar pæl-
ingum. Þú setur ekkert inn einn
„status“ og „loggar“ þig svo út og
tékkar hvað er búið að gerast eftir
tvo daga. Þú þarft að vera á tánum
og svo vinn ég við tölvu allan dag-
inn,“ segir hann.
Fasteignasalan Domusnova kom
með stærsta framlagið, eitt hund-
rað þúsund krónur, og KFC og Góa
fimmtíu þúsund krónur hvort. Yfir
níutíu prósent þeirra sem söfnuðu
voru samt einstaklingar. „Einn
skólastrákur sem á ekki krónu
náði að sópa upp átta þúsund
kalli og öryrki, sem á heldur ekki
krónu, náði að skrapa saman þús-
undkalli. Þetta er bara hugurinn
sem gildir.“ freyr@frettabladid.is
Átta fjölskyldur fá
1,5 milljónir fyrir jól
Hafnfirðingurinn Örvar Þór Guðmundsson safnaði 1.550 þúsund krónum fyrir for-
eldra langveikra barna. Peningurinn deilist á milli átta fjölskyldna. Skólastrákur
og öryrki sem eiga engan pening voru á meðal þeirra sem tóku þátt í söfnuninni.
SÆLLA ER AÐ GEFA EN AÐ ÞIGGJA Örvar Þór Guðmundsson, starfsmaður Prent-
mets, hefur slegið í gegn með Facebook-söfnun sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Aðspurður kveðst Örvar Þór búast fastlega við því að halda söfnun sinni
áfram á næsta ári. „Ég held að maður sé að fara hætta að horfa á enska
boltann, ég held ég sé kominn bara í eitthvert svona „rugl“,“ segir hann og
hlær. „Það er svo sem ágætis tímapunktur að hætta að horfa á boltann á
meðan [Man.] United er með allt lóðrétt niður um sig.“
Söfnun í stað enska boltans
DÓMSTÓLAR „Minnir á áverka sem
maður sér á föngum sem í refsing-
arskyni hafa verið hýddir. Maður
sér þetta á internetinu, ég hef
aldrei séð svona,“ sagði læknir,
sem tók á móti Stokkseyrarfórn-
arlambinu á bráðamóttöku Land-
spítalans strax eftir árásina.
Læknirinn lýsti áverkum fórnar-
lambsins við aðalmeðferð málsins
í héraðsdómi í gær.
„Þetta voru óvenjulegir áverkar.
Hann var meiddur í andliti, mar-
inn á eyra, meiddur á vör. Ég hef
aldrei séð svona áður. Hann hefur
verið saumaður saman. Það var
illa gert og gapti allt, sárið orðið
svolítið sortið eins og það verður
eftir nokkra daga,“ sagði læknir-
inn um áverka sem maðurinn hafði
á andliti. Maðurinn vitnaði sjálf-
ur um að hafa hlotið sprungna vör,
sem einn sakborninganna saumaði
saman, áður en hann var fluttur á
Stokkseyri.
Læknirinn sagði mestu áverk-
ana hafa verið ofarlega á líkama
mannsins og þá sérstaklega á baki
þar sem langar rákir lágu niður
eftir bakinu, eftir hýðingar.
Spurður hvernig hann teldi alla
þessa áverka tilkomna sagði lækn-
irinn: „Það er erfitt að segja til um
hvernig þetta er gert allt saman.
Maðurinn var að mínu viti lúbar-
inn.“
Lýsingar læknisins á áverkun-
um voru afar myndrænar og hann
taldi ljóst að þeir væru ekki til-
komnir af slysförum heldur hefðu
honum verið veittir þessir áverkar.
- fbj
Læknir á slysa- og bráðadeild Landspítala sem tók á móti Stokkseyrarfórnarlambinu bar vitni í gær :
„Maðurinn var að mínu viti lúbarinn“
PRÍSUNDIN Á STOKKSEYRI Maðurinn
var að sögn hýddur með belti og raf-
magnssnúrum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN
SUÐUR-AFRÍKA, AP Þúsundir manna fylgdust með þegar líkkista Nel-
sons Mandela var flutt í gær til stjórnsýslubyggingar í höfuðborginni
Pretoríu, þar sem hún verður til sýnis á viðhafnarbörum þangað til á
föstudag.
Þetta er sama byggingin þar sem hann sór embættiseið sinn sem
forseti landsins árið 1994, fjórum árum eftir að hann var látinn laus
úr fangelsi. Mandela verður svo jarðsunginn á sunnudag í þorpinu
Qunu, þar sem hann ólst upp. - gb
Lík Nelsons Mandela flutt til höfuðborgarinnar Pretoríu:
Þúsundir fylgdust með líkfylgd
LÍKFYLGDIN Mikil viðhöfn einkennir allar athafnir tengdar útför Nelsons Mandela.
NORDICPHOTOS/AFP
SPURNING DAGSINS
1.550.000
Upphæðin sem Örvar Þór
safnaði fyrir foreldra
langveikra barna.