Fréttablaðið - 12.12.2013, Page 88
12. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 72
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Í viku hverri senda lesendur
Fréttablaðsins mér spurningu í
neðangreint tölvupóstfang sem ég
svo svara í pistli. Nú langar mig
að bregða aðeins út af vananum og
birta spurningar sem ég hef fengið
í kynfræðslu frá nemendum í efstu
bekkjum grunnskóla. Spurning-
arnar eru nafnlausar en gefa les-
endum ágæta innsýn í hugarheim
unglingsins. Þó mátt þú, kæri les-
andi, enn senda mér spurningu
þína og ég mun svara henni.
? Er hægt að sjá hvort afkvæmi verði heilbrigt með því að
skoða sæðið?
● ● ●
SVAR Það má orða það þannig að
þú getir ekki séð það með berum
augum sjálfur en það er hægt að
rannsaka ýmislegt í sæði. Erfða-
efni (DNA) er í höfði sáðfrum-
unnar og þaðan má greina ýmsa
arfgenga sjúkdóma. Í sæðinu má
einnig greina sjúkdóma líkt og
HIV. Þó eitthvað greinist í sæði
þá er ekki þar með sagt að það
muni hafa áhrif á afkvæmið því
erfðirnar geta raðast misjafnlega
saman við erfðaefni eggfrum-
unnar og gen geta verið ríkjandi
og víkjandi. Það er því flókið að
svara þessu því það er margt sem
spilar inn í. Ef þú vilt fræðast
nánar þá er um að gera að ræða
þessi mál við lækni.
? Er eðlilegt að brunda upp í sig og kyngja því?
● ● ●
SVAR Hér væri betra að tala um
algengt frekar en eðlilegt því við
höfum misjafnar skilgreiningar
á því hvað okkur þykir eðlilegt.
Það er ekkert að því að gleypa
eigin sæði en það að stunda munn-
mök á sjálfum sér er eitthvað sem
fáir virðast geta gert. Þetta er því
frekar óalgengt en alveg eðlilegt.
Þetta krefst töluverðs liðleika og
er áætlað að um 10% manna geti
það. Þó grunar mig að ef vilji sé
fyrir hendi þá gæti þessi tala
orðið hærri. Það er mín reynsla að
mörgum virðist hrylla við tilhugs-
uninni um að stunda munnmök við
eigin lim, hvað þá að gleypa eigin
sæði, sem ég reyndar skil ekki
því þetta er þá bara ein útfærsla
af sjálfsfróun. Í því samhengi
má einnig setja spurningu við af
hverju það teljist eðlilegt, jafn-
vel sjálfsagt, að önnur manneskja
sleiki á þér kynfærin ef þér hugn-
ast ekki að gera það sjálfur.
? Hvenær á tíðahringnum er líklegast að verða óléttur?
● ● ●
SVAR Í kringum egglos, um 14
dögum eftir fyrsta dag blæðinga,
eru mestar líkur á þungun. Þó ber
að hafa í huga að tíðahringur getur
verið óreglulegur, sæði getur lifað
allt að fimm daga inni í líkaman-
um og í einhverjum tilfellum geta
losnað tvö egg, en ekki eitt eins og
í hefðbundnum tíðahring. Ef þú
notaðir ekki smokkinn eða ert á
einhverri annarri getnaðarvörn
þá mæli ég með því að taka neyð-
arpilluna sem fyrst eftir samfarir.
Innsýn í hugarheim unglinga
NOKKRAR SPURNINGAR Sigga Dögg
fær iðulega spurningar frá nemendum í
efstu bekkjum grunnskóla.
MYNDIR/GETTY IMAGES
„Sagafilm og Íslenska auglýsinga-
stofan höfðu samband við mig út af
þessu verkefni. Bobby Breiðholt hjá
Íslensku auglýsingastofunni fékk þá
hugmynd að prjóna jólaauglýsingu
Icelandair og það vantaði mann-
eskju til að sjá um prjónið,“ segir
prjónahönnuðurinn Sonja Bent um
hvernig það kom til að hún fékk
veigamikið hlutverk í nýjustu jóla-
auglýsingu Icelandair.
„Upphafleg pæling var að gera
auglýsingu sem væri prjónuð
ramma fyrir ramma en það hefði
þýtt að ég hefði þurft að prjóna
átta hundruð ramma. Við fengum
frekar stuttan fyrirvara og eng-
inn gerði sér fyllilega grein fyrir
því hvað þetta var mikið mál enda
hefur aldrei verið gerð auglýsing
sem þessi á Íslandi svo ég viti. Ég
fundaði með Íslensku auglýsinga-
stofunni og framleiðslufyrirtækinu
Sagafilm og við fundum leið til að
gera þetta eins og við vildum hafa
þetta,“ segir Sonja. Hún fékk tíu
daga til að undirbúa sig fyrir tökur
og prjóna heilan helling.
„Hugmyndin var að áfangastaðir
Icelandair yrðu prjónaðir, eins og
Big Ben og Eiffel-turninn. Þetta átti
að líta út eins og þetta væri hand-
prjónað en ég hefði aldrei getað
handprjónað þetta allt á þeim tíma
sem ég fékk. Þannig að þetta var
gert í vél og var heilmikil útfærsla.
Bobby Breiðholt teiknaði landslag-
ið sem ég svo útfærði í prjón. Allt
landslagið var sex til sjö metra
renningur sem var settur saman
úr sex eða sjö bútum. Allur grunn-
urinn var vélprjónaður en síðan
var öll hreyfing handsaumuð ofan
í grunninn, lykkju fyrir lykkju, í
tökum. Þar af leiðandi var mjög
lítil eftirvinnsla eins og lagt var
upp með.
Ég þurfti að safna saman liði til
að hjálpa mér að klára þetta. Aðal-
manneskjan með mér var Þóra Ein-
arsdóttir, algjör prjónasnillingur
sem er búin að kenna mér mikið í
gegnum árin. Síðan fékk ég móður
mína, Sæunni Mörtu Sigurgeirs-
dóttur, bróderímeistarann Ríkeyju
Kristjánsdóttur og vinkonu mína,
Kolbrúnu Bergmann Franzdóttur,
með mér í lið. Án þeirra hefði ég
ekki getað þetta. Við vöktum allan
sólarhringinn fyrir fyrsta tökudag
og vorum allar sem ein algjörlega
ósofnar,“ segir Sonja en tvo daga tók
að taka upp auglýsinguna.
„Þetta voru tveir rosalegir töku-
dagar. Fyrsta tökudeginum fylgdi
ákveðin sigurtilfinning því þetta
tókst og við vorum ekki viss hvort
við gætum þetta. Við vorum öll
hrikalega stressuð þessa daga út
af því hvort þetta næðist. Ég var
með hjartað í buxunum allan dag-
inn. Seinni tökudaginn vorum við 23
klukkutíma samfleytt í tökum. Það
var algjört brjálæði. Það var samt
fáránlegt hvað valdist góður hópur
til að vinna þetta verkefni og það
gekk allt svo smurt. Ótrúleg sam-
vinna allra aðila.“
Eftir mikið streð var einstaklega
skemmtilegt að sjá auglýsinguna í
sjónvarpinu að sögn Sonju.
„Ég hef aldrei séð verkefni mitt
lifna við og það yljar manni um
hjartarætur. Ég er voðalega montin
af þessu ef ég segi alveg eins og er.
Ég hlakka til að tækla næsta verk-
efni og það væri gaman að takast á
við eitthvað sem er enn meira krefj-
andi.“
Sonja er búin að vinna að síðustu
tveimur þáttaröðum í búningadeild
Latabæjar og aðstoðar Maríu Ólafs-
dóttur, búningahönnuð Latabæjar.
„Bæði María og Magnús Schev-
ing eru mjög kröfuhörð og vita
nákvæmlega hvað þau vilja. Stund-
um hef ég engan tíma til að klára
hugmyndir og þarf að rjúka á vinnu-
stofuna og prjóna fram undir morg-
un. Ég er brjálæðislega vel skóluð
eftir að hafa unnið með Maríu því
hún fær klikkaðar hugmyndir og
það þarf helst að útfæra þær í gær.
Í sumar var tröll í einum þættinum
og það var ákveðið að það yrði í ein-
hverju prjónuðu. Prjónið þurfti að
vera mjög stórt því þetta var svo
stór fígúra. Við fundum ekki nógu
stóra prjóna þannig að ég prjónaði
bara með höndunum og fékk þannig
stóra, flotta lykkju. Ég gerði trölla-
kjól úr áttföldum Bulky-lopa sem er
massíft þykkt. Ég gat ekki tekið upp
símann eða gert nokkurn skapaðan
hlut því ég var föst þangað til ég
kláraði stykkið. Í tengslum við prjón
hefur ekkert stöðvað mig enn þá.“
Sonja segist hafa lítinn frítíma en
prjón er ástríða hennar í lífinu.
„Ég hef mestan áhuga á prjóni og
ég held áfram að bæta við mig þekk-
ingu því ég hef svo mikinn áhuga.
Ég er alltaf að gera tilraunir og það
er það sem gerir það að verkum að
ég er orðin frekar klár í prjóni og
fljót að vinna og búa til uppskrift-
ir. Ég er fljót að útfæra alls konar
hugmyndir og mér finnst það fer-
lega gaman. Ég tek meira að segja
upp prjónana þegar ég er að horfa
á sjónvarpið eða fer í bústað. Þetta
er einhvers konar prjónageðveiki.“
liljakatrin@frettabladid.is
Í prjóni hefur ekkert stöðvað mig
Prjónahönnuðurinn Sonja Bent lék veigamikið hlutverk í jólaauglýsingu Icelandair. Hún sá um að prjóna áfangastaði fl ugfélagsins og
segir ferlið hafa verið afar stressandi. Hún mætti ósofi n á fyrsta tökudag og var með hjartað í buxunum allan daginn. Þrátt fyrir það
getur hún ekki beðið eft ir næsta krefj andi verkefni.
MIKIÐ STRESS Tökudagarnir tóku á en hér sést Sonja handsauma ofan í grunninn. Við hlið hennar stendur Bobby Breiðholt.
GEFÐU FRÍ Guðjón Jónsson leikstýrði auglýsingunni ásamt Emil Ásgrímssyni. Hér er
Guðjón ásamt Sonju.
GJÖRIÐ SVO VEL Auglýsingin var tekin upp á tveimur dögum.
TVEIR GÓÐIR Örn Sveinsson, yfirmaður eftirvinnslu hjá Sagafilm, og Emil, annar
leikstjóri auglýsingarinnar.
Icelandair-auglýsingin er gerð með svokallaðri stopmotion-tækni.
Stopmotion fellur undir svið kvikmyndagerðar og felur tæknin það í sér
að láta líta út fyrir að kyrrstæðir hlutir hreyfist. Tæknin er gjarnan notuð
í hreyfimyndum með brúðum og fígúrum úr leir en þá er hver hreyfing
brotin niður í ramma sem eru myndaðir og settir saman í runu. Einn fræg-
asti stopmotion-karakter kvikmyndasögunnar er King Kong en í myndinni
frá árinu 1933 voru hreyfingar hans skapaðar með stopmotion-tækni.
Stopmotion-tækni
Ég er voðalega
montin af þessu ef ég
segi alveg eins og er.
Sonja Bent