Fréttablaðið - 12.12.2013, Side 8
12. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
PI
PA
PI
PA
RR
\\
TB
W
A
W
TB
SÍ
A
1
33
62
5
Upplýsingasími 530 3000
Vertu klár þegar við opnum Bláfjöll og Skálafell.
Glæsileg jólagjöf á frábæru verði.
Vetrarkort fyrir fullorðna á tilboðsverði til áramóta, 24.000 kr.
Þú færð vetrarkort í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5.
Opið alla virka daga kl. 9–13 og 13:30–17.
Gjafakort fást í Mohawks, Kringlunni til áramóta.
Vetrarkort á skíðasvæðin
Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur.
Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano
fyrir Nespressovélar.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
JÓLATILBOÐ
HIN FULLKOMNA JÓL AGJÖF
Opna – Velja – Njóta
mi 577 5600 info@oskaskrin.is www.oskaskrin.issí
– Gefðu upplifun í öskju
SAMFÉLAGSMÁL „Fólk er dauðhrætt.
Þeir sem búa á Eir eru harðfullorð-
ið fólk sem er lasið og þreytt. Þetta
fólk hefur ekkert til að bjarga sér,
nema ættingja séu þeir til staðar.
Soraskapurinn í kringum Eir er svo
geipilegur að maður er orðlaus,“
segir Sigurður Hólm Guðmunds-
son, fyrrverandi sjómaður.
Sigurður, sem er á níræðis-
aldri, flutti á Eir ásamt eiginkonu
sinni sem er á tíræðisaldri fyrir
sjö árum. Þá lagði hann aleiguna,
um 19 milljónir króna, í að kaupa
búseturétt.
„Nú er þetta allt komið í þrot og
við sitjum uppi eignalaus. Við sem
héldum að við myndum eiga góð
elliár. Það líf er ég hins vegar ekki
farinn að sjá enn,“ segir hann og
lýsir ábyrgðinni á hendur þeim sem
standa að Eir.
Hann segir að íbúar á Eir óttist
að vera bornir út.
„Ég líki því við útburð, að þegar
búið er að hirða eigur okkar eigum
við að fara að leigja af þeim fyrir
160 til 200 þúsund á mánuði. Hvar
eigum við að fá peninga til þess?“
segir Sigurður.
Ættingi eiginkonu Jóhanns Páls
Símonarsonar sjómanns lést fyrr
á árinu. Ættmennið bjó á Eir og
var aðstandendum gert að tæma
íbúðina strax eftir lát viðkomandi.
Samkvæmt samningum hefði átt
að gera upp við erfingjana að sex
mánuðum liðnum en sökum þess
að Eir er nánast gjaldþrota hefur
það ekki verið gert. Það er því ekki
hægt að gera upp dánarbúið. „Eir
kom íbúðinni strax í leigu og hirðir
leigupeningana sem ættu að ganga
til ættingjanna eða dánarbúsins,“
segir Jóhann Páll.
Jóhann Páll hefur sent ríkissak-
sóknara beiðni um rannsókn á mál-
efnum hjúkrunarheimilisins Eirar.
Farið er fram á að ríkissaksókn-
ari rannsaki með sjálfstæðum og
óháðum hætti athafnir og athafna-
leysi sjálfseignarstofnunarinnar,
stjórnenda hennar og stjórnar-
manna á árunum 2007 til 2012.
Jóhann Páll segir að það sé ekki
hægt að horfa aðgerðalaus upp
á hvernig stjórnendur og lánar-
drottnar Eirar fari með gamalt
fólk. Það verði að bregðast við.
johanna@frettabaldid.is
Eignalaus og vita
ekki hvað tekur við
Íbúi á hjúkrunarheimilinu Eir segir að fólk sé dauðhrætt um að verða borið út úr
íbúðum sínum. Ekki er hægt að gera upp dánarbú þar sem Eir getur ekki gert upp
við aðstandendur. Ríkissaksóknari hefur fengið málefni Eirar til skoðunar.
Meðal stofnenda hjúkrunarheimilisins Eirar eru Reykjavíkurborg, Sel-
tjarnarnesbær, Mosfellsbær, Efling stéttarfélag og ýmis félagasamtök.
Á Eir eru 173 hjúkrunarrými og 206 öryggisíbúðir.
Skuldir Eirar eru taldar nema á níunda milljarð króna, þar af eru
skuldir við íbúa rúmir tveir milljarðar. Félagið hefur ekki getað staðið við
skuldbindingar sínar gagnvart kröfuhöfum og lánveitendum í langan tíma
og hefur verið í nauðasamningum.
Íbúar á Eir greiddu fyrir svokallaðan íbúðarétt, það er, þeir greiddu til-
tekið gjald og áttu þess í stað að fá rétt til að búa í íbúðinni til æviloka.
Samkvæmt samningum átti, við andlát eða brottflutning, að greiða þeim
eða erfingjum þeirra til baka það sem þeir greiddu fyrir íbúðarréttinn.
Ekki hefur verið hægt að standa við þetta.
Íbúum á Eir var fyrr á árinu boðið skuldabréf til 30 ára með 3,5
prósenta vöxtum þegar íbúðum er skilað. Margir telja þessi bréf verðlaus.
Sjálfseignarstofnunin Eir
Samtökin voru stofnuð til að standa vörð um og tryggja hagsmuni íbúðar-
réttarhafa á Eir. Samtökunum er meðal annars ætlað að reyna að ná fram
fullum endurheimtum á greiðslum frá Eir samkvæmt samningum sem
gerðir voru milli íbúðarréttarhafa og Eirar. Íbúðarréttarhafa og Eir greinir á
um hver eigi eignarrétt á íbúðunum. Lögmaður hagsmunasamtakanna er
Ragnar Aðalsteinsson.
Hagsmunasamtök íbúðarréttarhafa á Eir
Í BRENNIDEPLI Málefni hjúkrunarheimilisins Eirar eru enn á ný í brennidepli.
Stofnuð hafa verið hagsmunasamtök sem eiga að gæta réttinda íbúanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
VIÐSKIPTI Ríkisaðstoð sem felst í fjármögnun á starf-
semi tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu samræm-
ist EES-samningnum. Þetta var niðurstaða ESA,
eftirlitsstofnunar EFTA, í gær. Stofnunin hefur
haft málið til athugunar frá því síðla árs 2011 þegar
kvörtun barst frá samkeppnisaðila.
„Harpa er að fullu í eigu
íslenska ríkisins (54 pró-
sent) og Reykjavíkurborg-
ar (46 prósent). Frá opnun
Hörpu hefur verið halla-
rekstur á starfseminni og hafa eigendurnir því þurft
að leggja til aukafjármagn til að standa undir rekstr-
inum,“ segir í tilkynningu ESA, sem samþykkt hefur
ríkisaðstoð til Hörpu þar sem hún hafi menningar-
legt hlutverk.
Haft er eftir Oda Helen Sletnes, forseta ESA, að
það gleðji hana að íslensk stjórnvöld hafi innleitt
ráðstafanir til að tryggja að umrædd ríkisaðstoð sé
ekki nýtt til að niðurgreiða starfsemi í samkeppnis-
rekstri. „Ráðstafanirnar
fela í sér að bókhaldslegur
aðskilnaður er nú á milli
menningar- og ráðstefnu-
starfsemi Hörpu.“ - óká
HARPA ESA segir aðkomu ríkis-
ins að rekstri Hörpu ekki brjóta
gegn EES-samningnum.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykkir fjármögnun á starfsemi Hörpu:
Skilja að menningu og ráðstefnur
BANDARÍKIN Sögulegar sættir tók-
ust á Bandaríkjaþingi í fyrrakvöld,
þegar demókratar og repúblikan-
ar komu sér saman um fjárlög til
tveggja ára.
Samkomulagið tókst eftir að
nefnd beggja flokka hafði kafað
ofan í helstu ágreiningsmálin.
Repúblikaninn Paul Ryan og demó-
kratinn Patty Murray voru fengn-
ir til að stýra nefndinni, en Ryan
er fulltrúadeildarþingmaður en
Murray öldungadeildarþingmaður.
Með samkomulaginu tekst að
koma í veg fyrir að ríkissjóður
komist í greiðsluþrot þann 15.
janúar næstkomandi, en þá eiga
greiðsluheimildir ríkisins að renna
út samkvæmt síðasta samkomu-
lagi, sem náðist á síðustu stundu
nú í haust.
Ryan segist ánægður með að
samkomulagið tryggi að niður-
skurður á ríkisútgjöldum verði
„skynsamlegri“ en áður hefur
verið rætt um.
„Okkur tókst að rjúfa flokks-
múrana og pattstöðuna,“ sagði
Murray við fjölmiðla.
Bæði sögðust þau bjartsýn á
að niðurstaðan yrði samþykkt í
báðum deildum þingsins, en repú-
blikanar eru með meirihluta í full-
trúadeild og demókratar í öldunga-
deild. - gb
Samkomulag repúblikana og demókrata tryggir fjármögnun ríkisins í tvö ár:
Sættir tókust á Bandaríkjaþingi
SAMVINNAN Demókratinn Murray og
repúblikaninn Ryan stýrðu nefnd um
fjárlagagerð. NORDICPHOTOS/AFP